Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 26
Sögusamkeppni SAFT hafin KRAKKAR Á ALDRINUM 9 TIL 16 ÁRA ERU HVATTIR TIL AÐ SENDA INN SÖGU. Sögusamkeppni SAFT stendur nú yfir og er síðasti skiladagur 17. maí næstkomandi. Keppt er í tveimur aldurshópum, 9 til 12 ára og 13 til 16 ára. Keppendum er boðið í „ferðalag á netinu“ þar sem ferðafé- lagarnir eru hundurinn Alpha ásamst netverði og stelpu sem heitir Mata. Þau elska ævintýri og eru krakkarnir beðnir að skrifa sögu þeirra. Hægt er að kynna sér keppnisreglurnar á heimasíðu saft.is en þess má geta að vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu sögurnar. SAFT stendur fyrir „Samfélag, fjöl- skyldu og tækni“ og er vakningar- átak um örugga netnotkun barna og unglinga. Augu Augu nýfæddra barna geta ekki framleitt tár fyrr en börnin eru á milli þriggja og sex vikna gömul.[ ] Laugavegi 51 • s: 552 2201 Falleg föt á konur og börn Opið á laugardaginn til kl 17 Skeifan 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Hjá okkur fáið þið falleg rimlarúm í úrvali fyrir börnin. RIMLARÚM Í ÚRVALI Smáralind Flott föt fyrir flotta krakka www.adams.is Fátækt barn í dag verður fátækt foreldri Lára Björnsdóttir segir mikil- vægt að útrýma barnafátækt á Íslandi, því ef búið er vel um börnin verði þau yfirleitt vel sett á efri árum. Börn fá- tækra foreldra verða yfirleitt fátæk á efri árum og því nauðsynlegt að rjúfa víta- hringinn. „Fátækt barn í dag verður fátækt foreldri framtíðarinnar og þess vegna er mikilvægt að vinna að því að útrýma barnafátækt,“ seg- ir Lára Björnsdóttir, s v i ð s s t j ó r i v e l f e r ð a r - sviðs Reykja- víkurborgar. H u g t a k i ð barnafátækt er frekar nýtt af nálinni en er farið að vekja athygli víða um heim. Aðeins þrjú lönd í heimin- um eru talin hafa útrýmt barnafátækt, en það eru Dan- mörk, Noregur og Svíþjóð og seg- ir Lára mikilvægt að við reynum að feta í fótspor þeirra. „Ef fólk ætlar að tryggja eftir- launastöðu þá þarf að hugsa fyrst um börnin. Framfærsla aldraða er kostnaðarsöm og þótt það sé ekki áhugavert að vera alltaf að velta kostnaði fyrir sér, er það eitthvað sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur af sé búið vel um fólk í bernsku,“ segir Lára og bætir við að börn sem búið er vel að í æsku séu yfirleitt betur sett síðar á ævinni. „Við höfum séð það hjá okkur að besta leiðin til að útrýma barnafátækt sé með fjárfestingu í mæðrum barnanna og þá einkum þeim sem eru fátækar og lítið menntaðar, en það hefur sýnt sig að það ber mestan ávöxt,“ segir Lára en hún hefur ásamt sam- starfsfólki sínu verið að vinna í þeim málum, til dæmis með því að veita konum námsaðstoð með því að hjálpa þeim í nám upp að lánshæfu námi. „Við veitum nokkrum hópum þessa námsaðstoð og sjálfstyrk- ingu og höfum meðal annars lagt áherslu á að hjálpa einstæðum mæðrum sem eru ómenntaðar og eiga í fjárhagslegum og jafnvel félagslegum vanda,“ segir Lára. Námsaðstoðin breytir gífurlega miklu í lífi þessara kvenna, en margar þeirra eiga annars á hættu að verða öryrkjar fyrir lífs- tíð þar sem vonleysið yfirbugar þær. „Verkefnið hefur verið gífur- lega spennandi og árangursríkt til að koma þeim af stað. Þær upp- götva á þessum tíma að ef þær halda þetta út þá geta þær fengið aukið sjálfstraust,“ segir Lára og tekur fram að það sé ofboðslega gaman að fylgjast með konunum og sjá hvernig þær breytast til hins betra. „Þetta er hluti af því að fjár- festa í mannauðnum sem annars fer til spillis ef ekkert er að gert, og auk þess er það mikill ávinn- ingur að þetta flyst yfir á börnin,“ segir Lára. kristineva@frettabladid.is Lára Björnsdóttir. Hressir krakkar leika sér í Nauthólsvík. Myndin er úr safni. Saumagalleríið jbj flytur úr miðbænum Jóna Björg Jónasdóttir hefur rekið Saumagallerí jbj í nær 20 ár. Hér er hún ásamt dóttur sinni Guð- rúnu Rögnu Yngvarsdóttur sem aðstoðar við reksturinn. Saumagallerí jbj hefur opnað versl- un í Kópavoginum og er með því verið að flytja hönnun, framleiðslu og sölu undir sama þak en verslunin var áður að Laugavegi 8. Í verslun- inni er seldur handgerður og vand- aður barnafatnaður fyrir börn upp að 4 ára aldri auk ungbarnasundfata og fatnaðar fyrir fyrirbura. Jóna Björg Jónasdóttir sem rekur saumagalleríið hannar öll fötin sjálf og leitast hún við að nota aðeins mjúk efni og ekkert sem veldur of- næmi eða óþægindum. Sundfötin hannaði hún í samastarfi við sund- kennara og hefur Útilíf nú ákveðið að taka sundfötin til sölu í verslun- um sínum. Rammagerðin hefur einnig sýnt framleiðslu Saumagaller- ísins jbj áhuga og ætlar að selja svo- kallaða ferðamannalínu frá Saumagalleríinu jbj. Nýja verslunin er staðsett við Skólagerði 5 í Kópa- vogi og hægt er að skoða vöruúrval- ið á www.islanda.is/jbj á netinu. Börn sýna hvað í þeim býr SÝNINGUNNI ÚLFASTUBBI LÝKUR Í RÁÐHÚSINU NÆSTKOMANDI FÖSTUDAG. Sýningin Úlfastubbur er framtak leikskólans Sæborgar í Reykja- vík. Verkin á sýningunni voru unnin eftir uppeldisstefnu sem kennd er við borgina Reggio Emilia á Norður-Ítalíu og felur í sér að lögð er áhersla á skap- andi starf með börnum. Helstu einkenni stefnunnar er sýnin á einstaklinginn og að hann hafi mikið fram að færa. Kennarinn fylgist með vinnunni og skráir niður hugmyndir og hvetur barnið áfram og fær barnið því tækifæri til að kafa djúpt í efnið. Verkin á sýningunni eru að mestu unnin úr endurvinnan- legu efni og sýnir hún vel barnamenningu á Íslandi eins og hún gerist best. Leiðsögn um sýninguna er virka daga á milli klukkan 10.00 og 14.30. Listmunir barnanna eru litríkir og fallegir. Jóna Björg Jónasdóttir hefur rekið Saumagallerí jbj í nær 20 ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.