Fréttablaðið - 04.05.2005, Page 6
6 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Tryggingastofnun ríkisins:
Útgáfa evrópskra sjúkra-
tryggingakorta hafin
HEILBRIGÐISMÁL Útgáfa Trygginga-
stofnunar á evrópsku sjúkra-
tryggingakorti er hafin.
Ef Íslendingur lendir óvænt í
slysi eða veikindum á ferð um
Evrópu veitir kortið korthafanum
rétt til nauðsynlegrar heilbrigðis-
þjónustu á sama verði og heima-
menn greiða. Kortið tryggir að
viðkomandi greiðir aðeins hlut
sjúklings í læknisþjónustu og lyfj-
um. Það gildir hjá heilsugæslu-
stöðvum, sjúkrahúsum, apótekum
og öðrum þjónustuaðilum með
samninga við opinbera sjúkra-
tryggingakerfið, en ekki þegar
um er að ræða þjónustu sem veitt
er á einkareknum sjúkrastofnun-
um sem starfa án samnings við
hið opinbera. Brýnt er að þeir sem
dvelja tímabundið í Evrópulandi,
gæti þess ávallt að leita heilbrigð-
isþjónustu sem rekin er af hinu
opinbera eða hjá aðilum sem hafa
samninga við ríkið.
Evrópska sjúkratrygginga-
kortið er gefið út á einstaklinga,
ekki fjölskyldur eins og E-111
vottorðið, og einfaldast er að
sækja um kortið á heimasíðu TR,
tr.is. Allir Íslendingar, og aðrir
EES ríkisborgarar, sem sjúkra-
tryggðir eru hér á landi eiga rétt á
að fá evrópska sjúkratryggginga-
kortið til notkunar á ferðalögum
til annarra EES landa. -jss
Ráðherrar sverja embættiseið í skugga ofbeldis:
Ríkisstjórn al-Jaafari tekin við völdum
BAGDAD, AP Ráðherrar í ríkisstjórn
Íraks sóru embættiseið sinn í gær,
í skugga ofbeldisöldu sem ekkert
lát virðist á. Tvær bandarískar
orrustuþotur eru taldar hafa lent í
árekstri yfir landinu í fyrradag.
Við innsetningarathöfn í íraska
þinginu í gær hétu Ibrahim al-
Jaafari forsætisráðherra og ráðu-
neyti hans að verja land og þjóð.
Enn á þó eftir að skipa í fimm
mikilvægar stöður, þar á meðal
embætti varnarmálaráðherra og
olíumálaráðherra, þar sem ekki
hefur náðst samkomulag um
hverjir eiga að gegna þeim. Al-
Jaafari vill að súnníi taki að sér
varnarmálaráðuneytið en á með-
an sá maður er ófundinn stýrir
forsætisráðherrann því sjálfur.
Ekkert lát er á ofbeldinu í land-
inu. 35 féllu í árásum víðs vegar
um Írak í fyrradag og í gær biðu
12 manns bana í skotbardaga í
Ramadi, flestir þeirra uppreisnar-
menn. Þrír lögreglumenn dóu í
átökum í Samarra.
Talið er að tvær bandarískar
orrustuþotur sem saknað var á
mánudag hafi skollið saman yfir
suðurhluta Íraks. Lík eins flug-
mannsins fannst í gær en flök vél-
anna eru enn ófundin. ■
Fara með málið eins
langt og það kemst
Samtök eigenda sjávarjarða höfða mál á hendur ríkinu. Nýfallinn dómur Hæstarétt-
ar tók ekki á eignarrétti sjávarbænda á hlunnindum í sjó. Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmaður segir viðbúið að mál bændanna endi í Strassborg.
SJÁVARBÆNDUR Á næstu vikum
höfða Samtök eigenda sjávarjarða
mál á hendur ríkinu til að fá við-
urkenndan rétt bænda sem eiga
land að sjó til fiskveiða, bæði al-
mennt og einnig í netlögum. Net-
lög marka ytri eignamörk jarð-
eigna, um 115 metra út í sjó.
Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður undirbýr málið
fyrir hönd samtakanna. „Þessi
mál eru óhemju flókin og því
erfitt að negla nákvæmlega niður
hvenær málið verður höfðað, en
það er alveg örstutt í það,“ sagði
Ragnar og kvaðst hafa orðið fyrir
vonbrigðum með dóm Hæstarétt-
ar í síðustu viku þar sem fjallað
var um grásleppuveiðar trillu-
karls á Ströndum innan netlaga.
„Ekki liggur samt fyrir hvort
hentar að fara með það mál til
Strassborgar,“ sagði hann en taldi
viðbúið að eitthvert sjávarnytja-
mála bænda endaði þar fyrir
Mannréttindadómstóli Evrópu.
„Ég bjóst að sjálfsögðu við að
Hæstiréttur myndi gera betri
grein fyrir viðhorfi sínu en að
staðfesta héraðsdóminn,“ sagði
Ragnar og kvað ekki hafa verið
tekið á ágreiningnum sem uppi
var um heimildir landeigenda til
fiskveiða. Dómurinn horfði hins
vegar til þess að manninn skorti
leyfi til grásleppuveiðanna og
hafði því brotið lög um veiðar í at-
vinnuskyni.
