Fréttablaðið - 03.08.2005, Qupperneq 8
1Hvað heitir hinn nýi konungur Sádi-Arabíu?
2Umhverfisráðherra hvaða lands hefurfordæmt hvalveiðar Íslendinga?
3Hver sigraði í Formúlu 1 kappakstr-inum í Ungverjalandi um helgina?
SVÖRIN ERU Á BLS. 34
VEISTU SVARIÐ?
8 3. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Vegurinn að Dettifossi er illa farinn vegna mikilla þurrka:
Skelka›ir rútufarflegar
SAMGÖNGUR Tæplega 30 kílómetra
vegarkafli um Hólssand, frá Gríms-
stöðum á Fjöllum að Dettifossi, hef-
ur verið í óvenju slæmu ástandi að
undanförnu. Roswitha Finnbogason,
framkvæmdastjóri og bílstjóri Vík-
ingaslóða, segir ökumenn fólks-
flutningabifreiða neyðast til að aka
á 10 til 20 km hraða til að koma í veg
fyrir skemmdir á rútunum og það
dugi jafnvel ekki til. „Vegurinn er
skelfilegur og þvottabrettin hörð
sem steypa. Í síðustu viku tók það
mig 80 mínútur að aka 28 km leið og
þrátt fyrir að ég færi varlega voru
sumir farþeganna skelkaðir,“ segir
Roswitha.
Sigurður Oddsson, deildarstjóri
Vegagerðarinnar á Akureyri, segist
hafa heyrt að vegurinn sé mjög
slæmur. „Ég mun kanna ástand
hans í dag en geri ráð fyrir að mikl-
ir þurrkar hafi leikið hann illa en
um er að ræða gamlan og lélegan
veg. Mjög langt er að sækja heppi-
legt efni til lagfæringa og þar sem
umferð um veginn minnkar með
haustinu verður líklega ekki ráðist í
endurbætur í ár enda ekki til þess
fjárveitingar,“ segir Sigurður. - kk
Ferðamaður í Hörgárdal:
Tekinn á
ofsahra›a
LÖGREGLUMÁL Erlendur ríkisborg-
ari var sviptur ökuréttindum á
staðnum eftir að bifreið hans
mældist á 171 kílómetra hraða í
Hörgárdal á laugardagskvöld.
Farið var að skyggja en á þessum
slóðum er iðulega sauðfé í veg-
köntum. Fjórir farþegar voru í
bílnum.
Ökumaðurinn, sem er fæddur
árið 1982, var aðeins búinn að aka
á Íslandi í tvo daga.
Þess má geta að í heimalandi
hans er vinstri umferð en ekki
hægri eins og hér, svo að ofsaakst-
urinn hlýtur að teljast enn glæfra-
legri fyrir vikið.
- grs
DETTIFOSS Fjölmargir ferðamenn aka
að Dettifossi á sumrin en vegurinn er
nú í óvenjuslæmu ástandi.
Róið kringum landið:
Ætlar a› róa
í sólarhring
RÓÐUR „Nú er komin norðanátt og
þá fer ég að leggja í hann,“ segir
ræðarinn Kjartan Jakob Hauks-
son en hann hefur ekki komist frá
landi síðan hann lagði við Ingólfs-
höfða eftir erfiðan róður síðasta
fimmtudag. Síðan þá hefur gengið
á með suðaustan og suðvestan átt
og sjógangi.
Hann gerði ráð fyrir því í gær
að fara um nóttina eða nú í morg-
unsárið.
Útlit er fyrir að norðanátt hald-
ist næstu daga og hyggst Kjartan
nýta sér það en hann verður að
róa sleitulaust uns komið er að
Vík, þar sem ekki er heiglum hent
að komast að landi fyrr.
Það gæti orðið rúmlega sólar-
hrings róður. - jse
KJARTAN JAKOB Útlit er fyrir að norðanátt
haldist næstu daga og hyggst Kjartan
Jakob nýta sér það.
GRUNAÐIR UM ÁRÁS
Fjórir menn eru í haldi lög-
reglunnar grunaðir um
sprengjutilræðin 21. júlí.
