Fréttablaðið - 03.08.2005, Qupperneq 33
Tollar sem Evrópusambandið
hugðist leggja á innflutta banana
frá Suður-Ameríku eru ólöglegir
samkvæmt úrskurði Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar (WTO).
Fjölmörg ríki Suður-Ameríku
tóku sig saman og stefndu Evr-
ópusambandinu fyrir dómstól
WTO. Evrópusambandið hugðist
hækka tolla á banana frá Suður-
Ameríku til að vernda innflutn-
ing frá fyrrverandi nýlendum
Evrópulanda í Afríku og Karíba-
hafinu.
Suður-Ameríkumennirnir
töldu að yrðu tollarnir hækkaðir
myndi það stefna lífsviðurværi
bananaframleiðenda í álfunni í
hættu. Dómstóll WTO féllst á þau
rök og gaf Evrópusambandinu
tíu daga til að bæta ráð sitt eða
sæta að öðrum kosti refsingum.
Sextíu prósent allra banana
sem fluttir eru inn til Evrópu
koma frá Suður-Ameríku, tuttugu
prósent frá gömlum nýlendum og
önnur tuttugu prósent eru rækt-
uð á Spáni og í Frakklandi. - jsk
!
"#$
% Breski flugmógúllinn Freddie
Laker fæddist hinn 6. ágúst 1922
og fagnar því 83 ára afmæli sínu
um þessar mundir. Laker var
frumkvöðull á sviði lággjaldaflug-
félaga og var á árum áður sann-
kölluð alþýðuhetja í Bretlandi.
Laker hafði árum saman starf-
að í flugbransanum í Bretlandi
þegar hann ákvað að stofna sitt
eigið flugfélag, Laker Airways.
Það átti að verða fyrsta
lággjaldaflugfélag heims, notað-
ist eingöngu við notaðar flug-
vélar og flugmiða var aðeins
hægt að kaupa samdægurs auk
þess sem ekki var boðið upp á
neinar veitingar um borð.
Árið 1973 ákvað Laker að
hefja flug milli Bretlands og
Bandaríkjanna. Ferðirnar nefndi
hann Skytrain og kostaði farmið-
inn þriðjunginn af því sem venja
var á þessum árum.
Óhætt er að segja að Skytrain-
ferðirnar hafi slegið í gegn,
Freddie Laker varð gríðarlega
vinsæll meðal almennings og
lýsti Margaret Thatcher forsæt-
isráðherra margsinnis aðdáun
sinni á Laker. Árið 1973 var
Laker aðlaður af drottningunni.
Laker Airways stóð þó ekki
lengi undir lágu verði og var tek-
ið til gjaldþrotaskipta árið 1982.
Svo vinsæll var Sir Freddie með-
al almennings að stofnaður var
sérstakur styrktarsjóður honum
til stuðnings og söfnuðust yfir
milljón pund auk þess sem hljóm-
sveitin The Police söng honum til
heiðurs. Þá nefndi Sir Richard
Branson, eigandi Virgin-flugfé-
lagsins, eina véla sinna The Spi-
rit of Sir Freddie sem útlagst
gæti á íslensku sem „Andi
Freddies“.
Sir Freddie Laker flutti í kjöl-
farið til Bahamaeyja og endur-
reisti Laker Airways, sem nú hef-
ur aðsetur á nokkrum eyjum í
Karíbahafi. - jsk
Sir Freddie Laker 83 ára
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 7
Ú T L Ö N D
WTO hefur gefið Evrópusambandinu tíu daga til að breyta fyrirhuguðum
tollum á banönum frá Suður-Ameríku.
Bananastríð í Evrópu S Ö G U H O R N I Ð
SIR FREDDIE LAKER FYRIR FRAMAN EINA FLUGVÉLA SINNA Freddie Laker er frum-
kvöðull lággjaldaflugfélaga í heiminum. Laker Airways bauð á sínum tíma upp á ferðir milli
Bretlands og Bandaríkjanna á þriðjungi þess verðs sem þá tíðkaðist.
UNGUR BANANASALI Tollar sem Evr-
ópusambandið hugðist leggja á banana frá
Suður-Ameríku til að hygla gömlum ný-
lendum sínum í Afríku og Karíbahafinu eru
ólöglegir samkvæmt WTO.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Doug Ellis, stjórnarformaður og aðaleigandi Aston
Villa, er almennt séð illa liðinn meðal stuðningsmanna
félagsins því þeim þykir að hann vera of aðhaldssamur
og það bitni á gengi liðsins. „Deadly“ Doug, eins og
hann er kallaður, var lagður inn á spítala um daginn og
var það tilkynnt til bresku kauphallarinnar. Hrakandi
heilsa þessa aldraða skörungs ýtti undir sögusagnir um
að þetta fornfræga félag yrði loks yfirtekið og hækk-
uðu hlutabréfin því í verði. Ray nokkur Ranson hefur
verið í viðræðum við stjórn félagsins um hugsanlega
yfirtöku.
En „Deadly“ Doug er kominn aftur til starfa og hef-
ur þetta að segja í skýrslu stjórnarformanns til hlut-
hafa sem fylgir með ársreikningi: „Þegar ég rita þessi
orð er ég allur að koma til og hlakka til þess að snúa
aftur til starfa.“ Ekki er víst að allir hluthafar og stuðn-
ingsmenn Villa hafi fagnað þessum orðum.
Rekstrarreikningur Villa sýndi annars minna tap
fyrir síðasta rekstrarár en árið á undan. Tapið var tæp-
ar 300 milljónir króna fyrir skatt og minnkaði um 75
prósent milli ára. - eþa
Heldur fast um budduna
Stjórnarformaður Aston Villa kominn af spítala. Félagið gert upp með tapi.
„DEADLY“ DOUG Heldur utan um stjórnartaumana hjá hinu
fornfræga liði Aston Villa og er sakaður um metnaðarleysi.
Dýrt verkfall í Finnlandi
Sjö vikna verkfall skóg-
arhöggmanna í Finnlandi
ætlar að reynast hag-
kerfinu dýrt. Ríkisstjórn
landsins hefur greint frá
því að verkfallið verði til
þess að landsframleiðsla
minnki um eitt prósent
frá því sem áður hafði
verið spáð og að finnska
hagkerfið verði af tekj-
um upp á 120 milljarða
króna.
Pappírsframleiðsla og
skógarhögg eru um átta
prósent landsframleiðslu
Finna auk þess sem 25
prósent útflutningstekna
má rekja til slíkra afurða.
Um fjögur prósent af
pappír heimsins eru frá
Finnlandi. - jsk
SKÓGARHÖGG Verkfall skóg-
arhöggsmanna í Finnlandi kost-
ar finnska hagkerfið 120 millj-
arða króna.
06_07_Markadur lesið 2.8.2005 15:29 Page 3