Fréttablaðið - 04.05.2005, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Eign forsætisráðherra í Skinney-Þinganesi:
Eignarhlutinn 83 milljóna
króna virði
Á dögunum fjallaði Markaðurinn um eignarhluta
Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í horn-
firska útgerðarfyrirtækinu Skinney-Þinganesi. Var
hluturinn metinn á 50 milljónir króna út frá innra
virði félagsins. Landsbankinn sendi frá sér tilkynn-
ingu í gær um að síðustu viðskipti með félagið hefðu
farið fram á genginu 5,5. Forsætisráðherra á um
fimmtán milljónir hluta að nafnverði sem
meta má á 83 milljónir króna ef haft er til
hliðsjónar gengi í síðustu viðskiptum með fé-
lagið. - eþa
Sparisjóður Svarfdæla skilar góðum afkomutölum:
Hagnaðurinn nærri þrefaldast
Norðurá í Borgarfirði er fyrsta laxveiðiáin sem
Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) opnar.
Verður það 1. júní næstkomandi. Lax-á opnar
fyrst Blöndu 5. júní og Veiðiþjónustan Strengir
opnar allar sínar laxveiðiár 1. júlí.
Leigutakar segja sölu veiðileyfa fara vel af
stað í ár og bestu árnar séu þegar uppseldar.
„Það hefur gengið vel að selja veiðileyfi.
Meira hefur verið selt nú í ár en á sama tíma í
fyrra. Einnig hefur þar hjálpað til að við opnuð-
um vefsölu á heimasíðu okkar mun fyrr en á síð-
asta ári,“ segir Páll Þór Ármann, framkvæmda-
stjóri SVFR.
Harpa Hlín Þórðardóttir, framkvæmdastjóri
sölusviðs Lax-ár, tekur undir með Páli. Laxveiði-
menn séu greinilega fyrr á ferðinni eftir gott lax-
veiðisumar í fyrra.
Þröstur Elliðason hjá Strengjum segir Hrúta-
fjarðará eftirsóttasta hjá sér. Veiðileyfin þar séu
löngu uppseld. Hjá SVFR eru Krossá, Svartá og
Leirvogsá löngu uppseldar. Harpa segir að Mið-
fjarðará, Blanda og Rangárnar séu vinsælastar.
Öll segja þau breytilegt hvernig verð veiði-
leyfa hafi þróast milli ára. Páll segir að verð á
leyfum hafi í mörgum tilfellum ekki hækkað um-
fram verðlagshækkanir. Dýrastar séu ár eins og
Norðurá, Hítará og Laxá í Kjós þar sem boðið er
uppá góða þjónustu.
Harpa segir að í flestum ám hafi orðið eðlileg
vísitöluhækkun. Dýrast sé að veiða í Laxá á
Ásum og er þá boðið upp á fulla þjónustu á besta
tíma. Snemm- og síðsumars sé verðið mun lægra.
Þröstur segir Hrútá vera dýrasta af þeim ám
sem hann bjóði veiðileyfi í. Hækkun leyfa sé
mismikil milli ára. Litlar hækkanir hjá honum
undanfarin ár kalli á meiri hækkanir nú. – bg
Laxveiðimennirnir
keppast um árnar
Bestu laxveiðiárnar eru löngu uppseldar. Norðurá opnar
um næstu mánaðamót, fyrst áa sem SVFR hefur á leigu.
Hækkanir í takt við verðlagsþróun, segja leigutakar.
Burðarás er á leiðinni út úr Sin-
ger&Friedlander (S&F) eftir að KB
banki gerði formlegt yfirtökutilboð
í breska bankann. Burðarás á um
9,5 prósenta hlut í S&F sem hann
eignaðist í ágúst í fyrra og er næst-
stærsti eigandinn í S&F á eftir KB
banka. Gera má ráð fyrir að
Burðarás hagnist ágætlega á þess-
ari fjárfestingu en tilboðið er rúm-
um fjórðungi hærra en meðalkaup-
verð Burðaráss á sínum tíma. Hlut-
ur þessi var metinn í bókum félags-
ins á 5,1 milljarð króna um áramót-
in en er nú um 6,4 milljarða virði.
Kaupin vöktu athygli á sínum
tíma, enda hafði KB banki komið
sér þægilega fyrir í breska bank-
anum. Burðarás húkkaði sér far og
veðjaði á að KB banki myndi taka
yfir S&F.
Gengishagnaður af þessum við-
skiptum er líklega um einn millj-
arður króna þegar tekið hefur ver-
ið tillit til styrkingar krónunnar
gagnvart pundinu. - eþa
SKJALASKÁPAR
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF
Sundaborg 3 • sími 568 4800
www.olafurgislason.is
SKJALAPOKAR OG MILLIMÖPPUR
-og allt á
sínum
stað!
PÚSSA STANGIR SÍNAR OG VÖÐLUR Aukin eftirspurn eftir laxveiði hefur drifið veiðimenn áfram í að taka frá stangir í góðum ám á kom-
andi laxveiðisumri.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
G
un
na
r
Sparsjóður Svarfdæla á Dalvík
átti góðu rekstrarári að fagna á
síðasta ári og nærri þrefaldaðist
hagnaðurinn á milli ára. Hagnað-
ur sjóðsins nam um 184 milljón-
um króna og var arðsemi eigin
fjár yfir 40 prósent. Sparisjóður-
inn seldi bréf í KB banka og
myndast við það um eitt hundrað
milljóna króna gengishagnaður.
Heildareignir sjóðsins voru í
árslok 2004 um 2.754 milljónir
króna og eigið fé um 620 milljón-
ir.
„Þetta var fjarskalega gott ár.
Við eigum mikið af hlutabréfum
sem skiluðu miklum tekjum en
einnig var hefðbundinn rekstur
góður,“ segir Friðrik Friðriksson
sparisjóðsstjóri. Um 150 aðilar
eru stofnfjáreigendur í Spari-
sjóði Svarfdæla og fá þeir um 35
prósent arð af stofnfé.
Markaðurinn greindi frá því á
dögunum að Sparisjóður Mýra-
sýslu hefur áætlanir um að sam-
eina Sparisjóði Ólafsfjarðar og
Siglufjarðar. Aðspurður um sam-
einingarmál segir Friðrik. „Við
erum tilbúnir til að stækka og
sameinast hverjum sem er.“ - eþa
FRÁ DALVÍK Sparisjóður Svarfdæla skil-
aði góðum hagnaði og hárri arðsemi eigin
fjár á síðasta ári. Hagnaður nam um 180
milljónum króna.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA
Landsbankinn segir að síðustu viðskipti með Skinney-
Þinganes hafi farið fram á genginu 5,5.
Burðarás græðir
einn milljarð
HÚKKUÐU SÉR FAR Stjórnendur Burðaráss, Friðrik Jóhannsson og Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, ættu að vera sáttir með stærstu fjárfestingu Burðaráss í Bretlandi