MUKTAR SAID IBRAHIM, 27
ÁRA Grunaður um að skilja
eftir sprengjukubb í aftursæti
strætisvagns í Hackney hinn
21. júlí. Ibrahim fluttist frá Er-
ítreu í austurhluta Afríku til
Bretlands ásamt fjölskyldu
sinni árið 1992 og hlaut bresk-
an ríkisborgararétt í septem-
ber á síðasta ári. Ibrahim var
strangtrúaður múslími sem
gekk um í kufli og lét sér vaxa
skegg.
YASIN HASSAN OMAR, 24 ÁRA
Grunaður um sprengjutilræði
á Victoria-línunni nærri War-
ren Street-lestarstöðinni hinn
21. júlí. Omar kom tólf ára
gamall til Bretlands frá Sómal-
íu og hafði fengið leyfi til þess
að dvelja í Bretlandi. Omar
leigði íbúð með Muktar Said
Ibrahim, sem einnig er grunað-
ur um sprengjutilræði í borg-
inni sama dag. Hann var hand-
tekinn í Birmingham á mið-
vikudagsmorgun.
RANZI MOHAMMED Náðist á
mynd í farþegagöngum í Oval-
lestarstöðinni örfáum sekúnd-
um áður en hann yfirgaf stöð-
ina með því að stökkva yfir ör-
yggishlið. Hann er grunaður
um tilraun til sprengingar í
neðanjarðarlest nærri Oval-
stöðinni og var handtekinn í
vesturhluta Lundúna á föstu-
dagskvöld.
OSMAN HUSSAIN, 27 ÁRA
Grunaður um tilraun til
sprengjuárásar í Shepherd’s
Bush-lestarstöðinni og var
handtekinn á heimili bróður
síns í Róm hinn 29. júlí. Hussa-
in ferðaðist til Ítalíu 26. júlí og
hafði lögregla uppi á honum
með því að rekja símtöl úr far-
síma hans. Hussain er af
eþíópískum uppruna en er
breskur ríkisborgari.
LONDON, AP Gríðarleg öryggisgæsla
var í neðanjarðarlestum Lundúna í
gær þegar tvær leiðir, sem verið
hafa lokaðar síðan mannskæðar
hryðjuverkaárásir voru gerðar á
borgina hinn 7. júlí, voru opnaðar á
ný. Hundruð lögregluþjóna gættu
lestarstöðva borgarinnar í þeim til-
gangi að draga úr líkum á frekari
árásum.
Lögreglan lokaði í gær nokkrum
götum í miðborg Lundúna, eftir að
tilkynning barst um eld í strætis-
vagni 205 á Euston Road, nærri
King’s Cross-lestarstöðinni. Síðar
um daginn kom tilkynning frá lög-
reglunni um að eldurinn hefði lík-
lega kviknað vegna vélarbilunar og
engin sprenging hefði orðið. Ekki
urðu slys á fólki.
Hazel Blears, innanríkisráð-
herra Bretlands, fundaði í gær með
fulltrúum múslima en til stendur að
reyna að draga úr þeirri reiði ungra
múslima sem veldur því að þeir eru
tilbúnir til þess að framkvæma
árásir á borð við í síðasta mánuði.
Þá eru múslimar ósáttir við ónæði
sem þeir þurfa að þola vegna rann-
sóknar lögreglu en lögregla segir rannsókn mála ekki beinast gegn
kynþáttum heldur þeim sem talið er
að eigi aðild að málum.
Sautján manns voru í gær í haldi
bresku lögreglunnar í tengslum við
sprengjutilræðin 21. júlí. Þremur
var þó í gær leyft að fara en þeir
voru handteknir í áhaupum lög-
reglu vegna tilræðanna. Þá hafa
bresk stjórnvöld reynt að fá Osman
Hussain, sem grunaður er um til-
raun til sprengjuárásar á
Shepherd’s Bush-lestarstöðinni,
framseldan frá Ítalíu þar sem hann
var handtekinn fyrir helgina.
