Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 63
MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2005
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-F
LU
2
82
56
05
/2
00
5
Fljúgðu fyrir
klink!
Nú er tækifæri til að bregða sér í heimsókn til vina eða
ættingja eða einfaldlega skreppa eitthvert út á land að
spígspora í vorlitunum.
Þú getur flogið fyrir aðeins 999 krónur, með sköttum,
aðra leiðina milli Reykjavíkur, Akureyrar, Egilsstaða og
Ísafjarðar frá 9. til 12. maí, ef þú bókar á netinu á
flugfelag.is
Það eru 299 sæti í boði svo nú er um að gera að drífa
sig á netið og hreinsa klinkið úr vösunum í leiðinni.
www.flugfelag.is | 570 3030
KLINK
T I L B O Ð
999kr.
frá 9. til 12. maí
299 sæti í boði
Aðeins bókanlegt
í dag
Ólafur Ingi Skúlason á ferð og flugi næstu vikurnar:
Fimm félög í þrem löndum
vilja skoða Ólaf Inga
FÓTBOLTI Fyrirliði íslenska U-21
árs liðsins, Ólafur Ingi Skúlason,
verður á ferð og flugi næstu vik-
urnar. Hann er að losna undan
samningi við Arsenal í sumar og
þarf því að finna sér nýtt félag hið
fyrsta. Honum ætti að reynast það
auðvelt því eftirspurnin er mikil
en hann mun heimsækja fimm fé-
lög sem hafa lýst yfir áhuga á
honum á næstu vikum.
Fyrsta stopp er í Skotlandi en
þangað hélt Ólafur Ingi í morgun
en hann verður næstu daga til
reynslu hjá Hjálmari Þórarins-
syni og félögum í Hearts.
Þaðan heldur hann til Hollands
þar sem hann mun verða við æf-
ingar hjá Groningen og einnig
hugsanlega hjá Feyenoord. Að
lokum mun Ólafur Ingi væntan-
lega halda til Ítalíu en Torino og
Perugia vilja ólm skoða Árbæing-
inn efnilega.
„Þetta verður mikil reisa og
gæti tekið allt í fjórar vikur. Þetta
er hið besta mál enda þarf maður
að halda sér við fyrir landsleikina
með unglingalandsliðinu,“ sagði
Ólafur Ingi í samtali við Frétta-
blaðið í gær. „Það er búið að spyrj-
ast töluvert mikið um mig og það
er mjög ánægjulegt.“
Ólafur Ingi á ekki von á því að
hann komi heim og leiki með Fylki
í sumar. Hann ætlar sér að finna
lið áður en hann heldur í frí.
„Nú er þetta undir manni sjálf-
um komið og maður verður að
gjöra svo vel að geta eitthvað hjá
þessum liðum ef maður ætlar að
vera áfram í atvinnumennsku. Ég
hef ekkert spáð í hvar ég vilji
helst spila. Það sem skiptir mig
mestu máli er að fá að spila með
aðalliði og að liðið leggi mikla
áherslu á að fá mig. Maður vill
finna fyrir áhuganum hjá liðun-
um. Ég vil spila með liði sem hef-
ur alvöru áhuga á að fá mann til
sín,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason.
henry@frettabladid.is
Meistaradeild Evrópu:
Kemst Milan í úrslit?
FÓTBOLTI Síðasti leikurinn í
undanúrslitum Meistaradeildar
Evrópu fer fram í Hollandi í kvöld
þegar PSV Eindhoven tekur á
móti AC Milan. Ítalska liðið er
með vænlega stöðu en þeir unnu
heimaleik sinn, 2–0.
Mikil meiðsl herja á herbúðir
PSV þessa dagana og ástandið
versnaði mikið um helgina þegar
framherjarnir DaMarcus Beasley
og Jefferson Farfán meiddust.
Fyrir voru á sjúkralistanum ekki
lakari menn en Wilfrde Bouma og
Kóreubúinn Park.
„Við þurfum að tefla djarft og
það er aldrei að vita hverju við
tökum upp á,“ sagði
töframaðurinn Guus Hiddink,
þjálfari PSV. „Það er ljóst að við
verðum að sækja og ég er
alvarlega að skoða þann
möguleika að fækka í vörninni hjá
mér.“
AC Milan mætir með sitt
sterkasta lið til Hollands en
ástand liðsins er svo gott að
þjálfari liðsins, Carlo Ancelotti,
gat leyft sér að hvíla lykilmenn
um síðustu helgi er Milan sigraði
Fiorentina, 2-1. Andriy
Shevchenko skoraði bæði mörk
Milan í leiknum og hann verður
með í kvöld. - hbg
SJÓÐHEITUR Andriy Shevchenko hefur farið á kostum með Milan í vetur.
EFTIRSÓTTUR
Fjölmörg félög
vilja skoða Ólaf
Inga Skúlason
næstu vikurnar.