Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 29
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
27
94
8
04
/2
00
5
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
27
94
8
04
/2
00
5 10,2%*
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 01.03.2005–01.04.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingar-
sjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verð-
bréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í
afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
Ný rannsókn:
Tölvupóstur
truflar meira
en hass
Sjávarútvegur í Kauphöll:
Flaggskipin af markaði
Man. United:
Stuðnings-
menn vilja
kaupa
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 4. maí 2005 – 5. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Fyrstu hóparnir | Nokkur mynd
er að komast á það hverjir ætli að
bjóða í Símann. Meðal annars er
rætt um að Atorka, Frosti Bergs-
son, Jón Helgi í BYKO og bræð-
urnir Jón og Snorri Snorrasynir
ætli að leggja fram tilboð.
Fyrstu uppgjörin | Fyrstu upp-
gjörin birtust í vikunni. Straumur
skilaði 4,6 milljörðum króna í
hagnað, Íslandsbanki 3.038 millj-
ónum, Og fjarskipti um 200 millj-
ónum, Össur 195 milljónum og
Fiskmarkaður Íslands um 50
milljónum en Medcare tapaði um
67 milljónum króna á tímabilinu.
Gott uppgjör | Uppgjör Bakka-
varar var fyrir ofan væntingar
markaðsaðila. Félagið skilaði 484
milljónum króna í hagnað fyrstu
þrjá mánuði ársins.
Kosningar í Bretlandi | Á morg-
un verða þingkosningar í Bret-
landi. Ekki er talið að úrslitin
skipti miklu máli fyrir viðskipta-
lífið.
Methagnaður hjá KB | KB banki
skilaði frá sér metuppgjöri í síð-
ustu viku. Hagnaður bankans
fyrstu þrjá mánuði ársins nam um
ellefu milljörðum króna eftir
skatta. Við sama tilefni kynnti
bankinn að hann ætli sér að kaupa
Singer&Friedlander.
Nýtt félag | Breska verslunar-
keðjan Mosaic Fashions ætlar að
skrá sig í Kauphöllina í júní. Fé-
lagið ætlar að selja nýtt hlutafé
fyrir milljarði króna til almenn-
ings og fagfjárfesta. Mosaic verð-
ur fyrsta erlenda félagið til að
skrá sig á Íslandi.
Viðskiptahalllinn eykst | Við-
skiptahallinn var ellefu milljörð-
um meiri á fyrsta ársfjórðungi en
á sama tímabili í fyrra.
NÝBYGGINGAR
Hækkanir fasteignaverðs ýta verðbólgunni
upp.
Ný aðferð hjá Hagstofu:
Verðbólga í
maí lækkar
Hagstofan hefur nú ákveðið að
breyta útreikningum á meðal-
vöxtum í húsnæðislið vísitölu
neysluverðs. Miðast vextirnir við
meðaltal 12 mánaða í stað meðal-
tals fimm ára eins og verið hefur
frá ágúst 2004. Þá bjóst Hagstof-
an við auknum sveiflum í vöxtum
á húsnæðislánum vegna aukinn-
ar samkeppni en svo hefur ekki
orðið. Áhrifin af breytingunni
nema tæpu hálfu prósenti til
lækkunar í maí.
Á síðasta ári var verðbólgan
yfir fjórum prósentum og er það
að langstærstum hluta vegna
hækkunar á húsnæðisverði. - dh
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Að minnsta kosti sjö innlendir hópar eru að undir-
búa óbindandi kauptilboð í Símann. Frestur til að
skila inn tilboðum rennur út 17. maí næstkomandi.
Tengdir aðilar mega ekki kaupa meira en 45 pró-
sent hlut í Símanum og því verða þrír hópar hið
minnsta að vinna saman að kaupunum.
Fjárfestingafélagið Atorka ásamt Frosta Bergs-
syni, kenndan við Opin Kerfi, Jóni Helga Guð-
mundssyni í Bykó og bræðrunum Jóni og Sturlu
Snorrasonum, fyrrverandi eigendum Húsasmiðj-
unnar, vinna saman að tilboði. Viðræður eru í gangi
um að sá hópur starfi í framhaldinu með Trygginga-
miðstöðinni, Jóni og Sigurði Gísla Pálmasonum,
Bolla Kristinssyni og Ingimundi Sigfússyni.
