Fréttablaðið - 04.05.2005, Síða 36
Stöðugt áreiti í formi símhring-
inga, tölvupósts og smáskilaboða
hefur ekki aðeins truflandi áhrif
á vinnu heldur dregur það bein-
línis úr hæfileika fólks til að
leysa úr verkefnum.
Ný rannsókn, sem sagt er frá í
New Scientist, leiðir í ljós að
greindarvísitala manna lækkar
um tíu stig þegar þeir eru í um-
hverfi þar sem þeir verða fyrir
stöðugu áreiti í formi tölvupósts
og símhringinga. Gildir einu
hvort þeir svari símanum eða lesi
tölvupóstinn. Það að vita af áreit-
inu er nóg til þess að lækka
greindarvísitöluna.
Borinn var saman hæfileiki
manna til að leysa þrautir annars
vegar í venjulegu skrifstofuum-
hverfi og hins vegar í algjörri
kyrrð.
Í rannsókninni kom í ljós að
heimska karlmanna eykst helm-
ingi meira en heimska kvenna
þegar áreitið er til staðar.
Niðurstaðan er áhugaverð
meðal annars í ljósi þess að ný-
lega var gerð sambærileg rann-
sókn þar sem tilraunadýr voru
fengin til að leysa þrautir undir
áhrifum kannabisefna. Sú rann-
sókn leiddi í ljós að greindarvísi-
tala lækkar um fimm stig þegar
menn eru undir slíkum áhrif-
um. – helmingi minna
en þegar þeir eru
undir stöðugu upp-
lýsingaáreiti í venjulegu
skrifstofuumhverfi. - þk
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 MARKAÐURINN8
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Þórlindur Kjartansson
skrifar
Skoðanakannanir og ýmiss konar viðhorfskannan-
ir meðal almennings og afmarkaðra hópa geta ver-
ið uppspretta verðmætra upplýsinga. Í stjórnmál-
um er fylgst grannt með því hvernig viðhorf al-
mennings til manna, málefna og flokka breytist og
í verslun og viðskiptum eru slíkar kannanir ekki
síður mikilvægar.
Um áratugaskeið hafa símakannanir verið tald-
ar áreiðanlegasta tækið til þess að meta skoðanir
fólks á hinum ýmsu málum. Nú kann hins vegar að
verða breyting þar á og netið að taka við.
„Það sem hefur verið meginvandamálið við net-
kannanir er stjórnun á úrtakinu. Það er svo mikið
lykilatriði að það hefur komið vondu orði á net-
kannanir yfirleitt. Ef þú hefur ekki stjórn á úrtak-
inu þá veistu ekki hvað þú hefur í höndunum,“ seg-
ir Hafsteinn Már Einarsson hjá IMG Gallup.
Við framkvæmd skoðanakönnunar er ákaflega
mikilvægt að þess sé gætt að hópurinn sem svarar
sé mjög líkur því sem almennt gerist – með öðrum
orðum að úrtakið sé handahófskennt. Þetta er
miklum mun mikilvægara heldur en að úrtakið sé
stórt. Það er til dæmis ekki talið að mikið sé að
marka kynlífskannanir Durex-smokkafyrirtækis-
ins, sem gerðar eru á netinu og vekja mikla at-
hygli, þótt gríðarlegur fjöldi svari spurning-
um fyrirtækisins á heimasíðu þess. Ástæð-
an er sú að ekki er talið líklegt að þeir sem
heimsækja heimasíðu Durex séu dæmi-
gerðir fyrir allan almenning.
Til þess að tryggja að könnun endurspegli
viðhorf alls almennings þarf ekki aðeins að
tryggja að úrtakið sé handahófskennt heldur þurfa
að berast svör frá hópi sem einnig endurspeglar al-
menning. Miðað hefur verið við að símakannanir
séu áreiðanlegar ef sjötíu prósent af heildarúrtak-
inu svara en á síðustu árum hefur orðið stöðugt
erfiðara að ná sambandi við fólk og því hefur svar-
hlutfallið lækkað. „Við sjáum að það eru hópar sem
er erfiðara að ná í. Fólk er mikið erlendis og er
ekki mikið heima hjá sér,“ segir Hafsteinn.
Vegna þessarar þróunar er nú unnið að því að
nálgast fólk með öðrum hætti. Art Schalk, hjá
Outcome.is sem meðal annars selur hugbúnað til
skoðanakannana, segir að nú sé svo stór hluti Ís-
lendinga nettengdur að útsendir spurningalistar á
tölvupósti séu raunhæfur möguleiki. Nýlega gerði
Reykjanesbær samning við Outcome um þjónustu
sem felur meðal annars í sér að kannanir verða
gerðar á netinu til að leiðbeina bæjaryfirvöldum í
ákvarðanatöku.
Art segir að vissulega séu annmarkar á net-
könnunum. „Svarhlutfallið hefur lækkað í síma-
könnunum og almenningur virðist vera tilbúinn að
taka þátt í rafrænum könnunum. Með þróun þess-
arar tækni getur hún orðið jafngóð og símakannan-
ir,“ segir hann.
Hafsteinn Már segir að hjá IMG Gallup hafi
einnig átt sér stað þróun í þá átt að gera kannanir á
netinu sem gefi jafn áreiðanlegar niðurstöður og
símakannanir.
Skoðanakannanir
að færast yfir á netið
Símakannanir hafa um áratugaskeið verið taldar besta
leiðin til að mæla skoðanir og viðhorf fólks. Netkannanir
hafa slæmt orð á sér en vera má að þær séu framtíðin.
