Fréttablaðið - 03.08.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 03.08.2005, Síða 2
2 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR SKAFTÁRHLAUP Hlaupið í Skaftá náði hámarki í gærmorgun en þá mældist rennslið við Sveinstind 720 rúmmetrar á sekúndu. Að sögn Sverris Óskars Elef- sen hjá Vatnamælingum Orku- stofnunar er því hlaupið orðið álíka hlaupunum 2000 og 2002 en mun stærra og meira en síð- asta hlaup, sem var 2003. Rennsli Skaftár við Kirkju- bæjarklaustur mældist rúmlega 114 rúmmetrar á sekúndu í gær- morgun en um miðjan dag náði það svo hámarki. Við Kirkju- bæjarklaustur hefur áin kvísl- ast og er því öllu minni en við Sveinstind. Ekki hefur ennþá gefist færi á að fljúga yfir Vatnajökul til að sjá úr hvorum katlinum hlaupið kemur og liggur það því á huldu að sögn Sverris Óskars. Oddsteinn Kristjánsson, bóndi í Hvammi, segir að áin hafi verið tilkomumest við tún- fótinn hjá sér um hádegi í gær en talsvert hafi dregið úr hlaup- inu seinnipartinn. Hann segir þó að þetta sé með minni hlaupum og segir þau fara minnkandi þó þetta hlaup skáki því síðasta. „Áður fór hún alltaf yfir veginn en hún hefur það ekki af leng- ur,“ segir Oddsteinn. - jse SVEITARSTJÓRNARMÁL Viðræðunefnd R-listaflokkanna kemur ekki saman í þessari viku eins og fyrirhugað var. Viðmælendur Fréttablaðsins í viðræðunefnd- inni segja að sumarleyfi og fjar- vera einstakra nefndarmanna komi í veg fyrir að fundur geti verið haldinn en búast má við að nefndin komi saman á þriðjudag- inn í næstu viku til að ræða framtíð R-listans. Forystumenn í viðræðunefnd- inni lýstu því yfir í Fréttablaðinu um þarsíðustu helgi að framtíð R-listans myndi skýrast um og eftir verslunarmannahelgina enda þyldi samstarfið ekki frek- ari bið þar sem hefja þyrfti kosn- ingaundirbúning flokkanna ef ekkert yrði af samstarfi R-lista- flokkanna. Viðmælendur Fréttablaðsins í viðræðunefndinni telja að næsti fundur geti ráðið miklu en verði ekki endilega sá síðasti. Enginn flokkanna þriggja þori að slíta viðræðunum enn sem komið er og allt kapp sé lagt á að reyna að koma listanum saman, ekki síst í kjölfar síðustu kannana sem sýni meirihluta Sjálfstæðisflokks í borginni. -hb Hafa meiri trú á Gísla Marteini Samkvæmt könnun Gallup telja 37 prósent Reykvíkinga a› Gísli Marteinn Baldursson sé líklegastur til a› lei›a sjálfstæ›ismenn til sigurs í borginni. Um 30 prósent telja Vilhjálm fi. Vilhjálmsson líklegastan. SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Sam- kvæmt nýrri viðhorfskönnun Gallup telja tæp 37 prósent borg- arbúa Gísla Martein Baldursson líklegastan til að leiða lista sjálf- stæðismanna til sigurs í næstu borgars t jórnarkosn ingum. Næstur kemur Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson með tæp 30 prósent. Auk þeirra mátti velja um Guð- laug Þór Þórðarson, Hönnu Birnu Kristjánsdóttir og Júlíus Vífil Ingvarsson, en 29 prósent aðspurðra töldu eitthvert þeirra sigurstranglegast. Í annari spurningu var aðeins spurt um þá tvo og hlaut Gísli 53,6 prósent en Vilhjálmur 46,4. Marktækur munur var á afstöðu kynjanna: Gísli naut fylgis 51 prósents karla og 56 prósenta kvenna en Vilhjálmur 49 pró- senta karla og 44 prósenta kvenna. Einar Örn Ólafsson, tals- maður aðstandenda könnunar- innar, segir að ekki hafi verið marktækur munur milli þeirra þegar tekið var tillit til aldurs eða hverfa. „Ég er auðvitað mjög þakklát- ur fyrir þetta traust,“ segir Gísli Marteinn. „Ég met það auðvitað mikils að Reykvíkingar skuli hafa trú á mér, sérstaklega þar sem ég er ekki búinn að lýsa yfir framboði í eitt né neitt. Mér finnst þetta líka hátt hlutfall miðað við að fólk þekkir mig að- allega af öðrum störfum en stjórn- málum, þótt vissu- lega sé ég bú- inn að vinna í þeim um n o k k u r t árabil.“ G í s l i Marteinn segist ekki ætla að gera það upp við sig strax hvaða sæti hann sækist eftir en hann segir engan hafa haft samráð við sig um gerð þessarar könnunar. „Ég er mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem þessi við- horfskönnun sýnir,“ segir Vil- hjálmur um útkomuna. „Á hinn bóginn er erfitt að lesa ákveðnar niðurstöður úr þessari könnun þar sem ekki er sérstaklega get- ið um afstöðu sjálfstæðis- manna.