Fréttablaðið - 04.05.2005, Qupperneq 41
Við yfirtöku eru félög skuldsett, eigið fé er
notað að hluta til kaupanna með því að auka
skuldir. Því hefur verið fleygt fram að eigið
fé þeirra sjávarútvegsfélaga, sem hafa verið
yfirtekin og afskráð á síðustu árum, hafi
minnkað um 30-40 milljarða króna. Ef það er
rétt hefur stór hluti af heildar eiginfé sjávar-
útvegsfyrirtækja horfið. Þetta á ekki ein-
göngu við félög sem tekin hafa verið af mark-
aði. Einnig hefur þessi þróun gerst hjá skráðu
félögunum sem eru á markaði. Skuldir
Granda jukust við sameininguna við HB og
Ráeyri, sem eignaðist nær helming hluta-
bréfa í Þormóði ramma – Sæberg og hefur
notað háar arðgreiðslur frá félaginu til að
borga af skuldum sem mynduðust við kaupin.
Aukin skuldsetning takmarkar nýsköpun og
fjárfestingar í grein sem þarf á tæknivæðin-
gu og nýsköpun að halda eins og allar aðrar
atvinnugreinar. Þessi þróun hlýtur að vekja
upp spurningar um hvernig íslensku sjá-
varútvegur muni þróast í harðri samkeppni
við aðrar fiskveiðiþjóðir.
ÓHEILLAÞRÓUN
Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður Þor-
móðs ramma – Sæbergs á Siglufirði, er
óhress með þá þróun sem orðið hefur á hluta-
bréfamarkaði en hann er þeirrar skoðunar að
sjávarútvegur eigi heima í Kauphöllinni.
Hann viðurkennir að afkoman sé sveiflu-
kennd og reksturinn háður mörgum ólíkum
þáttum sem erfitt geti verið að eiga við. Ró-
bert bendir á að gífurleg hagræðing hafi átt
sér stað í sjávarútvegi á undanförnum árum
og engin sé að biðja um aðstoð frá stjórn-
völdum. „Nú laga menn sig að þeim aðstæð-
um sem eru hverju sinni en biðja ekki um
gengisfellingu frá stjórnvöldum,“ segir
hann. „Ef þörf er á þá munum við hagræða
enn meira og hætta rekstri óarðbærra ein-
inga.“
Árni Vilhjálmsson, stjórnarformaður HB
Granda, er sama sinnis og vill ekki sjá sjáv-
arútveginn á leiðinni út úr Kauphöllinni.
Engin áform eru uppi um að afskrá Granda
að hans sögn.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar-
innar, hefur einnig lýst sams konar óánægju
en hefur ekki miklar áhyggjur af þeirri þróun
sem hefur átt sér stað með fækkun skráðra
fyrirtækja og gerir vonir um að sjávarút-
vegsfélög sæki aftur inn. Ekkert slíkt sé þó í
burðarliðnum
Valdimar Halldórsson, hjá greiningu Ís-
landsbanka, er hvorki sannfærður um að
sjávarútvegsfélögum muni fækka enn frekar
né fjölga. Afkoma sjávarútvegsins er mjög
háð ytri skilyrðum. Ef krónan veikist eins og
margir spá gætu aðstæður í greininni batnað
til muna, fyrirtækin myndu skila meiri hagn-
aði og verða vænlegri fjárfestingakostur.
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON,
FYRRVERANDI SKIPSTJÓRI Menn hafa
þungar áhyggjur af niðurskurði þorsk-
kvóta á næstu fiskveiðiárum. Hann trúir
því ekki að útreikningar fiskifræðinga
standist og vill stórefla líffræðirannsóknir
fiskistofnanna.
Neyðarfundur á
hverri bryggju
Guðmundur Halldórsson, fyrr-
verandi skipstjóri á Bolungar-
vík, hefur miklar áhyggjur af
stöðunni í sjávarútvegnum en
fyrirsjáanlegur er niðurskurð-
ur á kvóta, einkum þorskkvóta.
Hann er hræddur um að einnig
verði skorið niður við úthlutun
aflaheimilda á næsta ári. „Ég
fæ hringingar daglega frá íbú-
um á landsbyggðinni sem hafa
þungar áhyggjur af framtíð
byggðarlaganna. Það er neyðar-
fundur á hverri bryggju,“ segir
hann.
