Fréttablaðið - 20.05.2005, Side 16

Fréttablaðið - 20.05.2005, Side 16
16 20. maí 2005 FÖSTUDAGUR Fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch segir að raf- rænir miðlar sogi til sín æ meira af auglýsinga- tekjum dagblaðanna. Dagblöð verði að skilja hlutverk sitt sem frétta- veitur óháð gömlu leiðun- um til að dreifa fréttum á pappír. Rupert Murdoch, sem á og stýrir News Corporation, einni stærstu fjölmiðlasamsteypu veraldar, flutti nýverið bandarískum dag- blaðaritstjórum boðskap sinn um framtíð dagblaða. Murdoch sagði meðal annars að of margir rit- stjórar og blaðamenn væru ekki lengur í góðum tengslum við les- endur. „Það er engin furða að margir, einkum af yngri kynslóð- inni, segi skilið við dagblöðin. Fólk á þrítugs- og fertugsaldri kærir sig ekki lengur um að láta einhvern segja sér hvað máli skipti, hvað sé mikilvægt... Og það vill alls ekki fá fréttirnar matreiddar sem eitthvert fagn- aðarerindi.“ Murdoch kvað rit- stjóra og blaðamenn hafa sýnt einstaklega mikið andvaraleysi. Tímaritið Economist, sem fjallaði um erindi Murdochs ný- verið, segir að hugsanlega marki ræða Murdochs upphaf þess tíma þegar dagblöðin vöknuðu og fóru að gera sér grein fyrir veru- leika netbyltingarinnar og vildu í senn verða netvæn og netkæn. Murdoch gengur að því vísu að lesendum dagblaða fækki um heim allan og þar með minnki auglýsingatekjur þeirra. Sam- kvæmt upplýsingum Alþjóða dagblaðasambandsins, World Association of Newspapers, minnkaði dreifing dagblaða í Bandaríkjunum um 5 prósent á árunum 1995 til 2003. Á sama tíma fækkaði eintökum í umferð um 3 prósent í Evrópu og um 2 prósent í Japan. Á sjöunda ára- tugnum lásu fjórir af hverjum fimm Bandaríkjamönnum dag- blað á hverjum degi. Aðeins helmingur þeirra lítur daglega í dagblað nú. Frumbyggjar og innflytjendur í netheimum Netvæðingin er undanfari hnign- unar dagblaða. Með breiðbandi eykst burðargeta og hraði á net- inu. Rupert Murdoch telur að þetta breyti fjölmiðluninni á þann hátt sem eldri keppinautar dagblaðanna, útvarp og sjón- varp, gátu aldrei gert. Eldri kyn- slóðinni, sem Murdoch kallar innflytjendur í netheimum, hef- ur ef til vill sést yfir þetta. En unga fólkið, frumbyggjarnir í netheimum, fá fréttirnar í aukn- um mæli með leitarvélum á borð við Yahoo eða Google eða um aðrar gáttir veraldarvefsins. Nefna má bloggið, dagbókar- skrifin á vefnum. Meirihluti Bandaríkjamanna hefur ekki heyrt bloggið nefnt og aðeins 3 prósent lesa slíkt dag- lega. Um 44 prósent Bandaríkjamanna á aldrinum 18 til 29 ára eru aftur á móti tengd blogg- inu dag hvern. Bloggið er að- eins eitt þeirra tóla og tækja sem tiltæk eru til boðskipta á vefn- um. Wiki heitir vefsíðusamfélag á netinu þar sem notendur geta lagt til efni og ritstýrt því sjálfir. Þetta þykir eldra fólki, netheimainnflytjendum, hljóma líkt og stjórnleysi og óreiða. Eða þar til það heimsækir alfræði- vefinn wikipedia.org. Wikipedia vex með degi hverjum, einmitt með grasrótarsamstarfi fólks sem þekkist ekkert innbyrðis. Bloggfréttaþjónusta Litla kísilflöguspilara (iPod), sem tölvurisinn Apple hefur sett á markað, mætti kalla tónbelgi. Unnt er að fylla tónbelginn af tónlist og tappa af honum inn á tölvur eða netið