Framsal Hussains gæti þó tafist
þar sem hann sætir nú rannsókn
ítalskra yfirvalda sem beinist meðal
annars að hugsanlegum tengslum
verslunar bróður Hussains við al-
Kaída.
Hinir þrír sem grunaðir eru um
tilræðin eru í haldi bresku lögregl-
unnar og hefur breska dagblaðið
The Times eftir rannsóknarlög-
reglumönnum Scotland Yard að taf-
ir á framsali Hussains geti haft al-
varlegar afleiðingar fyrir rannsókn
hryðjuverkanna, sem beinist nú
fyrst og fremst að því að finna
tengsl milli hópanna sem stóðu að
hvorri árás. helgat@frettabladid.is
Vi›amikil öryggisgæsla
í ne›anjar›arlestunum
Hundru› lögreglufljóna gættu öryggis flegar tvær ne›anjar›arlestarlínur voru
opna›ar í gær á n‡ eftir árásirnar í Lundúnum 7. júlí. fiá loka›i lögregla
nokkrum götum í mi›borginni eftir a› tilkynning barst um eld í strætisvagni.
REYKUR Í STRÆTISVAGNI Lögregla brást fljótt við eftir að vart varð við reyk í strætisvagni
nærri King’s Cross-lestarstöðinni í Lundúnum í gær. Í ljós kom að reykurinn var af völdum
vélarbilunar.
HRYÐJUVERK Ekki hefur dregið úr
bókunum til Lundúna þrátt fyrir
ótta um að fleiri hryðjuverk verði
framin í kjölfar sprengju-
árásanna á borgina 7. og 21. júlí.
Ekki ber heldur á því að fólk af-
panti ferðir sínar eða breyti
ferðadagsetningum, að sögn Guð-
jóns Arngrímssonar, upplýsinga-
fulltrúa Flugleiða.
„Við höfum ekki séð neinar
merkjanlegar breytingar á bókun-
um til Lundúna,“ segir Guðjón.
Starfsmenn Icelandair hafi ekki
heldur orðið varir við að minni
ásókn sé í flug til London en
undanfarin ár.
Birgir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Iceland Express, tekur í
sama streng. „Farþegar til Lund-
úna hafa ekki verið að breyta far-
miðum sínum frekar en farþegar
til annarra áfangastaða okkar,“
segir Birgir. „Farmiðasala til
borgarinnar hefur einnig verið
góð miðað við árstíma.“ - ht
M
YN
D
/A
P
M
YN
D
/A
P
ÖRYGGISGÆSLA Í LUNDÚNUM Öryggisgæsla í Lundúnum hefur verið hert mikið eftir
sprengjutilræði í síðasta mánuði. Ekki hefur dregið úr ásókn í flugferðir íslenskra flug-
félaga til borgarinnar í kjölfar atburðanna.
Íslensk flugfélög hafa ekki orðið vör við samdrátt:
Íslendingar fer›ast sem á›ur
Vilja forðast tafir:
Hættir sér ekki
inn í borgina
LONDON „Við förum ekkert inn í
Lundúnir vegna þess hversu hætt
er við samgöngutöfum,“ segir
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir.
Bryndís á bókað flug til Lundúna á
fimmtudaginn, það-
an sem hún flýgur
til Bangkok níu tím-
um síðar.
Bryndís segist
enga áhættu taka að
missa af framhalds-
fluginu. „Fólk hefur
lent í vandræðum
vegna mikilla tafa á
samgöngum eftir
árásirnar á borgina
í síðasta mánuði,“
segir Bryndís. „Við
verðum því bara á
flugvellinum í stað
þess að fara inn í
borgina, eins og við
hefðum væntanlega gert undir
öðrum kringumstæðum.“ - ht
BRYNDÍS ÍSFOLD
HLÖÐVERSDÓTT-
IR Millilendir í
Lundúnum á
fimmtudaginn og
hættir sér ekki
inn í borgina af
ótta við tafir.
08-09 2.8.2005 21:40 Page 2