Rifist um Darwin og
uppruna tegundanna
Íhaldsmenn í Bandaríkjunum vilja ekki að börn-
um sé kennt að dýr hafi þróast heldur að þau
hafi birst fullsköpuð á jörðinni.
Stjórnendur fyrirtækja sem und-
irbúa ferðamannaiðnað í geimn-
um eru sannfærðir um að brans-
inn muni vaxa stjarnfræðilega
strax á fyrstu árunum þegar al-
menningi verður boðið að kaupa
slíkar ferðir.
Burt Rutan, sem hannaði
SpaceShipOne, telur að eftir
rúman áratug muni yfir hundrað
þúsund manns kaupa geimferðir
sér til dægrardvalar. Ferðirnar
verða að öllum líkindum mjög
stuttar. Fólki verður skotið upp
og það upplifir þyngdarleysi í
nokkrar mínútur, fær mjög gott
útsýni yfir bláu plánetuna og
lendir skömmu síðar.
Stjórnendur fyrirtækja í
geimbransanum óttast þó að
stjórnvöld muni setja svo strang-
ar reglur um geimflug að slíkar
ferðir verði of dýrar til að þær
standi undir sér. - þk
HAFSTEINN MÁR EINARSSON IMG Gallup notast bæði við síma-
og netkannanir og vinnur að því að bæta áreiðanleika kannana á
netinu.
ART SCHALK Outcome.is framleiðir meðal annars hugbúnað sem
gerir notendum kleift að gera kannanir og býr yfir stóru safni af net-
föngum sem hægt er að nýta.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/E
.Ó
L
Yfirvöld menntamála í banda-
ríska fylkinu Kansas fara um
þessar mundir í saumana á því
hvort breyta skuli áherslum í vís-
indakennslu í skólum. Íhalds-
menn vilja margir að kennd verði
sköpunarsagan úr biblíunni frek-
ar en þróunarkenning Darwins.
Fyrir sex árum vakti það
mikla athygli þegar yfirvöld
skóla í fylkinu tóku ákvörðun um
að þróunarkenningin yrði alls
ekki kennd. Þess í stað yrði því
haldið fram að dýrategundur nú-
tímans hefðu sprottið fram full-
mótaðar í heiminn. Nú hafa
íhaldsmenn á ný náð meirihluta í
kennslumálanefnd fylkisins og
hyggjast taka til hendinni við að
hrekja þróunarkenninguna á
þingnefndarfundum.
Fjölmörg samtök vísinda-
manna hafa fengið boð um að
flytja vitnisburð fyrir nefndinni
en vísindamennirnir ætla ekki að
láta sjá sig. Þeir líta svo á að hug-
myndin um að kenna sköpunar-
söguna sé svo fjarstæðukennd að
engin þörf sé á að ræða hana
frekar – allra síst við íhaldssama
stjórnmálamenn sem vilja skoða
vísindin út frá trúarlegum for-
sendum. - þk
VORU RISAEÐLURNAR TIL Hörðustu
andstæðingar þróunarkenningarinnar
halda því fram að steingervingar risaeðla
séu einfaldlega blekking sem ætlað sé að
grafa undan sköpunarsögu biblíunnar.
Geimflugi spáð
miklum hæðum
Næsta kynslóð á Nokia símum hefur innbyggð-
an harðdisk sem getur geymt allt að fjórum
gígabætum af gögnum. Þetta er svipað
magn og á iPod mini spilaranum.
Gert er ráð fyrir að síminn verði kominn
á markað fyrir árslok en ásamt MP3 spilar-
anum verður síminn með innbyggðri mynda-
vél og margvíslegum skrifstofuhugbúnaði eins
og dagatali og utanumhaldi um tengiliði.
Fleiri símar úr N-línunni munu koma á markað í ár en
áætlanir Nokia gera ráð fyrir töluverðum vexti í sölu farsíma. - þk
Nokia símar með MP3
Leyndardómur um Gíbraltarapa:
Voru fluttir frá Afríku
Aðeins á einum stað í Evrópu lifa
apar í villtri náttúru. Þetta er á
grjótklettinum Gíbraltar við
mynni Miðjarðarhafsins. Vís-
indamenn hafa lengi velt vöngum
yfir uppruna þessara frænda
okkar mannfólksins en nú hafa
nýjar upplýsingar komið á dag-
inn.
Gíbraltar er bresk nýlenda og
gegndi mikilvægu hernaðarlegu
hlutverki í síðari heimsstyrjöld-
inni. Þá var aðeins vitað um þrjá
apa á svæðinu en samkvæmt hjá-
trú á svæðinu myndu Bretar
missa Gíbraltar ef aparnir dæju
út.
Til að bregðast við þessu tók
Winston Churchill forsætisráð-
herra Bretlands ákvörðun um að
láta flytja stóran hóp apa frá Al-
sír og Marokkó til Gíbraltar, enda
eru þar enn apar og ekki misstu
Bretar stjórn á klettinum í
heimsstyrjöldinni. - þk
APAR Á GÍBRALTAR Churchill lét flytja
apa á klettinn þar sem hjátrú sagði að Bret-
ar misstu Gíbraltar ef aparnir dæju út.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/N
or
di
cP
ho
to
s/
G
et
ty
Im
ag
es
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
DREGUR ÚR GREIND Mun erfiðara er að
leysa flókin verkefni undir áreiti frá síma og
tölvupósti heldur en í umhverfi þar sem al-
gjör kyrrð ríkir.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/N
or
di
c
Ph
ot
o/
G
et
ty
Im
ag
es
Tölvupóstur verri en hass
Stöðugt áreiti frá síma og tölvupósti lækkar greindarvisitölu meira en hass.