Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 72
36 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
„There's a
difference
between not
liking one's
brother and
not caring
when some dumb Irish
flatfoot drops him out of
a window.“
- Jeremy Irons er í hefndarhug í Die Hard: With a
Vengeance og er tilbúinn til að láta Bruce Willis
finna til tevatnsins fyrir að hafa kálað Hans Gruber
í Die Hard.
bio@frettabladid.is
Það hefur ekki borið mikið á breska skap-
gerðarleikaranum Jeremy Irons undanfarið
en nafn hans var ákveðinn gæðastimpill á
kvikmyndum á síðustu áratugum nýliðinn-
ar aldar. Irons er þó að sækja í sig veðrið
eftir nokkur mögur ár en árið 2004 lék
hann í Kaupmanninum frá Feneyjum,
ásamt ekki minni mönnum en Al Pacino
og Joseph Fiennes, og Being Julia. Hann
er svo mættur til leiks í risastórmynd
Ridley Scott, Kingdom of Heaven sem er
frumsýnd í dag. Jeremy John Irons fæddist
á Englandi 19. september árið 1948 og
reyndi fyrir sér sem götuspilari áður en
hann fór í leiklistarnám. Hann fékk fyrsta
stóra tækifærið sitt í söngleiknum Godspell
þar sem hann lék Jóhannes skírara á móti
David Essex. Árið 1981 lék hann aðalhlut-
verkið í sjónvarpsþáttunum Brideshead
Revisited og á móti Meryl Streep í kvik-
myndinni The French Lieutenant's Woman.
Irons fékk svo tvær BAFTA tilnefningar fyrir
þessi hlutverk sín ári síðar. Irons stóð sig
svo með mikilli prýði á móti Robert De
Niro í The Mission árið 1986 og vann tvö-
faldan leiksigur tveimur árum síðar í Dead
Ringers, eftir David Cronenberg, en þar
lék hann á móti sjálfum sér þegar hann
túlkaði eineggja tvíburana Beverly og
Elliot Mantle með miklum tilþrifum. Irons
hreppti svo Óskarsverðlaunin árið 1991
fyrir túlkun sína á Claus von Bülow í
Reversal of Fortune. Hann var svo í bull-
andi dramatík í Damage árið 1992 en síð-
an fór að halla undan fæti. Hann var til
dæmis hálf ráðvilltur sem Esteban Trueba
í Húsi andanna og Stealing Beauty (1996)
og Lolita (1997) gerðu ekki mikið fyrir feril
hans. Hann sýndi hins vegar fína skúrka-
takta í Lion King þar sem hann talaði fyrir
Skara og var á léttu nótunum sem ill-
menni í Die Hard: With a Vengence.
EKKI MISSA AF...
... hinum frábæru myndasögum
Franks Miller um líf og dauða
morðingja, vændiskvenna og
harðsoðinna
töffara í Sin
City bóka-
flokknum.
Bækurnar eru
sjö talsins en
Robert
Rodriguez
styðst við þrjár
þeirra, That
Yellow Basdard, The Hard Good-
bye og The Big Fat Kill, í mynd
sinni Sin City sem verður án efa
ein vinsælasta mynd ársins. Sin
City bækurnar hafa sumar verið
ófaánlegar um nokkurt skeið en
þær hafa allar verið endurútgefn-
ar í tilefni af frumsýningu mynd-
arinnar.
Eðalleikari á réttri leið
HELOSAN
RAKAKREM
fyrir alla fjölskylduna
Mýkjandi og rakagefandi
Hitchhiker's Guide to the Galaxy
Internet Movie Database 7,1 / 10
Rottentomatoes.com 61% / Fresh
Metacritic.com 7 / 10
Kingdom of Heaven
Internet Movie Database 7,7 / 10
Rottentomatoes.com 60 % / Fresh
Metacritic.com 8,5 / 10
FRUMSÝNDAR Í DAG
(DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM)
Breska kvikmyndatímaritið Emp-
ire stillti Orlando Bloom upp við
vegg á dögunum og fékk hann til
að segja aðeins frá framhalds-
myndunum tveimur sem verið er
að gera á eftir The Pirates of the
Carribean. Framhaldsmyndirnar
eru teknar upp báðar í einu og
Bloom segist vera búinn að leika í
atriðum fyrir þriðju myndina án
þess að vera búinn að fá handrit í
hendurnar. Hann má vitaskuld
ekki segja mikið um myndirnar
en fékkst þó til að staðfesta að
persóna hans, Will Turner, þurfi
að leggjast í leiðangur til þess að
bjarga unnustu sinni Elizabeth
sem Keira Knightley leikur sem
fyrr. „Ég er að reyna að vinna
áfram með persónuna og þróa
hana í spennandi áttir. Við erum
ekki bara að endurtaka sama leik-
inn,“ segir Bloom og fullyrðir að
það hafi verið gríðarlega gaman
að hitta Keiru og Johnny Deep
aftur og halda áfram í sjó-
ræningjaleik.
