Fréttablaðið - 04.05.2005, Qupperneq 64
28 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR
KÖRFUBOLTI Það er nóg að gera hjá
efnilegasta körfuboltafólki lands-
ins þessa daganna þrátt fyrir að að
körfuboltatímabilinu hér heima sé
formlega lokið, því framundan er
Norðurlandsmót unglinga í körfu-
bolta sem fer fram í Stokkhólmi
og hefst í dag.
Íslensku krakkarnir flugu út í
morgun og keppa sína fyrstu leiki
í kvöld. Það er ljóst að það verður
erfitt að toppa árangur síðasta
vors þegar íslensku landsliðin
komu heim með þrjár Norður-
landameistaratitla af fjórum
mögulegum og skildu hinar Norð-
urlandaþjóðirnar eftir gapandi
yfir því hvernig litla þjóðin í
norðri væri gæti tekið þrjú gull á
einu og sama mótinu. Að þessu
sinni má búast við að stóru ná-
grannarnir ætli að sýna og sanna
styrk sinn.
Brynjar leikjahæstur
Ingi Þór Steinþórsson þjálfar
18 ára landslið karla en 18 ára
landsliðið náði öðru sætinu undir
hans stjórn fyrir tvemur árum.
Reykjavíkurfélögin Fjölnir (4) og
KR (3) eiga flesta menn í tólf
manna hópnum en Brynjar Þór
Björnsson úr KR er leikjahæstur
með 25 leiki og ætti að öllu eðli-
legu að jafna leikjamet Gunnars
Einarssonar sem lék 30 landsleiki
í drengja- og unglingalandsliðinu.
Brynjar er auk þess einn af sex
leikmönnum sem urðu Norður-
landameistarar með 16 ára liðinu í
fyrra en aðeins einn nýliði er í
hópnum, Skagamaðurinn Vésteinn
Sveinsson.
Ágúst Björgvinsson þjálfar 18
ára landslið kvenna en Ísland hef-
ur ekki náð að vinna leik í þessum
árgangi undanfarin tvö ár en það
má búast við það breytist í ár enda
liðið sterkt og vann meðal annars
A-landsliðið í æfingaleik fyrir
mótið.
Átta leikmenn liðsins urðu
Norðurlandameistarar með 16 ára
liðinu í fyrra og sex koma úr liði
Hauka sem endaði í öðru sæti á
óopinberu Norðurlandamóti fé-
lagsliða í vetur þar sem fyrirliðinn
Helena Sverrisdóttir, körfuknatts-
leikkona ársins í 1. deild kvenna,
var valin besti leikmaður mótsins.
Helena er leikjahæst í liðinu með
38 leiki fyrir yngri landsliðin en
Keflvíkingurinn María Ben Er-
lingsdóttir kemur næst með 33
leiki. Aðeins einn nýliði er í hópn-
um, Sigrún Ámundadóttir úr
Haukum.
Njarðvíkurstrákarnir sterkir
Einar Árni Jóhannsson þjálfar
16 ára landsliðið en hann gerði 18
ára landsliðið að Norðurlanda-
meisturum í fyrra. Fimm leik-
menn komu úr hinum geysisterka
1989-árgangi úr Njarðvík sem hef-
ur ekki tapað leik í fjögur ár og
varð tvisvar óopinber Norður-
landameistari félagsliða á Scania
Cup 2003 og 2004. Tveir leikmenn
Njarðvíkurliðsins, Hjörtur Hrafn
Einarsson og Ragnar Ólafsson
hafa verið valdir Scania-kóngar
sem bestu leikmenn síns árgangs.
Hjörtur Hrafn og Þröstur Leó Jó-
hannsson úr Keflavík urðu Norð-
urlandameistarar með 16 ára lið-
inu í fyrra og eru þeir einu sem
eiga landsleiki að baki. 16 ára
landslið karla hefur unnið 8 af 10
leikjum sínum á Norðurlandamóti
unglinga síðustu ár og það eru
bundnar væntingar til strákanna í
liðinu nú enda mynda þeir sterkt
lið
Hlynur Skúli Auðunsson þjálf-
ar 16 ára landslið kvenna sem hef-
ur það stóra verkefni að fylgja á
eftir Norðurlandameistaratitli 16
ára liðsins í fyrra. Skúli er kominn
með mikla reynslu af þessu Norð-
urlandamóti enda á leiðinni út
þriðja árið í röð. Stærsti hluti liðs-
ins kemur úr þremur liðum,
Grindavík (4), Haukum (3) og
Hamri/Selfoss (3) en aðeins einn
leikmaður hefur leikið landsleiki
áður en það er Njarðvíkingurinn
Margrét Karla Sturludóttur sem
varð Norðurlandameistari með 16
ára landsliðinu í fyrra.