Burðarás hefur lengi verið að skoða kaup á Sím-
anum og undirbýr tilboð. Ekki liggur fyrir með
hverjum þeir ætli að vinna né hvernig aðkoma fé-
laga Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarfor-
manns Burðaráss, verður. Landsbankinn mun koma
að því tilboði.
KB banki mun aftur á móti standa að baki VÍS og
fjárfestingafélaginu Meiði, sem hafa hvað lengst
verið í þessari umræðu.
Þriðji Íslenski viðskiptabankinn, Íslandsbanki,
er að undirbúa samstarf við bandaríska fjárfest-
ingafélagið Blackstone Group, sem hefur meðal
annars aðsetur í London. Blackstone hefur í aukn-
um mæli verið að skoða fjárfestingar í Evrópu und-
anfarin ár.
Langlíklegast er að fjárfestingafélagið Straumur
vinni með erlendum fjárfestum að tilboði sam-
kvæmt upplýsingum Markaðarins. Samstarf við
innlenda aðila er þó ekki útilokað.
Þá hefur hópur kvenna í atvinnulífinu verið að
vinna saman að því að bjóða í Símann með það að
markmiði að vera þriðji og minnsti fjárfestahópur-
inn.
Síðast má nefna Almenning ehf. undir forystu
Agnesar Bragadóttur og Orra Vigfússonar. Í dag
tekur einkavæðinganefnd afstöðu til þess hvort fé-
lagið fái frekari frest til að skila inn óbindandi til-
boði og hvernig meðferð trúnaðarupplýsinga verði
háttað.
F R É T T I R V I K U N N A R
8 12-13 6
Fjölskyldur Valtýs Stefánssonar,
fyrrverandi ritstjóra Morgun-
blaðsins, og Kristins Björnsson-
ar, stjórnarformanns Straums,
eiga nú samanlagt í kringum sjö-
tíu prósent í útgáfufélagi Morg-
unblaðsins. Skiptist eignarhlut-
urinn nokkuð jafnt á milli félaga
í eigu þessara fjölskyldna.
Núverandi hluthafar nýttu sér
forkaupsrétt á sextán prósenta
eignarhlut Haraldar Sveinssonar
sem Íslandsbanki hafði boðið í
fyrir nokkra einstaklinga. „Þessi
hlutur hefur verið keyptur og
greiddur,“ segir Kristinn.
Haraldur Sveinsson fær greitt
fyrir hlut sinn í dag, sama dag og
forkaupsrétturinn rennur út.
Áætlað kaupverð er rúmir sex
hundruð milljónir króna.
Kristinn segir það sína per-
sónulegu skoðun að stækka og
breikka eigi hluthafahóp Morg-
unblaðsins. Það sé nauðsynlegt
að fá öflugt fólk til liðs við út-
gáfufélagið sem hafi metnað til
að styrkja stöðu Moggans. Af-
nema eigi forkaupsréttarákvæð-
ið, enda auðvelt að fara í kringum
það. – bg
Útrásarvísitala
Markaðarins
Markaðurinn mun fylgjast grannt
með helstu félögunum sem Ís-
lendingar hafa fjárfest í erlendis.
Frá og með þessu tölublaði mun
Markaðurinn reikna út Útrásar-
vísitöluna sem samanstendur af
þeim fyrirtækjum sem íslensk
fyrirtæki eiga hagsmuna að gæta
í.
Miðað er við gengi fyrirtækj-
anna á markaði og miðgengi við-
komandi gjaldmiðils gagnvart ís-
lensku krónunni. Útrásarvísitalan
gefur því til kynna hvernig þróun
eignarverðs í helstu útrásarfyrir-
tækjum er fyrir íslenska fjár-
festa. Því hafa ekki aðeins sveifl-
ur í gengi fyrirtækja á markaði
áhrif heldur einnig gengi krón-
unnar gagnvart erlendum gjald-
miðlum. - þk Sjá síðu 6
Sjö hópar vilja Símann
Hópar fjárfesta í kringum Atorku og Tryggingamiðstöðina
ræða samvinnu við kaup á Símanum. Íslandsbanki og
Straumur leita út fyrir landsteinana.
TVÆR FJÖLSKYLDUR
STÆRSTAR Tveir stærstu hlut-
hafahópar Morgunblaðsins eiga í
kringum 35 prósent hvor.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
H
ar
i
Vill fjölga hluthöfum Moggans
RANNVEIG RIST Í RÆÐUSTÓL Stjórnarformaður Símans gerir
grein fyirr rekstrinum á síðasta aðalfundi