Bloom staðfestir einnig að eitt-
hvað sé til í því að Rollingurinn
Keith Richards muni leika föður
sjóræningjans Jack Sparrow en
Johnny Deep segist hafa byggt
persónu Jacks á gamla rokkhund-
inum. Þá mætir Stellan Skarsgard
til leiks í hlutverki Bootstrap Bill
Turner, föður Blooms, en á honum
hvílir bölvun þannig að hann hef-
ur þurft að ganga um á botni sjáv-
ar lifandi dauður í lengri tíma. ■
ORLANDO OG KEIRA Þau leika kærustuparið Will og Elisabet í tveimur myndum sem
koma í kjölfar Pirates of the Carribean.
Bloom kjaftar frá sjóræningjum
Það eru tvær stórmyndir frum-
sýndar í dag. Kingdom of Heaven
gerist á tímum krossfaranna en
The Hitchhiker's Guide to the
Galaxy er byggð á samnefndri Sci -
Fi sögu Douglas Adams.
Krossferðunum gerð skil
Kvikmyndarinnar Kingdom of
Heaven hefur verið beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Bæði er leik-
stjóri myndarinnar, Ridley Scott,
einn virtasti kvikmyndagerðarmað-
ur Hollywood og svo hefur myndin
mjög sterka tilvísun til okkar tíma
en átök múslima og kristinna eru í
forgrunni.
Það var Urban páfi II sem hvatti
riddara til þess að frelsa kristna
menn undan múslimum og ná Jer-
úsalem á sitt vald í predikun árið
1095. Krossfararnir náðu Jerúsal-
em á sitt vald fyrst 1099 en hún var
þá talin vera miðja alheimsins. Þeg-
ar Urban páfi lýsti yfir ferðunum á
hendur múslimum var það í fyrsta
skipti sem að það var gert í nafni
Jesú. Með réttu mætti því kalla
krossferðirnar heilagt stríð og
krossförunum var lofuð eigna-
vernd og jafnvel syndaaflausn.
Sögusvið Kingdom of Heaven er
tíminn fyrir þriðju krossferðirnar
en þá réðu riddararnir yfir Landinu
helga sem og Jerúsalem. Járnsmið-
urinn Balian hefur misst fjölskyld-
una sína og er við það að ganga af
trúnni. Franski konungurinn God-
frey af Ibelin sannfærir hann um
að koma til landsins helga og þjóna
Baldvin I. sem hefur krýnt sig kon-
ung Jerúsalemar. Það ríkir hins
vegar brothætt vopnahlé milli
múslima og kristinna sem leysist
fljótlega upp vegna græðgi og af-
brýðissemi hinna krossfaranna.
Það er Orlando Bloom sem fer
með hlutverk Balian. Bloom vakti
heimsathygli þegar hann lék álfinn
Legolas í Hringadróttinssögu Peter
Jacksons. Ásamt Bloom leika þeir
Jeremy Irons og Liam Neeson auk
þess sem Edward Norton fer með
hlutverk Baldvins konungs.
Heiminum tortímt vegna hrað-
brautar
Hitchhiker's Guide to the Galaxy
er byggð á samnefndri sögu Dou-
glas Adams. Upphaflega var
Hitchhiker's guide to the galaxy út-
varpsleikrit sem leikið var á BBC.
Það vakti strax mikla lukku og var
gefið út í fimm bindum sem skáld-
saga.
Bækurnar höfðu mikil áhrif á
poppmenninguna, og voru gerðir
sjónvarpsþættir byggðir á ævintýr-
unum. Adams dreymdi engu að síð-
ur um að kvikmynd yrði gerð eftir
bókinni og reyndi í tuttugu ár að
skrifa handrit. Það var ekki fyrr en
tuttugu árum seinna sem að hann
gaf öðrum leyfi til þess að reyna við
þetta verkefni en þegar Adams
loksins skilaði uppkasti að handriti
lést hann úr hjartaáfalli.
Hitchhiker's Guide to the
Galaxy segir frá Arthur Dent sem á
óvenju vondan dag í uppsiglingu.
Það á að rífa niður húsið hans, vin-
ur hans reynist vera geimvera og
til þess að toppa allt mun jörðin
eyðast innan fárra mínútna vegna
þess að hún stendur í vegi fyrir
hraðbraut um geiminn. Arthur
Dent er bjargað af vini sínum, ferð-
ast um himingeiminn og kemst að
því að handklæði er besti hluturinn
sem að mannskepnan getur borið.
Hann kemst einnig að tilgangi lífs-
ins og að svörin við öllum spurning-
unum er að finna í rafrænni bók,
The Hitchhiker's Guide to the
Galaxy.
Það er Martin Freeman sem fer
með hlutverk Arthur Dent en hann
ættu aðdáendur sjónvarpsþáttarins
Office að kannast við en hann lék
Tim Canterbury. Það er síðan stór-
leikarinn Stephen Fry sem er sögu-
maður. ■
ORLANDO BLOOM OG DAVID THEWLIS Kingdom of Heaven gerist á tímum krossferðanna og lýsir baráttu kristinna og múslima.
ZAPHOD, FORD OG ARTHUR BRENT Þeir félagar lenda í ýmsum ævintýrum á ferð
sinni um alheiminn
Krossfari og puttaferðalangur