Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 35
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 7 Ú T L Ö N D Danska konungsfjölskyldan tap- aði 185 milljónum íslenskra króna í fyrra. Stærsti útgjalda- liðurinn var brúðkaup krón- prinsins og hinnar áströlsku Mary Donaldson. Tekjur kon- ungsfjölskyldunnar koma að langstærstum hluta frá ríkinu og kostaði konungsfjölskyldan Dani hátt í 900 milljónir íslenska króna á síðustu níu mánuðum ársins. Annar kostnaður sem talinn er til er viðhaldskostnaður á Fredensborgarhöllinni sem og nýr bíll krónprinsins. Í dönskum fjölmiðlun er spurt að því hvort konungsfjöl- skyldan sé peningana virði. Er þetta í fyrsta skipti sem konungsfjölskyldan birtir árs- reikning sinn en hann nær að- eins yfir níu mánuði ársins því að rekstrarárinu hefur verið breytt. Rekstrarárið er nú al- manaksárið. Ársreikningurinn er prýddur margvíslegum upp- lýsingum um konungsfjölskyld- una og með myndum af fjöl- skyldunni og helstu starfsemi líkt og um venjulegt fyrirtæki sé að ræða. Uppgjöri konungsfjöl- skyldunnar er skipt í tvennt, annars vegar í rekstur krón- prinsins og hins vegar í rekstur konungsfjölskyldunar. - dh Tap á rekstri konungsfjölskyldunnar Kostar danska ríkið hátt í milljarð BRÚÐHJÓNIN Mary Donaldson og Friðrik krónprins Dana. Fr ét ta bl að ið /N or di cP ho to s/ G et ty Im ag es USA Today í flestum eintökum USA Today er það dagblað í Bandaríkjunum sem hefur hvað mesta útbreiðslu. Í lok síðasta mánaðar hafði meðalupplag blaðsins verið 2,3 milljón eintök síðastliðna sex mánuði. Þar á eft- ir er The Wall Street Journal mest lesið og hafa þessi tvö blöð yfirburði hvað varðar daglega dreifingu. Í þriðja sæti er New York Times með rúmlega milljón ein- tök að meðaltali í hverju upplagi. Önnur blöð eru prentuð í færri eintökum. Samdráttur í dreifingu dag- blaða í Bandaríkjunum var 1,9 prósent yfir sex mánaða tímabil. Er það einn mesti samdráttur undanfarin ár. – bg 1. USA Today 2.300 2. The Wall Street Journal 2.100 3. The New York Times 1.100 4. Los Angeles Times 908 5. The Washington Post 752 6. New York Daily News 736 7. New York Post 678 8. Chicago Tribune 574 9. Houston Chronicle 528 10. San Francisco Chronicle 469 *Í þúsundum eintaka T Í U S T Æ R S T U D A G B L Ö Ð B A N D A R Í K J A N N A * Barist um háloftin Hörð barátta Boeing og Airbus. Helstu framleiðendur farþega- flugvéla í heiminum, evrópska Airbus fyrirtækið, og bandaríska fyrirtækið Boeing, standa nú í hatrammri bar- áttu um við- skipti við flug- félög heims. Í síðustu viku tókst A380 vélin, stærsta farþegaflugvél heims, á loft í fyrsta sinn. Á sama tíma til- kynnti Boeing um þrjár risastór- ar vélapantanir. Boeing hefur lagt áherslu á að framleiða lang- drægar vélar á meðan Airbus veðjar á að á næstu áratugum verði meiri þörf á vélum sem taka mikinn fjölda farþega. Ljóst er að bæði félög hafa lagt í miklar fjárfestingar og öllu er tjaldað til í því skyni að selja sem flestar pantanir. Í nýjasta tölublaði Economist segir að þrjár stjórar pantanir á nýjustu vélum Boeing ættu að vekja ugg hjá stjórnendum Air- bus enda eru Boeing pantanirnar frá fyrirtækjum sem hingað til hafi valið Airbus. - þk Statoil: 65 prósent í skatt Norski olíurisinn Statoil hagn- aðist um 200 milljarða króna fyrir skatta á fyrstu þremur mánuðum ársins. Hagnaður tímabilsins eftir skatta var um 68 milljarðar króna og jókst um 44 prósent frá sama tíma í fyrra. Félagið greiðir um 130 milljarða í skatta til norska ríksins. Meginástæða góðrar af- komu er hátt heimsmarkaðs- verð á eldsneyti. Norska ríkið er langstærsti eigandi Statoil með 70 prósenta hlut. Hlutabréf Statoil hækkuðu við tíðindin, enda var uppgjörið betra en búist var við. - eþa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.