þannig að aðrir geta nálgast tónlistarefnið. Með þessu móti er hægt að stunda tónbelgjavarp á netinu. Blogg með myndir sækir einnig í sig veðrið og myndbandablogg er að hefjast. Það er freistandi fyrir hefð- bundna miðla að gera lítið úr þessari þróun. Til dæmis er haft fyrir satt að megnið af netbloggi sé ekki þess virði að lesa það. Og það er í rauninni ekki lesið. Sama á reyndar við um hefðbundna miðla eins og dagblöð, segir Rupert Murdoch. Engu að síður leika bloggarar æ stærra hlutverk. Vinsælir og vand- aðir bloggararnir fá allt eins marg- ar heimsóknir á vefsíður sínar eins og þekktir fjölmiðl- ar fá. Norska Dagblaðið hefur sagt upp hartnær 90 manns vegna 12 pró- senta samdráttar í sölu og tap- reksturs. Fréttablaðið greindi frá þessum hremmingum í vikunni og gat þess jafnframt að Norska Dag- blaðið yrði að draga úr útgjöldum um einn milljarð króna fram til ársins 2007 og útibúum utan Oslóar yrði lokað. Spyrja má hvort öðruvísi sé ástatt á íslenskum dagblaðamarkaði en þeim norska. Menn muna trúlega stórt gjaldþrot gamla DV, strangr- ar göngu við að koma Fréttablað- inu á laggirnar, nýlegra þrenginga Morgunblaðsins og taprekstur og sölu á tímaritaveldinu Fróða. Listinn er lengri ef ljósvakamiðlar eru einnig taldir með. Kannanir benda til þess að dagblaða- lestur sé óvenju mikill hér á landi. Nærri lætur að þrír Íslendingar séu um hvert prentað eintak af Fréttablaðinu. Í Gallupkönnun, sem gerð var í apríl, kom á daginn að lið- lega 90 prósent aðspurðra höfðu lesið eitthvað í Frétta- blaðinu, 75 prósent höfðu lesið Morgunblaðið og nærri 44 prósent höfðu lesið eitt- hvað í DV þá viku sem könn- unin var gerð. Varla nema von að nýju dag- blaði, Blaðinu, sé ýtt úr vör. Vera má að það sé liður í annarri og stærri viðskipta- hugmynd, en útgáfufélag Blaðsins og Íslenska sjón- varpsfélagið, sem rekur Skjá einn, hafa nú fest kaup á útvarpsstöðv- unum KissFM og X-FM. Reyndar er út- gefendum mjög tíðrætt um 12 milljarða króna eða svo sem liggja í auglýsingum góðærisins. Svo mikið er víst að hræringum á litlum fjölmiðlamarkaði Íslendinga er ekki lok- ið. Við blasir úrvinnsla úr fjölmiðla- skýrslunni stóru og lagasetning í kjölfar þess. Endurskoðað frumvarp um Ríkis- útvarpið verður lagt fram að nýju á al- þingi í haust. Í millitíðinni verður búið að einkavæða og selja Símann. Búast má við að þá verði mynduð ný sam- steypa úr gagnaveitum félagsins og fjöl- miðla í einkarekstri. Í nafni hagkvæmn- innar. Svo mikið er víst að ef tölvan og netið verður ráðandi í fjölmiðlun framtíðar- innar verður jafnframt fýsilegt að eiga gagnaveitur sem upplýsingahafið streymir um. Og rukka fyrir notkunina. Hræringum ekki enn loki› á fjölmi›lamarka›i FBL. GREINING: GAGNAVEITUR, FJÖLMIÐLAR OG PENINGAR JÓHANN HAUKSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING FRÉTTAMIÐLAR FRAMTÍÐARINNAR Fjölmi›lavald fjöldans ÁSTRALSKI FJÖLMIÐLAJÖFURINN Rupert Murdoch á fjölmiðlasamsteypuna News Corporation. Hann segir fullum fetum að dagblöð- in verði eftirleiðis að skoða hlutverk sitt sem tæki til fréttaöflunar og fréttavinnslu ÍSLENSKU DAGBLÖÐIN Fjögur dagblöð eru á íslenska dagblaðamarkaðnum í dag.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.