Fréttablaðið - 04.05.2005, Page 30
Dögg Hjaltalín
skrifar
Hagnaður Íslandsbanka á fyrstu
þremur mánuðum ársins var
3.038 milljónir króna eftir
skatta. Afkoman er undir vænt-
ingum greiningardeilda bank-
anna og lækkaði gengi bankans
eftir birtingu uppgjörs.
Gengishagnaður bankans var
1,4 milljarðar króna á fyrstu
þremur mánuðum ársins.
Hreinar vaxtatekjur jukust
um 63 prósent frá fyrra ári og
voru 4,5 milljarðar króna.
Vaxtamunur hefur aukist lítil-
lega en hann var 2,5 prósent á
tímabilinu en var 2,4 prósent á
sama tíma í fyrra.
Kostnaðarhlutfall af banka-
starfsemi jókst milli ára og var
rúm 50 prósent en á sama tíma í
fyrra var það 38 prósent.
Hagnaður af rekstri Sjóvár
nam 1.257 milljónum
króna á fyrsta árs-
fjórðungi. Munar þar
mestu um 1.313 millj-
óna króna gengis-
hagnað sem má að
verulega leyti rekja
til sölu félagsins á
hlut í FL Group. Vá-
tryggingastarfsemin skilaði 99
milljóna króna hagnaði saman-
borið við 205 milljóna króna tap
í fyrra.
Heildareignir samstæðunnar
námu 767 milljörðum króna 31.
mars og höfðu aukist um 13 pró-
sent frá áramótum. Eignir BN-
bank teljast til sam-
stæðunnar frá fyrsta
apríl en þær námu
381 milljarði um síð-
ustu áramót. Eignir
Íslandsbanka eru því
komnar yfir 1.000
milljarða á þessum
tímapunkti.
Vika Frá áramótum
Actavis -2% 3%
Atorka 1% 5%
Bakkavör 4% 42%
Burðarás -2% 18%
Flaga Group -3% -13%
FL Group 0% 46%
Íslandsbanki 0% 22%
Kaupþing Banki -1% 23%
Kögun 0% 35%
Landsbankinn -1% 35%
Marel 0% 13%
Og Fjarskipti 7% 33%
Samherji 0% 9%
Straumur -1% 26%
Össur -4% 7%
*Miðað við gengi í Kauphöll í gær
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Hagnast um þrjá mill-
jarða á fyrsta fjórðungi
Niðurstaðan er undir væntingum greiningardeilda.
Vátryggingarstarfsemi Sjóvár skilar nú afgangi.
Greiningardeild Íslandsbanka
veltir því fyrir sér í Morgun-
korni sínu á mánudag hvort Ís-
lendingar séu í raun betur stæð-
ir en frændur þeirra í Noregi.
Það hlaut mikla athygli fyrir
skemmstu þegar olíusjóður
Norðmanna fór yfir þúsund
milljarða norskra króna að
verðmæti en samkvæmt út-
reikningi greiningardeildarinn-
ar jafngildir það um 2,3 milljón-
um íslenskra króna á hvern
Norðmann. Olíusjóðurinn á að
standa undir eftirlaunagreiðsl-
um þegnanna en hér á landi er
enginn slíkur sjóður starfrækt-
ur. Hér standa hins vegar lífeyr-
issjóðirnir mjög vel að vígi í
samanburði við flest önnur
lönd.
Eignir íslenskra lífeyrissjóða
um áramótin námu tæplega þús-
und milljörðum íslenskra króna.
Það jafngildir 3,4 milljónum
króna á hvern Íslending.
Þar sem Norðmenn hafa ekki
safnað í sjóði til að eiga fyrir líf-
eyrisgreiðslum framtíðarinnar
þarf oliusjóðurinn að duga. - þk
Íslandsbanki er orðinn tíundi
stærsti banki Norðurlandanna að
markaðsvirði samkvæmt tölum
frá Bloomberg. Bankinn var met-
inn á 2.079 milljónir evra við lok
síðasta ársfjórðungs. Þetta er í
fyrsta skipti sem bankinn kemst
á þennan lista en fyrir var KB
banki sem er kominn í 8. sæti.
Markaðsvirði KB banka var á
sama tíma 4.434 milljónir evra.
Sem fyrr trónir Nordea, sænski
risabankinn, í fyrsta sæti. Mark-
aðsvirði hans var 22.272 milljónir
evra.
Markaðsvirði Íslandsbanka
hækkaði um rúm 30 prósent á
fyrstu þremur mánuðum ársins.
