Fréttablaðið - 04.05.2005, Qupperneq 60
Í dag kemur út platan Leiðin heim
með tónlist saxófónleikarans Sig-
urðar Flosasonar. Þetta er fyrsta
plata Sigurðar í níu ár með frum-
samdri tónlist en á þeim tíma hef-
ur hann gert nokkrar plötur með
lögum annarra.
„Þetta hefur lengi staðið til en
ég hef haft margt að gera og því
ekki orðið af útgáfunni fyrr en nú,“
segir Sigurður. Og þó að ekki hafi
verið frumsamin tónlist á síðustu
plötum Sigurðar hefur hann lagt
eitt og annað til laganna. „Ég hef
fengið útrás því í þessum verkefn-
um höfum við félagar mínir farið
óvenjulegar leiðir í tónlist, bæði
með þjóðlega músík og sálma, og
má segja að meðferðin hafi nálgast
tónsmíðar á köflum. En það var
engu að síður löngu kominn tími á
frumsamda plötu og ég hef hugsað
um hana í tvö til þrjú ár.“
Sigurður segir lögin á Leiðinni
heim vera bæði hefðbundin og nú-
tímaleg í senn, frekar lagræn og
aðgengileg.
Og hann segir plötuna í beinu
framhaldi af fyrri plötunum með
frumsamdri tónlist. Þráður sé á
milli þó einhverjar breytingar og
þróun hafi orðið.
Á plötunni mætast þrjár kyn-
slóðir íslenskra djasstónlistar-
manna og segir Sigurður það hluta
af öllu saman. Pétur Östlund leikur
á trommur, Eyþór Gunnarsson á pí-
anó og Valdimar Kolbeinn Sigur-
jónsson á kontrabassa. „Við Eyþór
erum af sömu kynlsóð, Pétur er svo-
lítið eldri en við og Valdimar svo af
yngstu kynlsóð djassmanna.“
Djasslífið á Íslandi er í miklum
blóma og hefur svo verið síðustu ár.
Sigurður segir tónlistarskóla FÍH
ráða þar miklu um. „Það má segja
að þetta hafi verið stöðugt vaxandi
frá því að kynslóð okkar Eyþórs
kom fram en um svipað leyti tók
tónlistarskóli FÍH til starfa en hann
hefur haft gríðarleg áhrif á þessa
þróun.“ Sigurður hefur þar sitt að
segja því hann er aðstoðarskóla-
stjóri við skólann og yfirmaður
djassdeildar hans. „Jújú, ætli ég
beri einhverja ábyrgð á þessu
ásamt þeim frábæru kröftum sem
þar vinna,“ segir hann og hlær.
Beðinn um að setja sig í skáld-
legar stellingar og segja hvað
djassinn geri fyrir hann, segir Sig-
urður: „Djassinn er eins og önnur
músík, lifandi og spennandi. Allt
lífið kristallast í tónlist. Hún er
frábært afl sem gerir svo margt
fyrir fólk.“ Sigurður hefur ekki
tóm til að halda sérstaka útgáfu-
tónleika, en vonast til að af því geti
orðið með haustinu. ■
Hafnarfjarðarkirkja á 90 ára af-
mæli um þessar mundir og fagnar
tímamótunum með ýmsu móti.
Sunnudaginn 8. maí mun kór Hafn-
arfjarðarkirkju ásamt kammer-
sveit halda tónleika. Á dagskrá eru
ýmis íslensk verk og kantöturnar
Jesu meine Freunde og Sicut Moses
eftir Buxtehude. Þá verður frum-
flutt verk eftir tónskáldið Óliver
Kentish, sem hann samdi sérstak-
lega fyrir kórinn.
Einsöngvarar að þessu sinni
verða Hlín Pétursdóttir sópran og
Davíð Ólafsson bassi. Í kammer-
sveitinni sem leikur undir eru Ant-
onia Hevesi, sem leikur á píanó og
orgel, Auður Hafsteinsdóttir og
Pálína Árnadóttir leika á fiðlur,
Brjánn Ingason leikur á fagott og
Bryndís Halla Gylfadóttir á selló.
Prestar við Hafnarfjarðarkirkju
eru séra Gunnþór Þ. Ingason og
séra Þórhallur Heimisson. Tónleik-
arnir hefjast í Hafnarfjarðarkirkju
klukkan 17 og aðgangur er ókeypis
og öllum opinn. ■
24 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
AUDREY HEPBURN
(1929-1993) fæddist á þessum degi.
Allt lífið kristallast í tónlist
TÍMAMÓT: NÝ PLATA MEÐ SIGURÐI FLOSASYNI
„Vanti mann hjálparhönd er gott að muna að
maður hefur tvær hendur. Aðra til að hjálpa
sjálfum þér en hina til að rétta öðrum.“
Audrey Hepburn er ein stærsta kvikmyndastjarna fyrr og síðar
og lék í klassískum myndum á borð við My Fair Lady og
Breakfast at Tiffany's.
timamot@frettabladid.is
TILKYNNINGAR
Már Hermannsson, bóndi
og íþróttakennari, Hlíðar-
vegi 15, Hvammstanga,
fagnar fertugsafmæli sínu í
félagsheimilinu Ásbyrgi á
Laugarbakka. Allir vinir og
vandamenn eru velkomnir
en húsið opnar klukkan 20.
