Fréttablaðið - 03.08.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 03.08.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 63,98 64,28 113,39 113,95 78,17 78,61 10,476 10,538 9,959 10,959 8,341 8,389 0,5738 0,5772 93,39 94,95 GENGI GJALDMIÐLA 02.08.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 109,3156 4 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR Erilsamt hjá lögreglunni í Reykjavík um helgina: Átján fíkniefnamál í borginni LÖGREGLUMÁL Átján fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík um nýliðna verslunar- mannahelgi. „Þarna var um að ræða fólk á götunni, á skemmtistöðum og í heimahúsum,“ sagði Hörður Jó- hannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, sem sagði fjölda mála af þessum toga óvenjumikinn á ekki lengri tíma. Stór hluti þeirra fíkniefna sem lögreglan haldlagði var kannabis- efni, en einnig aðrar tegundir fíkni- efna. Flestir sem komu við sögu í málunum voru um tvítugt, en einnig var um eldra fólk að ræða. Hörður sagði að þennan fjölda mála á fjórum sólarhringum mætti að hluta til rekja til þess að lögregl- an hefði verið mikið á ferðinni um verslunarmannahelgina, bæði í miðborginni og úti í hverfunum. Hins vegar færi fíkniefnamálum sem kæmu til kasta lögreglu held- ur fjölgandi á milli ára. Mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík um helgina, af þessum sökum og öðrum, þótt fjöldi borg- arbúa hafi sótt útihátíðir víðs vegar um land. -jss HOUSTON, AP Geimfararnir í geim- ferjunni Discovery undirbjuggu í gær sögulegan viðgerðarleiðangur sem fer fram í dag. Stephen Robin- son, einn geimfaranna, fer undir geimferjuna til viðgerða, en slíkt hefur ekki verið gert áður. Reyna á að fjarlægja stykki sem skaga framan úr hitahlíf á ferjunni. Ef stykkin verða ekki fjarlægð segja sérfræðingar NASA að mikil hætta sé á ofhitnun þegar geimferjan kemur aftur inn í lofthjúp jarðar. Slík ofhitnun gæti leitt til þess að Discovery spryngi í loft upp, líkt og geimferjan Columbia gerði. Robinson verður komið fyrir á tæplega átján metra armi sem fé- lagar hans stjórna innan úr geim- ferjunni og færa þannig Robinson að þeim stað undir geimferjunni sem þarf að laga. Þar reynir hann að losa þau stykki sem standa út úr með handafli. Ef það virkar ekki þarf hann að nota sög sem búin var til í geimstöðinni til að saga stykkin af. Sögin var búin til úr sagarblaði, einangrunarlímbandi, frönskum rennilás og öðrum hlutum sem voru til taks í geimstöðinni. Á blaða- mannafundi í gær sagði Robinson að þetta væri mjög vandmeðfarið verkefni, en hann treysti sér til að leysa það. Ef þessar aðferðir virka ekki verða væntanlega aðrar tilraunir til viðgerða gerðar á fimmtudag eða föstudag. Hlé var gert á undirbúningi leið- angursins til að ræða við George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í síma. Þar þakkaði Bush geimförun- um fyrir að taka áhættu í þágu rannsókna. „Augljóslega, þegar þið undirbúið að snúa aftur, biðja margir Bandaríkjamenn fyrir öruggri heimkomu ykkar,“ bætti Bush við. Eileen Collins, sem fer fyrir áhöfn Discovery, svaraði því til að hún og áhöfnin öll tryði sterklega á geimleiðangra og rannsóknir á því hvað væri að finna í geimnum: „Þau skref sem við tökum nú eru því þess virði og við viljum að allir viti það“. Discovery verður við geimstöð- ina fram á laugardag og áætlað er að geimferjan snúi aftur til jarðar á mánudag. svanborg@frettabladid.is UM BORÐ Skipherra farþegaskipsins óskaði eftir því að æfing yrði haldin. Æfing í Sundahöfn: Sprengja í farflegaskipi ÖRYGGISMÁL Sprengjuæfing var haldin um borð í farþegaskipingu Seven Seas Navigator þegar það lá inni í Sundahöfn. Landhelgis- gæslan og Siglingastofnun tóku þátt í æfingunni ásamt áhöfn skipsins. Æfingin hófst á því að tilkynnt var um sprengjuhótun. Voru sprengjusérfræðingar Landhelg- isgæslunnar fluttir með þyrlu um borð í skipið, þar sem þeir eyddu sprengjunni. Ætlunin er að skipuleggja fleiri slíkar æfingar í framtíðinni. - grs VEÐRIÐ Í DAG Flug frá Eyjum: 500 töf›ust vegna ve›urs SAMGÖNGUR Tæplega 500 manns sem áttu flug til Bakka urðu strandaglópar í Vestmannaeyj- um á mánudag vegna veðurs, en flug hófst á ný um sexleytið á þriðjudagsmorgun. Búið var að flytja þá alla frá Eyjum um þrjúleytið í gær. Minni röskun varð á flugi til Reykjavíkur en flug lá niðri um tíma og þurftu fimmtíu að bíða fram á þriðjudag eftir flugi. Hundrað manns þáðu gistingu í íþróttamiðstöðinni í Eyjum og einnig var fjöldi fólks í flugstöð- inni yfir nóttina. - rsg HÖRÐUR JÓHANNESSON Lögreglan í Reykjavík var mikið á ferðinni um verslunarmannahelgina, bæði í mið- borgini og úti í hverfunum. SKEMMDIR Á DISCOVERY Líkt og með geimferjunni Columbia hefur frauðbútur sem féll af öðrum eldsneytistanki Discovery valdið skemmdum sem geta leitt til þess að geimferjan springi þegar hún snýr aftur inn í lofthjúp jarðar. Reyna einstaka vi›ger› á Discovery Gera á tilraun til fless a› laga skemmdir sem ur›u flegar geimferjunni Discovery var skoti› upp. Aldrei á›ur hefur geimfari veri› sendur undir geimferju á fer›. Kvennalisti stofnaður: Áhersla á fjöl- skyldumál STOKKHÓLMUR Sænsku kvenna- samtökin Feministiskt Initativ íhuga að stofan kvennalista og bjóða fram í næstu kosningum, að því er fram kemur á vefsíðu Sænska Dagblaðsins. Ákveðið verður hvort stofna eigi sér- stakan stjórnmálaflokk á árs- fundi kvennasamtakanna í næsta mánuði. Á meðal stefnumála flokksins verða kröfur um sex tíma vinnu- dag og einstaklingsbundinn rétt- ur foreldra til að ráðstafa fæð- ingarorlofi sínu. Ein af þeim sem leiða undir- búningshóp fyrir stofnun stjórn- málaflokksins er Gudrun Schyman, fyrrum leiðtogi vinstrimanna í Svíþjóð. Hún segir marga sænska kjósendur leggja áherslu á fjöl- skyldumál. ■ Landamæradeilur í Írak: Saka Kúvæta um olíustuld BAGDAD, AP Íraskir þingmenn ásökuðu Kúvæta í gær um að stela olíu Íraka og ræna af þeim landsvæði. Ásökunin, sem er svipuð þeim sem Saddam Hussein not- aði til að réttlæta innrásina í Kúvæt 2. ágúst 1990, kom í kjöl- far nokkurra minniháttar átaka við landamæri Kúvæts og Íraks. Sendinefnd Íraka fer til Kúvæts í dag til að ræða um ástand mála og segja báðir aðilar að vilji sé til að leysa deiluna á friðsamleg- an hátt. Jawad al-Maliki, formaður öryggis- og varnarmálanefndar íraska þingsins, sagði í gær að Kúvætar væru að koma fyrir lá- réttum olíudælum allt að kíló- metra innan við landamæri Íraks. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ÓK HÓPBIFREIÐ ÖLVAÐUR Töluvert var um ölvunarakstur á mánudag. Lögreglan á Húsavík stöðvaði öku- mann hópbifreiðar með tíu farþega fyrir ölvunarakstur. Ökumaðurinn var íslenskur en í bílnum voru níu erlendir ferðamenn. Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann sem var að koma af útihátíð fyrir ölvun- arakstur, einn var tekinn í Nes- kaupstað og lögreglan í Stykkis- hólmi tók alls sjö manns fyrir ölv- unarakstur um helgina. Einnig var mikið um hraðakstur á mánudag. 04-05 2.8.2005 22:23 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.