- eþa
Frá áramótum hafa tvö félög í
Kauphöllinni staðið upp úr hvað
varðar mestu viðskipti. Þetta eru
Íslandsbanki og KB banki. Velta
hvors félags fyrir sig var yfir 60
milljarðar króna við lokun mark-
aða á mánudag. Íslandsbanki hef-
ur vinninginn eins og staðan er
nú en velta hans var um 67 millj-
arðar króna en KB banki stóð í 61
milljarði. Landsbankinn kom svo
í þriðja sæti með 26 milljarða
veltu, FL Group í fjórða (16 millj-
arðar) og Burðarás í því fimmta
(14,7 milljarðar). - eþa
Íslandsbanki og KB banki:
Hafa mikla yfirburði í veltu
Íslendingar standa vel:
Ríkari en Norðmenn?
Undrast þolinmæði
stofnfjáreigenda
Pétur H. Blöndal telur að stofnfjáreigendur í
Sparisjóði Hafnarfjarðar geti jafnvel fengið
meira en tvo milljarða ef reksturinn er í lagi
Einn frægasti fjárfestir heims, hinn ungverksættaði George Soros,
hóf sinn starfsferil í breska bankanum Singer & Friedlander, sem KB
banki er að kaupa þessa dagana. Fluttist hann til London árið 1947, þá
sautján ára gamall, og nam við London School of Economics. Er Sin-
ger & Friedlander oft minnst í þessu samhengi enda Soros goðsögn
margra í lifandi lífi. Þykir það ekki skemma fyrir
orðstír bankans að hafa gefið Soros fyrst tækifæri í
fjármálaheiminum.
Soros varð þekktur um allan heim þegar vogun-
arsjóður hans hagnaðist um 985 milljónir doll-
ara í einum viðskiptum þegar breska pundið
gengisféll árið 1992. Soros veðjaði á að þetta
myndi gerast þvert á það sem boðað hafði verið
og uppskar eftir því. Talið er að ef þetta hefði
ekki gengið eftir hefði það þýtt gjaldþrot Soros.
– bg
Pétur H. Blöndal, alþingismaður
og fyrrverandi stjórnarmaður í
SPRON, er undrandi á því hvað
stofnfjáreigendur vítt og breitt
hafa mikið langlundargeð og skil-
ur ekki þolinmæði stofnfjáreig-
enda í Sparisjóði vélstjóra sem
höfnuðu tillögu stjórnar á aðal-
fundi sjóðsins um að rýmka heim-
ildir til að kaupa og eiga stofnfé.
Það hefði leitt til þess að myndast
hefði markaður með stofnbréfin
og þeir stofnfjáreigendur, sem
það vildu, hefðu getað selt. Hann
telur að viðbrögð stofnfjáreigenda
í Sparisjóði Hafnarfjarðar séu af-
leiðing þess að menn vilji fá fjár-
muni fyrir bréfin sín eins og gerð-
ist í SPRON.
Pétur er ekki frá því að þær
verðhugmyndir sem heyrst hafa
um Sparisjóð Hafnarfjarðar séu
nærri lagi en stofnfé 47 stofnfjár-
eigenda hefur verið verðlagt á tvo
milljarða. Eigið fé sparisjóðsins er
um þrír milljarðar. „Það er aldrei
hægt að meta verðmæti stofnfjár
sparisjóðs á við eigið fé hans
vegna alls kyns kvaða um út-
greiðslu arðs og atkvæðatakmark-
ana en tveir milljarðar gæti verið
nærri lagi. Verðið gæti jafnvel
orðið hærra ef reksturinn er í
góðu lagi,“ segir Pétur. - eþa
Í ÖÐRU SÆTI Næstmest er verslað með
hlutabréf í KB banka það sem af er ári.
HEILDAREIGNIR YFIR 1.000 MILLJÖRÐUM Bjarni Ármannson, forstjóri Íslandsbanka.
Banki Land Virði*
1. Nordea Svíþjóð 22.272
2. Danske bank Danmörk 15.052
3. SHB Svíþjóð 12.672
4. DnBNOR Noregur 10.548
5. SEB Svíþjóð 10.318
6. Foreningssparbanken Svíþjóð 9.373
7. Sampo Finnland 6.337
8. KB banki Ísland 4.434
9. Skandia Svíþjóð 4.024
10. Íslandsbanki Ísland 2.079
* Markaðsvirði (í evrum)
ÍSLANDSBANKI Á TOPP TÍU Íslandsbanki var 10. stærsti banki Norðurlanda við marslok
en virði hans var þá 30 prósentum hærra en við byrjun árs.
Íslandsbanki gerir strandhögg
Orðinn 10. stærsti
banki Norðurlanda
S T Æ R S T U B A N K A R
N O R Ð U R L A N D A N N A
Þ A N N 3 1 . M A R S 2 0 0 5
Soros byrjaði í Singer
GEORGE SOROS Hefur verið kall-
aður konungur vogunarsjóðanna.
Landsbankinn 4.385
KB banki 3.470
Hagnaður 3.038
í milljónum króna
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
S P Á U M A F K O M U
Í S L A N D S B A N K A