Elísa Vilhjálmsdóttir, Heiðarhorni 1,
Keflavík, er sjötug í dag.
ANDLÁT
Hugrún Selma Haraldsdóttir, Huldubóli
1, Eyrarbakka, lést laugardaginn 30. apríl.
JARÐARFARIR
13.00 Gísli Jóhann Sigurðsson, raf-
virkjameistari, Bræðraborgarstíg
38, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju.
13.00 Halldór Guðjónsson, vélstjóri,
Bræðratungu 28, Kópavogi, verð-
ur jarðsunginn frá Digraneskirkju.
15.00 Rósa Guðrún Stefánsdóttir,
Hrafnistu, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
AFMÆLI
Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, leikkona, er 65 ára.
Roar Kvam,
tónlistarmaður, er 61 árs.
Ingólfur Margeirsson,
rithöfundur og sagnfræði-
nemi, er 57 ára.
Gestur Einar Jónasson,
leikari og útvarpsmaður, er
55 ára.
Ólafur Hauksson,
upplýsingafulltrúi Iceland
Express, er 52 ára.
Benedikt Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Heims
og Talnakönnunar, er
fimmtugur.
Móeiður Júníusdóttir,
tónlistarkona, er 33 ára.
Borgar Þór Einarsson,
lögfræðingur, er þrítugur.
Árni Þór Vigfússon,
athafnamaður, er 29 ára.
SIGURÐUR FLOSASON Leiðin heim heitir nýja platan hans sem kemur út í dag.
Þennan dag árið 1980 lést Josip
Broz Tito, leiðtogi Júgóslavíu, 88
ára að aldri.
Tito var bóndasonur og hlýddi
snemma kalli kommúnismans.
Vegur hans til metorða í
Júgóslavíu fór vaxandi í seinni
heimsstyrjöld þegar hann leiddi
andspyrnuhreyfingu gegn nasist-
um og stuðningsmönnum þeirra.
Hann hrakti Þjóðverja úr landi
með aðstoð Stalíns og lýsti sjálf-
an sig leiðtoga Júgóslavíu. Ólíkt
flestum öðrum Austur-Evrópuríkj-
um þurfti Júgóslavía ekki að sæta
hersetu Rússa til lengri tíma, sem
gaf Tito nokkurt svigrúm til at-
hafna. Eftir lok seinni heimsstyrj-
aldar fór samskiptum hans og
Stalín hrakandi. Stuðningur Titos
við gríska kommúnista fór í taug-
arnar á Stalín sem hafði komist
að samkomulagi við Breta um að
láti Grikki afskiptalausa. Stalín
vildi að ríki á áhrifasvæði Sovét-
ríkjanna fylgdu sér að málum í
einu og öllu og árið 1948 sleit
hann á öll tengsl við Júgóslavíu.
Viðbrögð Tito voru að leita efna-
hags- og hernaðaraðstoðar
Bandaríkjamanna sem hann fékk,
því Bandaríkjamenn litu á þetta
sem tækifæri til að splundra
áhrifasvæði Sovétríkjanna.
Þótt Tito færi eigin leiðir í mörgu
var hann engu að síður trúfastur
marxisti og rak stefnu sína eftir
því allt til dauðadags árið 1980.
JOSIP BROZ TITO
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1581 Sir Frances Drake lýkur sigl-
ingu sinni í kringum heim-
inn.
1803 Bjarni Bjarnason og Stein-
unn Sveinsdóttir eru
dæmd til dauða fyrir að
myrða maka sína árið áður.
Morðin eru yfirleitt kennd
við Sjöundá á Rauðasandi.
1850 Los Angeles er lögformlega
stofnuð sem borg.
1880 Jón forseti Sigurðsson og
Ingibjörg Einarsdóttir eru
lögð til hinstu hvíldar.
1945 Ungverjaland er frelsað úr
haldu nasista.
1948 Hvalstöðin í Hvalfirði tekur
til starfa.
1964 Lag Bítlanna Can't Buy Me
Love fer á toppinn á
breska vinsældarlistanum.
1990 Stöð tvö, Sýn og Bylgjan-
Stjarnan ákveða að sam-
eina rekstur sinn.
Josip Broz Tito deyr
Tilkynningar um merkisatburði,
stórafmæli, andlát og jarðarfarir
í smáletursdálkinn hér að ofan
má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
550 5000.
Lokað
Öllum vinnustöðum okkar verður
lokað í dag frá kl. 14.00,
miðvikudaginn 4. maí, vegna
útfarar Jörundar Kristinssonar.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
Ingólfur Pálsson
rafvirkjameistari, Réttarheiði 4, Hveragerði,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði laugardaginn
30. apríl síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 7. maí kl. 13.30.
Steinunn Runólfsdóttir
Guðrún Ingólfsdóttir Pétur Benediktsson,
Þórður Ingólfsson Málfríður Mjöll Finnsdóttir
og barnabörn.
HAFNARFJARÐARKIRKJA Fagnar 90 ára afmæli með ýmsu móti.
Hafnarfjarðarkirkja 90 ára:
Afmælistónleikar á sunnudag