Hann gefur ekki mikið fyrir
útreikninga fiskifræðinga hjá
Hafrannsóknarstofnun og vill
að menn hætti að reikna en snúi
sér þess í stað að rannsóknum á
lífríkinu og áhrifum gífurlegra
loðnuveiða á það. „Við trúum
ekki þessum reiknilíkönum,
enda minna þau mann á söguna
um Sölva Helgason sem reyndi
að reikna barn í konu.“ - eþa
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 13
Ú T T E K T
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
FÉLÖGUM FÆKKAR 24 sjávarútvegsfélög voru skráð á markað árið 1999 en nú eru aðeins þrjú hefðbundin útgerðarfélög eftir. Í vísitölu sjávarútvegs eru sjö félög, Fiskeldi Eyjafjarðar,
Fiskmarkaður Íslands, HB Grandi, SH, SÍF, Vinnslustöðin og Þormóður rammi – Sæberg.
tölunni
SKINNEY SF 30
Bátur í eigu Skinney – Þinganess. Fyrir
1977 var meira en sextíu prósent af afl-
anum landað af bátum sem voru allt að
500 tonn. Bátar, sem reru með net, drag-
nót og línu, svipaðir og Skinney, voru
uppistaðan í skipaflota Íslendinga. Frá
1977 til 1982 lækkar þetta hlutfall hratt
eða um tíu prósent. Þá hélst hlutfall báta
í fiskveiðiflotanum nokkuð stöðugt en
jókst árið 1999.
Dragnóta- og netabátur
Smíðaár: 1964
Brúttórúmlestir: 176
Lengd í metrum: 35
Hestöfl: 800
Togkraftur (tonn) 10
BJARTUR NK 121
Bjartur er ísfisktogari Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað. Öflugri vél hefur verið sett
í skipið og það endurbætt töluvert eins
og flestir ísfisktogarar sem enn eru í
notkun. Skuttogurum fjölgaði mikið á
seinni helming síðustu aldar og var
fjölgunin mest árið 1973 þegar 22 nýir
togarar komu til landsins. Á milli 1972 og
1980 varð bylting í fiskveiðiflota lands-
manna.
Ísfisktogari
Smíðaár: 1973
Brúttórúmlestir: 461
Lengd í metrum: 47
Hestöfl: 2.413
Togkraftur (tonn) 30
ÞORSTEINN VILHELMSSON EA 11
Fjölveiðiskip í eigu Samherja og hefur
verið eitt fullkomnasta fiskiskip heims.
Áætlaður heildarkostnaður við smíði
þess er 1,8 milljarðar króna. Í áhöfn eru
14-28 manns eftir því á hvaða veiðum
skipið er. Með tilkomu frystitogaranna
jókst aflaverðmæti skipanna gríðarlega.
Sífellt stærri vélar gerðu skipin afkasta-
meiri, frystigetan jókst mikið og lestir
skipanna stækkuðu.
Frystitogari og nótaskip
Smíðaár: 2000
Brúttórúmlestir: 1.633
Lengd í metrum: 79
Hestöfl: 7.505
Togkraftur (tonn) 94
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/B
G
Sjávarútvegs- Úrvals-
vísitalan vísitalan
1999 12,1 47,5
2000 -30,8 -19,3
2001 16,3 -11,3
2002 23,8 16,7
2003 -6,8 56,4
2004 20,7 58,9
S A M A N B U R Ð U R Á
Á V Ö X T U N V Í S I T Ö L U
S J Á V A R Ú T V E G S O G
Ú R V A L S V Í S I T Ö L U N N I
1 9 9 9 - 2 0 0 4
Í þúsundum tonna
Loðna 524
Kolmunni 420
Þorskur 227
Síld 225
Ýsa 84
Ufsi 63
Karfi 48
M E S T V E I D D U
T E G U N D I R N A R 2 0 0 4
Þorskstofninn
minnkar aftur
Þorskstofninn minnkaði um sext-
án prósent milli áranna 2004 og
2005 samkvæmt stofnmælingu
Hafrannsóknastofnunar á botn-
fiskum á Íslandsmiðum. Er stofn-
inn metin álíka stór og árið 1990.
Stofnin óx á milli áranna 2001 til
2004 og er hér því um bakslag að
ræða.
Mæling á lengd þorsksins
bendir til að árgangar 2004 og
2001 séu mjög lélegir. Árgangur
2003 er frekar lélegur sam-
kvæmt mælingum en 2002 er
lengd þorskins nærri meðallagi.
Samkvæmt mælingum Hafró
var holdafar þorskins hins vegar
betra í ár en í fyrra og nærri
meðallagi ef litið er á tímabilið
frá 1997. Árin 1993 til 1996 var
holdafarið hins vegar betra.
Stofnvísitala ýsu hækkaði um
tuttugu prósent frá árinu 2004 og
var sú hæsta frá upphafi. Lengd-
armælingar benda til að árgang-
ur 2004 sé nærri meðallagi.
Hafrannsóknastofnun tekur
fram að aldursgreiningu fiska og
úrvinnslu gagna sé ekki lokið. Er
hér um bráðabirgðaniðurstöður
að ræða.