Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 23
Börn geta á öruggan og auð- veldan máta ferðast um á hjólum foreldra sinna. Þótt reiðhjól séu sniðin að þörfum eins manns er ekki þar með sagt að fólk þurfi að gefast upp á hjól- inu þegar börnin koma til sögunn- ar. Á vef Fjallahjólafélagsins kemur fram að einungis minni- háttarbreytinga er þörf til að hjólið samrýmist öllum þeim kröfum sem foreldrar gera um þægindi og öryggi barnanna sinna. Barnasæti á stöng hjólsins get- ur hentað vel en þá er barnið beint fyrir augum þess sem hjól- ar. Þetta getur bæði verið kostur og galli þar sem barnið getur hæglega truflað þann sem hjólar. Önnur góð leið er að koma börn- um fyrir í vagni sem er tengdur við hjólið. Í flestum hjólavögnum er öryggisbelti og þyngdarpunkt- urinn þar að auki svo neðarlega að afskaplega litlar líkur eru á því að vagninn velti. Vinsælasti möguleikinn er þó tvímælalaust að fá sérstakan barnastól sem er festur aftan á hjólið. Þessi mögu- leiki er heppilegur ef farið er með gát því hjólið með aukaþunganum er valt og skal því alltaf varast að skilja barnið eftir á hjólinu. Alveg sama hvaða leið er farin verður höfuð barnsins að vera vel varið með hjálmi. Einnig þarf að hafa í huga að barnið erfiðar ekki á hjólinu og því þarf það að vera betur klætt en sá sem hjólar. Meira en tveir þriðju af fólki á aldrinum átján til 24 ára segir að eyðsluhættir foreldra sinna hafi áhrif á viðhorf þeirra til peninga. Því er mikilvægt að kenna börnum gildi peninga þar sem það hjálpar þeim um ókomna tíð. • Notað einfalt líkan þegar börnin þín eru ung, eins og kökusneið, til að sýna hve mikill pen- ingur fer í mat, reikninga og önnur heimilisút- gjöld. Skerðu minni sneiðar fyrir reglulegan sparnað og önnur sérstök kaup eins og frí. Ef kakan er borðuð á eftir er það góð hvatning svo barnið hlusti. • Ef börnin þín fá reglulegan vikupening ættirðu að hvetja þau til að spara hluta af peningunum fyrir eitt- hvað sérstakt, eins og skóp- ar. Hvettu þau til að eyða ekki öllu í einu. Þannig meta þau hve mikið hlut- ir kosta. • U p p h æ ð vikupening- anna breyt- ist þegar barnið þitt eldist og kemst að því hve mikið vinirnir fá. Tal- aðu við foreldra vinanna til að kanna hvað vinirnir fá í vikupening og ákveddu síð- an hvað þér finnst sann- gjarnt. Best er að börnin geti unnið fyrir peningun- um með því að gera húsverk eða eitthvað slíkt. • Segðu barninu hve mikið hlutir kosta þegar þú ert að versla í stórmörkuðum. Bentu á verðin, berðu sam- an verð á mismunandi vör- um og segðu barninu hvað er dýrt og hvað ódýrt. • Besta leið- in til að h j á l p a börnum að læra meira um að safna og sjá um sinn eigin pening er að láta þau fá sinn eigin banka- reikning. Ekki samt letja þau ef þau vilja taka út pening þegar þeim langar að eiga eitthvað því það gæti talið þau af því að safna aftur. • Talaðu við barnið um vext- ina í bankanum og útskýrðu fyrir þeim hvernig peningar ávaxta sjálfa sig inn í bank- anum. • Þegar barnið þitt vex úr grasi máttu setja það inn í hvernig peningaáætlun fyr- ir heimili virkar. Þannig fá þau skilning á því hvað kost- ar að lifa og hvernig á að spara. • Hjálp- aðu barn- inu að læra muninn á milli þarfa, langana og óska. Kenndu því að þó því langi í eitthvað þýðir það ekki að það hafi efni á því. Þetta mun væntanlega hjálpa þeim að taka góðar eyðsluá- kvarðanir í framtíðinni. • Vertu opinská/r um pen- inga og talaðu við börnin þín um þá. Tryggðu að börnin viti að þau geti alltaf leitað til þín um fjár- hagsráðgjöf, upplýsingar og hjálp. Bókin er sannur félagi margra barna, jafnt sumar sem vetur, enda gott að grípa til hennar þegar hlé er gert á útiveru. Sum bókasöfn efna til lestrarhvetjandi námskeiða á sumrin fyrir börn sem heita einfaldlega Sumarlestur. Amtsbókasafnið á Akureyri hélt fjögurra vikna sumarlestrar- námskeið fyrir níu ára börn í júní og var það fimmta árið í röð. Ingibjörg Magnúsdóttir er barnabókavörður þar og segir þátttöku hafa verið mjög góða í ár. „Það voru um 40-50 börn á þessum námskeiðum í allt og þau lásu samtals í kringum 20 þúsund blaðsíður.“ Hún segir kappið mikið við lesturinn og þótt námskeiðið hafi bara verið ætlað níu ára börnum er hún ekki í vafa um að þetta átak smiti út frá sér bæði til systkina og vina þeirra sem þátt tóku. Sem eðlilegt er eru börnin mis- jafnlega á vegi stödd með lest- urinn og Ingibjörg segir lesefn- ið af ýmsum toga. Þau sterkustu séu dottin í Harry Potter-heim- inn og Ævintýrabækur Enid Blytons hafi notið mikilla vin- sælda í sumar. Hún nefnir líka Einhyrninginn og seríu um drenginn Svan svo og bækur Guðrúnar Helgadóttur. Léttmeti er mikið lesið eins og Syrpur og Andrés Önd og teiknimyndasög- urnar segir hún afar vinsælar af drengjum og Galdrastelpurnar af stúlkum. „Það eru fantasíur með smá spennu sem höfða til þessa aldurshóps en þó má ógeð- ið ekki vera of mikið,“ segir Ingibjörg. Þess má geta að á námskeiðinu fengu börnin að kynnast öllum kimum safnsins og líka skoða leikhúsið og menn- ingarstofnanir Listagilsins. Einnig var Nonnahús heimsótt. Ingibjörg kveðst finna fyrir auknum áhuga barna á bókum almennt og segir þau dugleg að koma og taka sér bækur til að fara með í sumarbústaðinn. Í Borgarbókasafninu í Ár- bænum var efnt til lestrarátaks 6-10 ára barna í sumar og er því nýlokið að sögn Óskars Einars- sonar, bókavarðar. Hann segir að hvert barn sem þátt tók hafi lesið að meðatali sjö bækur á rúmum mánuði. „Allur lestur kemur krökkunum til góða þeg- ar þau setjast aftur á skólabekk- inn enda finna kennararnir það á haustin ef börnin halda lestar- kunnáttunni við yfir sumarið,“ segir Óskar sannfærandi. gun@frettabladid.is 5MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2005 Hjólavagn er öruggur kostur fyrir börn. Barnastólar á reiðhjól Fantasíur með smá spennu vinsælastar Gott er að fá sér bók að lesa þegar lítið er að gera. Þetta veit Jónína Anna Óskarsdóttir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Þú ert fyrirmynd Reyndu að móta eyðsluhætti barnsins þíns áður en það er of seint. 22-23 (04-05) allt Börn 2.8.2005 19:19 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.