Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 25
3MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2005
„Eitt af þeim tækjum sem við höfum til að skilja betur líðan okkar er alltaf
með okkur. Það er öndunin,“ segir Guðrún Arnalds sem stendur fyrir nám-
skeiðinu í Lótus Jógasetrinu í Borgartúni 20. Það hefst á föstudagskvöldið kl.
19 og stendur til sunnudagskvölds. En hvað er líföndun? Guðrún svarar því.
„Líföndun er leið til að losa um spennu og finna hvað er að gerast innra með
okkur. Nú er vorið komið en sumir eru dálítið seinni að vakna af vetrardvalan-
um en blómin og trén. Það getur verið vegna uppsafnaðra tilfinninga sem við
náðum ekki að vinna úr eða streitu eftir langvarandi álag. Þá er mjög gott að
kunna leiðir til að tengjast sjálfum sér og þegar við öndum meðvitað þá erum
við meðvitaðri um líðan okkar og hugsanir.“
Guðrún segir Kundalini jóga byggt á aldagamalli þekkingu og vera mjög mark-
visst tæki sem hjálpi okkur að vakna til meðvitundar um æðri vitund. „Verald-
leg velgengni er ekki allt og veitir okkur ekki fullnægju nema við kunnum að
njóta lífsins, sættast við það eins og það er og gefa okkur tíma til að rækta
andann,“ segir hún að lokum.
Guðrún segir eitt djúpt andartak geta breytt heilmiklu.
Að rækta andann
og upplifa vorið
NÁMSKEIÐ Í LÍFÖNDUN OG KUNDALINI JÓGA VERÐUR HALDIÐ UM NÆSTU
HELGI FYRIR ÞÁ SEM VILJA TENGJAST SJÁLFUM SÉR OG UPPLIFA VORIÐ
INNRA MEÐ SÉR.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Dans hefur aldrei verið vin-
sælli en einmitt nú um helg-
ina 7. og 8. maí verður haldið
dansnámskeið í Contempor-
ary Urban dansi í Kramhús-
inu. Námskeiðið er sett upp
af Evu Rós Guðmundsdóttur
og er hluti af verkefni hennar
fyrir kúrs sem heitir Negoti-
ated Studies en hún er við
dansnám í De Montfort há-
skólanum í Bretlandi.
Á námskeiðinu verður kennd ný
stefna þar sem blandað er saman
hip hop, street og jazz funk með
hefðbundnum dansi við nútíma
tónlist. „Ég veit ekki hvort ég hef
einhvern tímann séð einhvern
blanda þessum stílum saman, sem
sagt Contemporary og Urban.
Þetta eru uppáhaldsstílarnir mínir
og ég hef áhuga á að prófa eitthvað
nýtt. Ég held að þessir stílar séu
ekki til á sjónvarpsstöðvum eins og
MTV þó að sum sporin eða hreyf-
ingarnar séu líkar og það sem sést
þar,“ segir Eva Rós.
Eva Rós er 23 ára en hún hefur
verið að dansa síðan hún var fjög-
urra ára. „Ég byrjaði að læra dans
hjá Eddu Scheving þegar ég var
fjögurra ára og var þar í ballett í
fjögur ár. Svo var ég í jazzballett
hjá Sóleyju í nokkur ár og með því
í fimleikum hjá Gerplu. Ég flutti til
Þýskalands þegar ég var ellefu ára
og var þar fyrst hjá mömmu minni,
Þorgerði Gunnarsdóttur, í danstím-
um þar sem hún er líka lærður
dansari og var að kenna þar í nokk-
ur ár,“ segir Eva Rós sem hefur
sótt danstíma í Ameríku, Þýska-
landi og Englandi og lært ýmsa
stíla síðan hún var lítil stelpa.
Eva Rós fylgist líka vel með því
sem er að gerast í dansheiminum
eins og danskennarar þurfa að
gera. „Í gegnum háskólanum þarf
ég alltaf að vera að fylgjast með
dansheiminum og kennararnir
benda okkur á það sem er að gerast
í bransanum. Annars fer ég líka oft
á netið að leita að danskúrsum.
Hluti af náminu er að læra um
danshöfunda og dansverk. Við
þurfum að lesa mikið af danstíma-
ritum, dansbókum og horfa á víd-
eó,“ segir Eva Rós sem er fullviss
um að allir geti dansað. „Eitt sem
við erum að læra í háskólanum er
Alexander-tækni. Þar lærum við
um samhæfingu, jafnvægi og að
nota líkamann. Ég held ef maður
lærir að nota líkamann rétt þá geti
maður lært að dansa. Ég vil að fólk
geti tekið þátt í tímum hjá mér og
sé alltaf meðvitað um það sem það
er að gera til að koma í veg fyrir
meiðsli. Ég vil að fólk sé opið fyrir
nýjungum og sé tilbúið að gera eitt-
hvað skapandi. Ég vona að fólk
komi á námskeiðið með opinn huga
og tilbúið að prófa eitthvað nýtt. Ég
hef mikinn áhuga á dansi þar sem
tveir eða fleiri búa til dans saman
og ég vil kynna það á námskeið-
inu.“
Kennt verður í tveimur hópum á
námskeiðinu; annars vegar í yngri
hópi fyrir fólk með litla dans-
reynslu og hins vegar fyrir eldra
fólk og lengra komið. Hvor hópur
fær fimm til sex tíma kennslu. Verð
er 4.500 krónur fyrir nemendur
Kramhússins en 5.500 krónur fyrir
aðra en námskeiðið er að sjálf-
sögðu opið öllum.
Eva Rós er nú við nám í dansi í Englandi.
Vonar að fólk komi í tíma með opinn huga
Eva Rós hefur verið að dansa síðan hún var fjögurra ára gömul.