Fréttablaðið - 20.05.2005, Qupperneq 12
12 20. maí 2005 FÖSTUDAGUR
Íslendingar hafa verið
gjafmildastir á stig til ná-
granna sinna í Eurovision
gegnum tíðina. Finnar
þiggja hins vegar flest
stig frá hinum Norður-
löndunum en gefa minnst
til baka.
Samsæriskenningar um kosn-
ingabandalög í Söngvakeppni
evrópskra sjónarpsstöðva lifa
góðu lífi á hverju ári þegar líða
tekur að keppninni og einnig
eftir að henni lýkur. Það þykir
almenn vitneskja að Norður-
löndin gefi hvert öðru stig og
sigur vinningslandsins er oft
skrifaður á vináttubönd þess við
önnur lönd, gagnkvæm loforð
um atkvæði eða jafnvel ástandið
í heimsmálum. Þar að baki ligg-
ur þó aðeins mat áhugamanns-
ins, eða hvað?
Í nýlegri BA-ritgerð í stjórn-
málafræði reynir Íris Davíðs-
dóttir að varpa ljósi á kosninga-
hegðun í söngvakeppninni. „Á
hverju byggjast ríkjabandalög?
Kosningahegðun einstakra ríkja
í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva,“ er heiti ritgerðar-
innar. Þar skoðar Íris sögu
Norðurlandanna, Grikklands og
Kýpur, Austurríkis og Þýska-
lands, og skoðar stigagjöf milli
þeirra. Hún lagði af stað með þá
tilgátu að kosningahegðun ríkja
í söngvakeppninni byggðist á
breytum eins og landafræði,
menningu og sögu og sameigin-
legum hagsmunum ríkjanna.
Í stuttu máli má segja að
rannsókn Írisar hafi stutt til-
gátu hennar. Öll Norðurlöndin
hafa til að mynda gefið hvert
öðru og þegið meira en 19 pró-
sent stiga sinna. Finnar hafa
fengið mest frá hinum Norður-
löndunum eða tæp 40 prósent
stiga sinna en gefið minnst til
baka. Íslendingar hafa hins veg-
ar verið gjafmildastir og gefið
nágrönnum sínum 32 prósent
allra stiga sinna á árunum 1993
til 2003.
Þá kemur í ljós mjög náið
samband milli Kýpur og Grikk-
lands í stigagjöf en hins vegar
skera Austurríki og Þýskaland
sig úr þar sem lítið samband er
milli þeirra þjóða í stigagjöf.
Íris vill lítið spá fyrir um úr-
slit keppninnar í ár enda sé
alltaf undantekning á reglunni
og ekki alltaf sem kosninga-
bandalögin hafi úrslitaáhrif.
„Það er það sem gerir þessa
keppni skemmtilega,“ segir Íris
sem segir í ritgerð sinni að það
eina sem flestir telji öruggt í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpstöðva sé að Portúgal og
Finnland muni aldrei bera sigur
úr býtum.
solveig@frettabladid.is
ÁRIÐ 2003 VORU 190 MYNDBANDA-
LEIGUR Á ÍSLANDI.
Heimild: Hagstofan.
SVONA ERUM VIÐ:
„Hann verður bara eðlilegur
fram eftir degi,“ segir Hugrún
Harðardóttir um síðasta dag
sinn sem fegurðardrottning Ís-
lands en í kvöld krýnir hún arf-
taka sinn. „Ég mæti bara í
vinnu klukkan tíu og hætti
svona um fjögur til að græja
kjólinn,“ segir Hugrún sem
vinnur á hárgreiðslustofu á Sel-
fossi og ætlar að skella sér
með vinkonu sinni á keppnina
í kvöld.
Hugrún segir það að vissu leyti
létti að afhenda kórónuna en
henni finnst skrítið að heilt ár
skuli vera liðið síðan hún var
sjálf krýnd. Þetta hafi þó verið
mjög lærdómsríkur tími og
þroskandi. Hún hefur ekkert út
á athyglina að setja sem hefur
beinst að henni á þessu ári
enda hafi hún aðeins fengið já-
kvæða umfjöllun.
Hugrún ætlar ekki að veita nýrri
drottningu nein sérstök ráð
enda segir hún að allir upplifi
tímann mismunandi. Í sumar
ætlar Hugrún að njóta þess að
vinna og fara í útilegur um
helgar. Í haust fer hún aftur í
skólann til að ljúka sveinsprófi
sínu og finnst lítið mál að keyra
daglega yfir Hellisheiðina. „Ég
held það sé miklu meira mál
fyrir fólk í Reykjavík að fara til
Selfoss en öfugt,“ segir Hugrún
hlæjandi.
Kr‡nir n‡ja drottningu í kvöld
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HUGRÚN HARÐARDÓTTIR FEGURÐARDROTTNING
„Mér finnst þetta nú eiginlega vera
barn síns tíma,“ segir Heiðar Kristjáns-
son, söngvari í hljómsveitinni Botn-
leðju, þegar hann er spurður að því
hvað honum finnist um fegurðarsam-
keppnir. „Ég er nú ekki hrifinn af svona
gripasýningum, þótt ég hafi að sjálf-
sögðu ekkert á móti fólkinu sjálfu sem
tekur þátt í þessu,“ bætir Heiðar við og
leggur áherslu á að fólkið sem taki
þátt í fegurðarsamkeppnunum sé ör-
ugglega að þessu í góðri trú.
Það hefur stundum verið sagt að ekki
sé hægt að keppa í fegurð og að því
leytinu til séu fegurðarsamkeppnir svo-
lítið skrýtnar. Heiðar tekur undir þetta
viðhorf. „Mér finnst fráleitt að keppa í
fegurð með þessum hætti. Það virðast
allir vera steyptir í sama form svo þetta
verður hálfmarklaust finnst mér,“ segir
Heiðar, sem hefur greinilega enga trú á
fegurðarsamkeppnum.
HEIÐAR KRISTJÁNSSON Söngvari
hljómsveitarinnar Botnleðju.
Ekki hrifinn af
gripas‡ningum
FEGURÐARSAMKEPPNIR
SJÓNARHÓLL
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
PORTÚGAL Ef marka má rannsókn Írisar
mun tvíeykið 2B ekki bera sigur úr býtum
enda tilheyrir Portúgal engu kosninga-
bandalagi.
RANNSAKAR EUROVISION Íris Davíðsdóttir skrifaði BA-ritgerð sína í stjórnmálafræði
um kosningahegðun einstakra ríkja í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Hyglum frændfljó›unum