Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagur 4. maí,
124. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 4.49 13.24 22.02
AKUREYRI 4.20 13.09 22.01
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Nemendur á fyrsta ári hrossaræktar-
brautar á Hólum ljúka prófum í þess-
ari viku. Meðal þeirra er Guðrún Rut
Hreiðarsdóttir úr Reykjavík.
„Ég var búin að vera á leiðinni að Hólum í
tíu ár og nú loksins lét ég verða af því. Það
er eitt það besta sem fyrir mig hefur kom-
ið,“ segir Guðrún Rut og býr sig undir að
taka hestagullið Þokkabót frá Hólum til
kostanna. Guðrún Rut er úr Reykjavík og
er með börn sín tvö á Hólum, níu ára dóttur
og sjö ára dreng. „Ég varð ólétt að dóttur-
inni einmitt um það leyti sem ég ætlaði að
drífa mig í bændaskólann. Þess vegna
frestaðist það,“ segir hún hlæjandi.
Hún segir mjög gott að vera með börn á
Hólum og ber lof á grunnskólann þar.
Hennar eigið nám segir hún afar lærdóms-
ríkt líka. En hvenær smitaðist hún af hesta-
bakteríunni? „Hún hefur blundað í mér frá
því ég var krakki. Ég fór fyrst á bak þegar
ég var þriggja ára. Það var á Hofsstöðum á
Mýrum þar sem ég var síðar í sveit hjá
langömmu minni og hún gaf mér fyrsta
hestinn í fermingargjöf. Þá átti ég heima á
Seltjarnarnesi og hélt hesta í Ráðagerði.
Svo er ég búin að starfa við hestamennsku
undanfarin sex ár, í Laxnesi, hjá Íshestum
og við tamningar í Mosfellsbæ.“
Guðrún Rut er búin að skrá sig í áfram-
haldandi nám á Hólum næsta vetur og ætl-
ar að vinna þar í sumar við tamningar og
fleira. „Ég nældi mér í kærasta hér í ná-
grenninu sem er hestamaður líka,“ segir
hún brosandi og bendir innar í Hjaltadal-
inn. Hann býr þarna inni á Hvammi.“
gun@frettabladid.is
Var í tíu ár á leiðinni til Hóla
nam@frettabladid.is
Vorsýning
kvöldskóla Kópavogs verður
haldin sunnudaginn 8. maí
klukkan 12 til 17 í Snælands-
skóla við Furugrund. Á sýning-
unni verður aðallega sýndur
afrakstur af vinnu nemenda í
verklegum námskeiðum frá
liðnum vetri. Nemend-
ur sýna til
dæmis bók-
band, búta-
saum, leir-
mótun, fata-
saum, frí-
stundamál-
un, glerlist,
hurðakransa
úr birki og
íkona.
Námskeið
í skjalastjórnun verður haldið
23. og 24. maí í Hamraborg 10,
annarri hæð, í kennslusal Kven-
félags Kópavogs. Kennt er frá
13 til 16.30 báða dagana. Leið-
beinandi á námskeiðinu er Sig-
mar Þormar, framkvæmdastjóri
Skipulags og skjala ehf. Skrán-
ing fer fram á tölvupóstfanginu
stjornandinn@stjornandinn.is.
Námskeiðsgjald er þrjátíu
þúsund krónur en
námskeiðsgögn ásamt kaffi
báða dagana og meðlæti eru
innifalin í námskeiðsgjaldinu.
Námskeið í notkun
á matstækinu
Sensory Profile
verður haldið
hjá
Endurmenntun
Háskóla Íslands
mánudaginn 6.
og þriðjudaginn
7. júní. Kennari
á námskeiðinu
er Winnie Dunn, iðjuþjálfi og
prófessor við háskólann í
Kansas í Bandaríkjunum.
Matstækið er markbundið og
er tilgangur með notkun þess
að meta hvernig
einstaklingurinn túlkar og
vinnur úr skynáreitum í sínu
umhverfi og áhrif þess á færni
við daglega iðju.
Skráningarfrestur er til 9. maí
en verð er 25.500 krónur.
Guðrún Rut með hryssuna Þokkabót frá Hólum
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is LIGGUR Í LOFTINU
í námi
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BÖRN FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Ég hélt að ég kynni
þetta alveg. Mamma
er allavega alltaf glöð
þegar ég kyssi hana!
Ræktun sumarbústaðalóða
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að taka upp rafræna innritun í fram-
haldsskólum. Nemendur sem ljúka 10. bekk grunnskóla nú í vor munu
sækja um á netinu. Aðrir umsækjendur sækja um á eyðublaði sem sent er
útfyllt til viðkomandi skóla ásamt afritum af einkunum úr fyrra námi.
Ráðuneytið telur að rafræn innritun muni auðvelda framhaldsskólunum að
hafa yfirsýn yfir eftirspurn eftir skólum og námsbrautum.
Forráðamenn nemenda í 10. bekk munu fá bréf frá ráðuneytinu fyrri hluta
maímánaðar þar sem fyrirkomulag innritunarinnar verður kynnt nánar. Að-
koma foreldra/forráðamanna ólögráða unglinga er skilyrði fyrir skráningu
þeirra til náms í framhaldsskóla.
Nemendur 10. bekkjar fá lykilorð sem veitir þeim persónulegan aðgang að
innritun á netinu ásamt leiðbeiningum um hvernig sækja skal um. Um-
sóknarkerfið verður opnað um miðjan maí og verður opið til 14. júní. Á
þeim tíma geta umsækjendur hvenær sem er unnið með umsóknir sínar
og breytt vali á skóla og námsbraut. Á miðnætti þann 14. júní lýkur um-
sóknarfresti og skólarnir hefja úrvinnslu umsókna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
.
Nemendur sem ljúka grunnskólaprófi í vor munu skrá sig í framhalds-
skóla á netinu. Myndin er tekin í Háteigsskóla.
NÝIR NEMAR INNRITA SIG Á NETINU
Aðsókn að framhaldsskólum landsins hefur aukist jafnt og þétt og nú
er svo komið að síðasta haust hófu 93% sextán ára unglinga fram-
haldsskólanám.
Listin að kyssa