“ Hann segist vera harðá- kveðinn í að gefa kost á sér í fyrsta sætið í prófkjörinu og bendir á að fylgi flokksins hafi undir hans forystu farið úr fjöru- tíu prósentum í hátt í fimmtíu prósent. grs@frettabladid.is Tyrkneskur ferðamannabær: Níu slasast í sprengingu ANKARA, AP Níu slösuðust í gær þeg- ar tvær sprengingar urðu í ruslaföt- um í tyrkneska bænum Antalya, sem er vinsæll ferðamannastaður við strönd Miðjarðarhafsins. Lög- reglan gat í gær ekki staðfest hvort sprengingarnar hefðu orðið vegna sprengja eða hvort einhvers konar loftþrýstihylki hefði sprungið í hit- anum. Fyrri sprengingin varð um hálf þrjú að staðartíma, þegar verið var að tæma ruslafötu. Seinni spreng- ingunni varð tíu mínútum síðar. Kúrdar, íslamskir öfgahópar og vinstrisinnaðir öfgamenn hafa að undanförnu staðið fyrir sprenging- um á ferðamannastöðum í Tyrk- landi. ■ Lík níu barna í Þýskalandi: Mó›irin gefur sig fram FRANKFURT, AP Kona sem grunuð er um að hafa myrt níu nýfædd börn hefur staðfest að þetta hafi verið börn hennar. Hún segist ekki muna hvernig þau dóu. Konan, sem er 39 ára og hefur einungis verið nafngreind sem Sabine H., var handtekin á sunnu- dag. Hún er grunuð um manndráp eftir að lögregla fann lík níu barna í blómapottum í þorpi nálægt landa- mærum Póllands. Talið er að börnin hafi fæðst á árunum 1988 til 1999. Annette Bargenda, saksóknari í málinu, sagði í gær að konan segðist ekki muna hvernig börnin létust, þar sem hún hefði drukkið mikið á þessum tíma. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ÖLVUÐ Á HRINGBRAUT Kona á fimmtugsaldri var tekin á Hring- braut um þrjúleytið í gær grunuð um ölvun við akstur. Hún var flutt á næstu lögreglustöð til sýnatöku. TONY BLAIR John Burton segir Blair ætla að hætta á þingi. Kjörtímabil Tonys Blair: Hættir á flingi LONDON, BBC Þetta er síðasta kjör- tímabil Tonys Blair, ekki einungis sem forsætisráðherra heldur einnig sem þingmanns. Þetta er haft eftir John Burton, einum helsta vini og stuðningsmanni Blairs. Blair hefur þegar sagt að hann verði ekki forsætisráðherra á næsta kjörtímabili, sigri Verka- mannaflokkurinn aftur. Miklar vangaveltur hafa verið uppi um hvað Blair taki sér fyrir hendur og hafa störf innan Evr- ópusambandsins eða Sameinuðu þjóðanna helst verið nefnd. ■ SPURNING DAGSINS Hreimur, ertu sleginn? „Sleginn... og sterkari fyrir vikið.“ Hreimir Heimisson söngvari lenti í Árna Johnsen, sem sló til hans á sviðinu á Þjóðhátíð í Eyjum. Hvert eftirtalinna telur þú líklegast til að velta R-listanum úr sessi og leiða Sjálf- stæðisflokkinn til sigurs í næstu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík? Fjöldi Hlutfall% Vikmörk% Gísla Martein Baldursson 113 36,9 5,4 Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson 91 29,7 5,1 Guðlaug Þór Þórðarson 41 13,4 3,8 Hönnu Birnu Kristjánsdóttur 39 12,7 3,7 Júlíus Vífil Ingvarsson 22 7,2 2,9 Ekkert ofangreindra 183 29,1 Tóku ekki afstöðu 140 22,3 Fjöldi svarenda 629 100 Hvorn telur þú líklegri til að velta R-listanum úr sessi og leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í næstu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík? Fjöldi Hlutfall% Vikmörk Gísla Martein Baldursson 218 53,6 4,8 Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson 189 46,4 4,8 Fjöldi svarenda 629 SKAFTÁRHLAUP Veldi Skaftár var hvað mest í gærmorgun en svo dró úr því síðdegis. Hlaupið nú er svipað og það var árin 2000 og 2002. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Skaftárhlaupið er í rénun: Hlaupi› ná›i há- marki vi› Sveinstind VIÐRÆÐUNEFND R-LISTAFLOKKANNA Engin niðurstaða hefur fengist. Talið er að næsti fundur geti ráðið miklu framtíð R-listans. Engin niðurstaða komin í viðræðurnar um framtíð R-listans: Fyrirhugu›um fundi fresta› LÖGREGLUFRÉTTIR BÍLVELTA Á FLJÓTSHEIÐINNI Bifreið valt á þjóðveginum um Fljótsheiði á þriðjudagsmorgun en lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu um at- vikið um hálfáttaleytið. Bifreiðin skemmdist mikið og er jafnvel ónýt en bílstjórinn, sem var einn í bílnum, slapp með skrámur. 17 ÁRA Á 155 Sautján ára gamall piltur var mældur á 155 kíló- metra hraða á Reykjanesbraut í fyrrinótt, nærri Smáralind. Hann var einn í bílnum og hélt áfram ferð sinni. MEÐ FÍKNIEFNI Í BANKASTRÆTI Lögregla fann í gærkvöld lítið magn af fíkniefnum á manni sem var á gangi upp Bankastræti. Voru þau gerð upptæk, en maður- inn hélt áfram för sinni þótt hann virtist ölvaður. 02-03 2.8.2005 22:40 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.