Norðurlandamótið hefst í dag
og stendur fram á sunnudaginn
þegar úrslitaleikir um sæti fara
fram. ooj@frettabladid.is
LANDSLIÐIN FJÖGUR Í SVÍÞJÓÐ Hér má sjá alla 48 leikmenn íslensku unglingalandsliðanna sem verða í eldlínunni á Norðurlanda-
mótinu í Svíþjóð sem hefst í kvöld. Fyrir ofan eru 18 ára landsliðin og fyrir neðan eru 16 ára landsliðin. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR Ó. JÓNSSON
Þrír NM-titlar að verja í Svíþjóð
Traustur tækjabúnaður
Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur
Sími 535 3500 · Fax 535 3509
www.kraftvelar.isValtara Jarðvegsþjöppur Malbikunarvélar Fræsarar
• Sverrir Kristinsson segir sögur m.a. af Einari prentara
• Myndagetraun - gestir spreyta sig á að þekkja veiðistaði
• Veiðisögur - Páll Magnússon lætur nokkrar góðar flakka
• Veiðistaðalýsing - Stóra Laxá I og II
í umsjón Lofts Atla Eiríkssonar
• Vísubotnakeppni
• Bjarni töframaður galdrar og sprellar
• Happahylurinn hefur sjaldan verið pakkaðri
og er nú í boði Veiðihornsins.
Föstudaginn 6. maí
Opið hús
hjá SVFR
Nýju „stelpurnar“ í skemmtinefndinni
Veitingar á vægu verði og heitt á könnunni.
Húsið opnar klukkan 20.00
Fjögur unglingalandslið eru á leiðinni á Norðurlandamót unglinga í körfubolta sem hefst í Stokkhólmi í kvöld. Íslensku
keppendurnir munu freista þess að verja þrjá titla frá síðasta móti.
Reynir Stefánsson ráðinn þjálfari handboltaliðs KA til næstu tveggja ára:
Ákveðin viðurkenning fyrir mig
HANDBOLTI Reynir Stefánsson sem
hefur verið aðstoðarmaður Jó-
hannesar Bjarnasonar hefur verið
ráðinn þjálfari KA til næstu
tveggja ára. Ásamt því að vera að-
stoðarmaður Jóhannesar undan-
farin 3 ár þá hefur Reynir þjálfað
2. flokk félagins með góðum ár-
angri.
Fréttablaðið náði tali af Reyni
og spurði hann hvort þetta væri
ekki viðurkenning fyrir það góða
starf sem hann hefur unnið fyrir
félagið.
„Þetta er vissulega ákveðin
viðurkenning fyrir mig, það er
ekki hverjum sem er hleypt hér
að. Ég er búinn að þjálfa síðan ég
var 16 ára og unnið með mönnum
eins og Heimi Ríkharðssyni, Guð-
mundi Guðmundssyni og Atla
Hilmarssyni og ég tel mig í stakk
búinn fyrir þetta starf.“
Reynir sagðist enn fremur ekki
búast við miklum breytingum á
leikmannahópi liðsins.
„Það er komið á hreint að það
verða allir leikmenn liðsins áfram
og það er mikið ánægjuefni og svo
stefnum við á að styrkja liðið um
2-3 leikmenn fyrir næsta vetur og
þar er örvhent skytta efst á for-
gangslistanum,“ sagði Reynir
Stefánsson nýráðinn þjálfari KA.
- gjj
Jónatan Magnússon:
Leikmenn
mjög sáttir
HANDBOLTI Fréttablaðið náði tali
af fyrirliða KA, Jónatani
Magnússyni, en hann hefur
ákveðið að skrifa undir nýjan
samning við KA enda mjög
ánægður með nýja þjálfarann.
„Það er bara formsatriði að
ganga frá samningnum og ég
mun skrifa undir fljótlega,“
sagði Jónatan glaður í bragði í
gær. „Leikmenn eru verulega
ánægðir með þessa ráðningu og
voru í raun að vonast til þess að
Reynir yrði ráðinn enda topp-
maður þar á ferð sem við
treystum fullkomlega.“
REYNIR TEKINN VIÐ KA Aðstoðarmaður Jóhannesar Bjarnasonar, Reynir Stefánsson,
hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari handboltaliðs KA.