Fréttablaðið - 04.05.2005, Blaðsíða 40
Á upphafsárum hlutabréfamarkaðarins á
Íslandi léku sjávarútvegsfélög stórt hlut-
verk og voru vinsæll fjárfestingakostur.
Flest urðu útgerðarfélögin árið 1999 þegar
24 fyrirtæki voru skráð í Kauphöllinni.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan en
í dag eru aðeins þrjú hefðbundin sjávarút-
vegsfyrirtæki eftir í Kauphöllinni, HB
Grandi, Vinnslustöðin og Þormóður rammi
– Sæberg.
Í árslok 2003 voru fimmtán félög innan
vísitölu sjávarútvegs og nam mark-
aðsvirði þeirra um 75 milljörðum króna.
Nákvæmlega ári síðar hafði félögum í
vísitölunni fækkað í tíu en markaðsvirði
aukist um tólf milljarða króna. Þróunin
hefur verið félögum innan vísitölunnar
mjög óhagfelld á þessu ári. Hraðfrystistöð
Þórshafnar og Tangi hafa verið afskráð á
þessu ári og fljótlega bætist Samherji,
sem er 20 milljarðar að markaðsvirði, í
hópinn. Eftir í vísitölunni verða því Fisk-
eldi Eyjafjarðar, Fiskmarkaður Íslands,
HB Grandi, SH, SÍF, Vinnslustöðin og Þor-
móður rammi – Sæberg.
ÚR TÍSKU
Fjölmargar skýringar eru gefnar fyrir því
af hverju sjávarútvegur datt úr tísku sem
fjárfestingarkostur. Friðrik Már Baldurs-
son tók saman nokkra þætti sem skýra
áhugaleysi fjárfesta fyrir greininni og
kynnti á ráðstefnu Kauphallar Íslands um
sjávarútveg í nóvember síðast liðnum.
Hann nefndi meðal annars að lítill seljan-
leiki hlutabréfa fylgdi litlum félögum, arð-
semi sjávarútvegsfyrirtækja væri lág og
sveiflukennd, markaðsvirði hefði hækkað
mun minna en í öðrum geirum sem þættu
meira spennandi, sjávarútvegsfélög væru
á litlum vaxtarmarkaði en greiddu samt
lítinn arð og síðast en ekki síst sú pólitíska
umræða sem einkenndi fiskveiðistjórnun-
arkerfið.
Friðrik Már benti á að greinin sé háð
ýmsum þáttum sem takmarki aðgang og
vöxt hennar. Einstökum útgerðum er
óheimilt að fara yfir ákveðið hámark afla-
heimilda í hverri tegund, kvótaþak tak-
markar aðgang allrar greinarinnar að
fiskimiðunum og beinar erlendar fjárfest-
ingar eru óheimilaðar.
SLÖK ÁVÖXTUN
Hlutabréf í sjávarútvegsfyrirtækjum hafa
gefið minni ávöxtun en hlutabréf í öðrum
geirum. Um það verður ekki deilt. Frá
1999 til 2004 hækkaði vísitala sjávarút-
vegs um 12,1 prósent samanborið við 107
prósenta ávöxtun úrvalsvísitölu Kauphall-
arinnar
Ávöxtun á hlutabréfum í Samherja sýn-
ir glögglega að verðmyndun á bréfum í fé-
laginu hefur verið mun lægri en hjá öðrum
félögum í úrvalsvísitöluni. Samherji, sem
fór á markað fyrir átta árum, var skráður
á genginu um níu krónur á hlut en það
verð sem boðið er við núverandi yfirtöku
er 12,1.
Þegar forsvarsmenn Samherja til-
kynntu um yfirtökuna á félaginu nefndu
þeir að áhugaleysi fjárfesta og greiningar-
aðila væri ein helsta höfuðorsökin. Svo-
kallaðir stofnanafjárfestar eins og lífeyr-
issjóðir hafa sýnt greininni lítinn áhuga og
sett peninga í hlutabréf sem gefa hærri
ávöxtun. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, sagði á
aðalfundi félagsins í fyrravor að „þrátt
fyrir gríðarlega hagræðingu á undanförn-
um árum, með tilheyrandi áhrifum á ýms-
ar byggðir í landinu, er álit þeirra sem
teljast hafa vit á málunum að afkoma fyr-
irtækja í grein-
inni sé óviðun-
andi.“
Og þá kemur
að því af hverju
Samherjamenn
vilja fara af
markaði.