„Almennt er það þannig að ef
grípa þarf inn í eignarréttindi
borgaranna þarf að gera það gegn
bótum. Hæstiréttur hefði fremur
átt að sýkna manninn og senda
ríkisvaldinu þannig skilaboð um
að ef ætti að taka þessar eignir af
rétthöfum í kring um landið þá
þyrfti að setja lög um bætur,“ seg-
ir Ragnar og taldi löngu markað í
löggjöf að öll eignarréttindi innan
netlaga væru hluti af jörðum.
„Eignaréttarmál héðan enda úti í
Strassborg, líka út af þjóðlendun-
um, en íslensku dómarnir sem
gengið hafa eru ekki í samræmi
við dóma sem gengið hafa um
eignarétt fyrir Mannréttindadóm-
stóla Evrópu,“ bætti hann við.
Ómar Antonsson, formaður
Samtaka eigenda sjávarjarða,
segir höfuðáherslu lagða á að fá
viðurkenndan rétt bændanna til
veiðihlunninda í sjó og telur lít-
inn áhuga á bótum fyrir eignar-
nám. „Þarna er eignarréttur sem
okkur er meinað að nýta,“ sagði
hann og taldi bara framkvæmda-
atriði hvernig þeim málum yrði
háttað eftir að bændurnir hafa
fengið sitt fram fyrir dómstól-
um.
olikr@frettabladid.is
Bréf til al-Zarqawi:
Kvartað yfir
hæfnisskorti
BAGDAD, AP Hersveitir Banda-
ríkjamanna hafa fundið bréf
stílað á Abu Musab al-Zarqawi
leiðtoga uppreisnarmanna í
Írak. Í bréfinu er kvartað undan
slæmu andrúmslofti á meðal
fylgismanna og hæfnisskorti
foringja hryðjuverkasamtak-
anna sem al-Zarqawi leiðir. Ekki
hefur tekist að ganga úr skugga
um uppruna eða sannleiksgildi
bréfsins en ef rétt reynist virð-
ist fylgi við hryðjuverkahópinn
fara minnkandi. Engu að síður
eru samtökin enn fullfær um að
framkvæma mannskæð hryðju-
verk eins og atburðir síðustu
daga sanna. ■
GENGU BERSERKSGANG 30-50
unglingar gengu berserksgang í
Hjulsta-skólanum í Stokkhólmi í
gær. Þau lömdu húsakynnin að
innan og utan með keðjum og
bareflum þannig að ekki var ein
rúða óbrotin þegar þau höfðu lok-
ið sér af. Skemmdarvargarnir
voru á brott þegar lögregla kom
á vettvang.
■ SVÍÞJÓÐ
■ TÓGÓ
Er Eiður Smári Guðjohnsen
besti knattspyrnumaður Ís-
lands frá upphafi?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að krefjast aukins eldvarna-
viðbúnaðar hjá Hringrás?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
48%
52%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Tölvunám eldri borgara
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Grunnur
30 kennslustunda byrjendanámskeið. Engin
undirstaða nauðsynleg, hæg yfirferð með
þolinmóðum kennurum. Aldurstakmark 60 ára og
eldri. Á námskeiðinu er markmiðið að þátttakendur
verði færir að nota tölvuna til að skrifa texta, setja
hann snyrtilega upp og prenta, fara á internetið,
taka á móti og senda tölvupóst. Þátttakendur læra
að koma sér upp ókeypis tölvupóstfangi.
Kennsla hefst 9. maí
og lýkur 30. maí.
Kennt er mánudaga
og miðvikudaga
kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,-
Vegleg kennslubók
innifalin.
Framhald I
30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið
hafa byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega
undirstöðu.
• Upprifjun
• Æfingar í Word ritvinnslu
• Leit og vinnsla á internetinu og meðferð
tölvupósts.
• Excel kynning
Kennsla hefst 10. maí og lýkur 31. maí.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl 13 - 16.
Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
FYRSTA KORTIÐ
Karl Steinar Guðnason, forstjóri TR, afhenti Jóni Kristjánssyni heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra fyrsta kortið á fundi með fréttamönnum þar sem kortið var kynnt.
AL-JAAFARI Í BEINNI
Þessir írösku menn fylgdust með sjónvarpsútsendingu frá innsetningu ríkisstjórnarinnar af
miklum áhuga á kaffihúsi í Bagdad í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
RAGNAR AÐALSTEINSSON HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR Í HÆSTARÉTTI
Ragnar fer með mál Samtaka eigenda sjávarjarða sem til stendur að höfða á hendur rík-
inu á næstu vikum. Hann segir galla á lögum um fiskveiðar í landhelgi, því þau miði bara
við útgerðarmenn, en gleymst hafi að huga að landeigendum og þeim ekki kynnt
hugsanleg eignaupptaka.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KOSNINGASIGUR STAÐFESTUR
Hæstiréttur Tógó staðfesti í gær
kosningasigur sonar fyrrum ein-
ræðisherra landsins í forseta-
kosningum sem haldnar voru fyr-
ir réttri viku síðan. Niðurstöður
kosninganna hafa nú þegar valdið
miklum óeirðum í Tógó og hafa
nokkrir beðið bana og tugir þús-
unda flúið.