Fréttablaðið - 20.05.2005, Síða 40

Fréttablaðið - 20.05.2005, Síða 40
28 20. maí 2005 FÖSTUDAGUR Nú er vorið ör- ugglega komið og sumarið, það er pottþétt á næsta leyti. Y n d i s l e g t gluggaveður, sól en skítkalt og all- ir með kvef á heimilinu. En kvefið tilheyrir árstíðaskiptunum. Sama má segja um skemmtilegasta við- burð ársins: Evróvisjón söngvakeppnina! Að sjálfsögðu ætla ég í partí helgað þeim stór- kostlega viðburði. Það tilheyrir líka þessum árs- tíma að leggjast í ferðalög innan- lands, því hvergi er skemmtilegra að ferðast en á Íslandi á sumrin. Ég tók forskot á sæluna með minni fjölskyldu síðustu helgi og við fór- um á einn af mínum uppáhalds- stöðum á landinu, Snæfellsnes. Við gistum í góðu yfirlæti á Hótel Hellnum í samnefndum bæ þar sem skemmtilegasta kaffihúsið á landinu er að finna, alveg við fjöruborðið. Einn af hápunktum ferðarinnar var svo súpuát á Hótel Búðum, úti á verönd í algjöru skjóli fyrir veðri og vindum – með útsýni beint á jökulinn. Það gerist ekki betra. Á Búðir hef ég ekki komið í mörg ár, ekki síðan enn mátti tjalda þar í túnfæti, en það var frábært að skoða með eigin augum hve vel hefur tekist til með nýja hótelið. Það er í raun ótrúlega gaman að skoða sig um á Snæfellsnesi, þar er að finna fallega náttúru, sögu- staði og sjarmerandi bæi. Víða á nesinu er gaman að ganga og svo spillir ekki fyrir að einnig er tölu- vert úrval af skemmtilegum veit- ingastöðum og kaffihúsum. Skortur á því síðastnefnda er mikill víða um land. Furðulegt finnst mér til að mynda að ekki sé huggulegt kaffihús í Borgarnesi. Mikil umferð ferðalanga ætti að geta tryggt því næg viðskipti. Þetta er reyndar frábær við- skiptahugmynd sem ég hér með færi athafnakonu eða -manni á silfurfati. Minni þann sama á að hafa til sölu kaffi til að taka með – þá eru viðskiptin gulltryggð! ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SIGRÍÐUR B. TÓMASDÓTTIR MÆLIR MEÐ SNÆFELLSNESI. Þar sem jökulinn ber við himin M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Og í meistarakeppninni í viðbjóðslegum mat höfum við hér ótvíræðan sigurvegara! Þú ert ruglaður. Þetta er þurrara en ávísanahefti og bragðast eins og ryk! Þetta er ógeðslegt! Pondus! Þarf ég að minna þig á það að það er fullt af fólki í heimin- um sem deyr úr hungri? Já, þá er best að ég borði þetta og þá lagast það allt! Meira fíflið. Fyrirgefðu mér, Palli! Svona viltu þá hafa það, Kiddi kuti! Þú þykist geta komið svona fram við mig! Ef þú svo rétt rífur í hárið á mér skaltu fá að finna fyrir því! Ég hefði kannski mátt velja orðin af meiri kostgæfni. Hvar er sykurpabbinn þinn?? Voff Ooo oohh ... Hæ elskan, það er gjörsam- lega ekkert að gera hér á *geisp* skrifstofunni...hvern- ig er þinn morgunn?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.