Fréttablaðið - 04.05.2005, Page 68

Fréttablaðið - 04.05.2005, Page 68
Sýningin á verkum Dieters Roth, sem verður á Listahátíð Reykjavík- ur nú í vor, hefur vakið töluverða at- hygli nú þegar fyrir utan landstein- anna. Sagt er frá sýningunni á for- síðu nýjasta heftis hins virta lista- tímarits ArtReview og umfjöllun um sýninguna er á tveimur opnum inni í blaðinu. Greinin um Dieter Roth er eftir Jessicu Morgan, sem er sýningar- stjóri ásamt Birni Roth, syni Diet- ers. Á forsíðu blaðsins og inni í því er myndin Keller-Duo og á annarri opnu eru myndirnar Floor, Gólf og Reykjavík Slides. Á síðasta ári var stór yfirlitssýn- ing á verkum Dieters Roth í nútíma- listasafninu Museum of Modern Art í New York. Að hluta til eru sömu verk á sýningunni í Reykjavík, en hér verður þó lögð meiri áhersla á tengsl Roths við Ísland, en hér á landi bjó hann lengi vel allt frá sjötta áratug síðustu aldar. Þessi stóra yfirlitssýning á verk- um Roths er stærsta verkefni Lista- hátíðar í ár. Hún verður haldin á þremur stöðum dagana 14. maí til 21. ágúst í sumar, í Listasafni Ís- lands og Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, og einnig í sýningar- sal Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta er í fyrsta sinn sem Lista- safn Reykjavíkur og Listasafn Ís- lands standa saman að slíku stór- virki en verkin sem verða til sýnis eru um 400 talsins og koma frá Þýskalandi, Spáni og Hollandi. Meðal þess sem sýnt verður eru nokkrar af þekktustu innsetningum listamannsins, bókverk, grafísk verk og málverk. Meðal annarra alþjóðlegra lista- manna sem taka þátt í sýningunni eru Fischli & Weiss og meðlimir Dieter Roth akademíunnar. Boekie Woekie bókabúðin mun hafa bækur Dieters Roth a boðstólum og auk þess setja upp söludeild í tengslum við sýninguna. ■ 32 4. maí 2005 MIÐVIKUDAGUR EKKI MISSA AF… ... útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands sem verður opnuð á Kjar- valsstöðum á laugardaginn. Þar verða sýnd verk nemenda úr myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild skólans. ... málþingi um Jean Paul Sartre sem haldið verður á Akur- eyri á laugardaginn í tilefni þess að Sartre hefði orðið hundrað ára á þessu ári. ... heljarmikilli kántríhátíð sem verður haldin á Grand Rokk á föstudags- og laugardagskvöld. Þar koma fram íslenskar hljóm- sveitir sem helga sig kántrítónlist af óhefðbundnu tagi. Lúðrasveit Reykjavíkur heldur sína árlegu vor- tónleika í Neskirkju í kvöld undir stjórn Lárus- ar Halldórs Grímssonar. Á þessum tónleikum syngur Andrea Gylfadóttir nokkur lög með sveitinni. Efnisskráin verður öll í líflegri kantinum, en þar á meðal eru syrpur með lögum Stevie Wonder og Blood Sweat and Tears hópsins, básúnueinleiksverkið Poeme a la Carte þar sem einleikari er Sigurbjörn Ari Hróðmarsson og Anna Lilja Karlsdóttir leikur einleik í verki Antonio Carlos Jobims Wave. Undanfarin ár hefur Lúðrasveit Reykjavíkur gengið í gegnum mikla endurnýjun. Á meðan eldri meðlimir hafa verið að hverfa af vett- vangi einn og einn hafa ungir félagar fyllt skörðin og er aldursbreiddin nú allt frá 11 ára upp í 78 ára. Lárus Halldór hefur leitt Lúðrasveit Reykjavíkur frá 1998 og hefur tekist vel að leiða saman þessar tvær ef ekki þrjár kynslóðir, þannig að tónlistarlegur árangur hefur verið með afbrigð- um góður og yngri sem eldri hljómsveitar- meðlimir hafa fengið að njóta sín og haft mikla ánægju af starfinu. Kl. 12.00 Bergþór Pálsson baritónsöngvari verður gestur Antoniu Hevesi píanóleikara á síðustu hádegistónleikum