STJÓRNENDUR
SJÁ SÉR LEIK Á
BORÐI
Gagnvart stjórn-
endum og eig-
endum sjávarút-
vegsfélaga ligg-
ja mörg sjónar-
mið sem hafa
beinlínis hvatt þá til að taka félög af mark-
aði eða sameinast öðrum. Minnkandi áhugi
fjárfesta og lítil viðskipti með bréf félag-
anna eru ein skýring. Einnig hafa stjórn-
endur sumra félaganna metið það svo að
félögin væru of lágt verðlögð, að marks-
verði þeirra
væri stundum
langt undir upp-
l a u s n a r v i r ð i
þeirra. Með því
að selja afla-
heimildir í bút-
um fengist
hærra verð en
bókfært virði
kvótans. Þá hafa
ennfremur verið
kjöraðstæður til
að taka félög af
markaði vegna
hagstæðra lána-
m ö g u l e i k a ,
lágra vaxta og sterkrar krónu. Þörfin fyr-
ir félög að sækja sér hlutafé hefur vikið
fyrir ódýrara lánsfé.
Síðast en ekki síst hafa forsvarsmenn
sjávarútvegsfyrirtækja óttast óvinveittar
yfirtökur, það er að aðrir fjárfestar nái
völdum yfir félaginu og geri það sem þeim
sýnist. Því hafa menn í sumum byggðar-
lögum brugðið á það ráð að kaupa upp út-
gerðarfélagið til að halda yfirráðum yfir
því og halda kvótanum innan byggðarlags-
ins. Hinir svokölluðu „óvinir“ hafa þá ver-
ið bankar, fjárfestingarfélög eða önnur
sjávarútvegsfyrirtæki sem hafa séð færi á
því að eignast útgerðarfélagið, losa um
eignir þess og færa kvóta.
SKULDSETTAR YFIRTÖKUR
Gera má ráð fyrir að um 45 milljarðar
króna hafi verið notaðir til að kaupa upp
bréf smærri hluthafa við yfirtöku í sjávar-
útvegsfélögum frá árinu 2004 til þessa árs.
Eimskipafélagið fékk 19,5 milljarða fyrir
sinn snúð þegar það seldi Harald Böðvars-
son (HB), Skagstrending og ÚA í janúar
2004. Stærsta yfirtaka þessa árs stendur
nú yfir en það eru kaup stærstu hluthafa
Samherja á bréfum annarra hluthafa.
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 MARKAÐURINN12
Ú T T E K T
Ár Félag Áætluð upphæð* Tegund Kaupendur
2005 Samherji 8.942 Yfirtaka Fjárfestingafélagið Fjörður, Fjárfestingarfélagið Fylkir
2005 Hraðfrystistöð Þórshafnar 1.758 Yfirtaka Símatún ehf.
2005 Tangi 1.206 Samruni HB Grandi
2004 ÚA 9.000 Yfirtaka Tjaldur ehf.
2004 HB 7.800 Yfirtaka Grandi
2004 Þorbjörn Fiskanes 5.600 Yfirtaka ÓK-1 eignarhaldsfélag ehf.
2004 Skagstrendingur 2.700 Yfirtaka Fiskiðjan Skagfirðingur
2004 Hraðfrystihúsið Gunnvör 2.547 Yfirtaka YT ehf.
2004 Sílarvinnslan 2.034 Yfirtaka Samherji, Samv.f. Útg.m**, Snæfugl ehf., Gjögur ehf., Kaldbakur
2004 Eskja 1.967 Yfirtaka Hólmi ehf.
2004 Guðmundur Runólfsson 552 Yfirtaka G.R. útgerð ehf.
Samtals 44.106
* í milljónum króna ** Samvinnufélag útgerðarmanna
Y F I R T Ö K U R O G S A M R U N A R 2 0 0 4 - 2 0 0 5
Á fimmta tug milljarða króna hefur verið varið til
að yfirtaka og afskrá sjávarútvegsfélög frá árs-
byrjun 2004. Mikil skuldsetning stendur nýsköpun
í greininni fyrir þrifum. Eggert Þór Aðalsteinsson
fjallar um vanda sjávarútvegsfélaga á hlutabréfa-
markaði.
Kauphallarflaggskipin týna
80
75
70
65
60
55
50
A F L A V E R Ð M Æ T I Í M I L L J Ö R Ð U M K R Ó N A
M I Ð A Ð V I Ð V E R Ð L A G 2 0 0 4
1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
He
im
ild
: H
ag
st
of
a
Ís
la
nd
s
80
75
70
65
60
55
50
H L U T F A L L S J Á V A R A F U R Ð A
A F Ú T F L U T N I N G S V E R Ð M Æ T I 1 9 9 4 - 2 0 0 4
1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
He
im
ild
: H
ag
st
of
a
Ís
la
nd
s
ÚTVEGURINN
YFIRTEKINN
Ellefu félög hafa
verið yfirtekin
eða sameinast
frá ársbyrjun
2004. Yfirtakan á
ÚA var stærst
upp á níu millj-
arða en það er
svipuð upphæð
og stærstu eig-
endur Samherja
greiða fyrir félag-
ið.