vetrarins í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Þau ætla að flytja vorljóð úr ýmsum áttum og nefna tónleikana „Vorið kemur að hugga“. menning@frettabladid.is Lúðrasveit í endurnýjun Forsíðufrétt í listheiminum ! Sunnan yfir sæinn breiða... Vortónleikar Kyrjanna í Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 5. maí kl. 17:00 Á efnisskrá eru lög eftir Burt Bacharach, Atla Heimi og dægurlög úr ýmsum áttum Stjórnandi: Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir Píanóleikari: Halldóra Aradóttir Miðaverð er kr. 1300. Frítt fyrir börn yngri en 12 ára. STÓRA SVIÐ DRAUMLEIKUR e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ. Fö 6/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20, Fö 27/5 kl 20 Síðustu sýningar HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir Vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20 Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 7/5 kl 20, Lau 21/5 kl 20, Lau 28/5 kl 20 - Síðustu sýningar KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Fi 5/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 7/5 kl 14 - UPPS. Su 8/5 kl 14 - UPPSELT, Lau 14/5 kl 14, Su 22/5 kl 14 - UPPSELT PURPURI - TÓNLEIKAR FABULU Margrét Kristín Sigurðardóttir Fi 12/5 kl. 21:00 NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN TERRORISMI e. Presnyakov bræður Fi 5/5 kl 20, Fi 12/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Mi 4/5 kl 20 - UPPS., Fi 5/5 kl 20 - UPPS., Fö 6/5 kl 20 - UPPS., Lau 7/6 kl 20 - UPPS., Su 8/5 kl 20, Fi 12/5 kl 20 - UPPS., Fö 13/5 kl 20 - UPPS., Lau 14/5 kl 20 Fi 19/5 kl 20, Fö 20/5 kl 20 SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA Fi 12/5 kl 20 - Aukasýning RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ e. Önnu Reynolds. Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS. Lau 7/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20 - Síðustu sýningar Börn 12 ára og yngri fá frítt í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna - gildir ekki á barnasýningar Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is • Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga 8. maí kl. 20 - 4. sýn 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 Ath. Aðgangur ókeypis Apótekarinn eftir Haydn Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands DIETER ROTH Á FORSÍÐUNNI Sýning Listahátíðar Reykjavíkur á verkum Dieters Roth er forsíðuefni ArtReview. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 1 2 3 4 5 6 7 Miðvikudagur MAÍ ■ ■ FYRIRLESTRAR  16.15 Loftur Guttormsson, pró- fessor í sagnfræði við Kennarahá- skóla Íslands, flytur fyrirlestur undir yfirskriftinni Barnakennarar á Ís- landi 1910-1940 í félagsfræðilegu ljósi. Fyrirlesturinn verður haldinn í Skriðu, fyrirlestrarsal Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. ■ ■ FUNDIR  20.30 Í kvöld fer af stað ný starf- semi í Hinu húsinu. Forma er sam- vinna tveggja einstaklinga á batavegi eftir átröskun á alvarlegu stigi. Í boði eru 10 vikna hópmeðferðir án end- urgjalds fyrir 18 ára og eldri. Þetta verður haldið á miðvikudagskvöld- um. ■ ■ SAMKOMUR  17.00 Ritlistarhópur Kópavogs efnir til ljóðahátíðar í Café Borg, Hamraborg 10, í tilefni af fimmtíu ára afmæli Kópavogsbæjar.  21.00 Spunakvöld verður í Klink & Bank. Undirbúningsfundur verður að þessu sinni hluti af formlegri dagskrá og verður þar með partur af gern- ingnum. Eftir hlé er ferlið endurtekið. Aðgangur ókeypis.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.