Fréttablaðið - 03.08.2005, Page 38

Fréttablaðið - 03.08.2005, Page 38
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN12 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Benedikt Sveinsson var um árabil einn áhrifamesti maðurinn í íslensku viðskiptalífi. Hann gegndi stjórnarformennsku í Sjóvá sem var höfuðvígi fjölskyldu hans, auk þess að marka stefnuna í Eimskipafélaginu sem stjórnarformaður og í Flugleiðum sem stjórn- armaður. Stjórnmál voru einnig starfsvettvangur Benedikts, en hann leiddi starf Sjálfstæðis- manna í Garðabæ. Hann átti hvorki langt að sækja áhuga á viðskiptum né á stjórnmálum. Faðir hans, Sveinn Benediktsson, var um- svifamikill í viðskiptum og föðurbróðir hans, Bjarni Benediktsson, var leiðtogi Sjálfstæðis- flokksins og forsætisráðherra. Það að Bene- dikt yrði áberandi á báðum þessum sviðum þjóðlífsins átti því ekki að koma á óvart. Faðir hans var síldarsaltandi og Benedikt komst snemma í tæri við þá brigðulu skepnu síldina. „Ég var part úr sumri, sjö sumur, á Raufarhöfn og svo seinna á Seyðisfirði. Ég náði því að verða síldarmatsmaður. Það voru miklar sveiflur í þessum rekstri, eins og er í sjávarútvegi.“ Síminn hringir hjá Benedikt. „Já, já vinur- inn,“ segir hann í símann. „Þetta var eitt barnabarnið. Hann vill koma með okkur í sveitina.“ Þau hjónin eru með bústað við Þingvallavatn. Ég spyr hvort þau séu þar mikið. „Alltof lítið,“ svarar Benedikt. RÍKISSTJÓRNIN BREYTTI MIKLU Eimskipafélag Íslands var verðmætasta fé- lagið á verðbréfamarkaði þegar vísir að honum varð til fyrir seinni hluta níunda áratugarins. „Fram að því gengu hlutabréf ekki mikið kaupum og sölum. Menn bara áttu þetta. Eimskipa- félagið var forystufélag sem almenningshlutafélag með marga hluthafa.“ Síðan fyrsti vísir hlutabréfamarkaðar varð til hefur mikið vatn runnið til sjávar. „Viðskiptaumhverfið gjörbreytist með ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar. Fyrst með Alþýðu- flokki og síðan með Framsóknarflokki. Þess- ar ríkisstjórnir hafa gjörbreytt öllu umhverf- inu. Inngangan í EES er stórmál fyrir Íslend- inga og losaði um höft í atvinnulífinu. Ís- lenskt atvinnulíf var leyst úr álögum,“ segir Benedikt og bætir við að tekið hafi verið á miðstýringu og sjóðasukki í atvinnulífinu. Eimskipafélagið varði hagnaði sínum í að fjárfesta í öðrum atvinnurekstri og var stundum fyrir vikið sakað um að bera víðar niður en gott þótti. Lagaumhverfi gerði það hins vegar að verkum að fyrirtæki áttu í mesta basli með að koma hagnaði til hluthafa sinna. „Það var allt mjög óhagstætt,“ segir Benedikt. „Andrúmsloftið var líka þannig að það var nánast skammarlegt ef fyrirtæki skiluðu hagnaði. Það var hreint ekkert einfalt að reka fyrirtæki í því umhverfi. Skattlagn- ing var há og það þurfti leyfi fyrir öllum sköpuðum hlutum. Það var ekki hægt að taka erlent lán, nema með leyfi lánanefnda. Stjórnvöld hafa losað um þetta og selt ríkis- banka. Allt er þetta til bóta.“ Benedikt segir að það hafi einnig ráðið viðhorfum við fjár- festingu í öðrum atvinnurekstri að Eimskipa- félagið hafi litið til þjóðfélagslegrar stöðu sinnar og talið sér skylt að stuðla að uppbygg- ingu í samfélaginu. „Félagið var mjög fram- farasinnað og þótt það væri alltaf stefnt að góðri afkomu þá var litið til fleiri þátta þegar stefnan var mótuð.“ STERKUR BAKHJARN Benedikt segir að menn geti haft mismunandi skoðanir á því hvernig var staðið að einka- væðingu í hverju tilviki fyrir sig. „Við sölu bankanna hafa losnað úr fjötrum miklir kraftar. Við sjáum hvernig þjóð- félagið er. Hér er nú fjöld- inn allur af ungu og vel- menntuðu fólki sem sæk- ir fram. Svona breytingar verða auðvitað aldrei sárs- aukalausar.“ Ekki fór heldur hjá því að vindar blésu þegar nýrra krafta fór að gæta í við- skiptalífinu. Þær hræringar náðu hápunkti þegar uppskipti urðu á eignarhaldi helstu fé- laga í atvinnulífinu. Eim- skipafélagið hafði byggt upp stórt sjávarútvegsfyrirtæki. „Nýir eigendur sem eignuð- ust félögin ákváðu að leysa þau í sundur og selja eining- ar. Við sem vorum þarna hefðum ekki staðið þannig að málum. Það voru mikil vermæti þarna saman kom- in,“ segir Benedikt. Hann gerir ekki mikið úr ólíkri sýn á rekstrinum. „Það verð- ur bara að koma í ljós hvern- ig þetta svo gengur.“ Eimskip var bakhjarl annarra félaga í gegnum fjárfestingararminn Burðar- ás. Marel var fóstrað af fé- laginu í gegnum uppbygg- ingarár þar sem oft blés á móti. „Annað félag sem þurfti sterkan bakhjarl var Flugleiðir. Það var oft tvísýnt í rekstrinum, enda áhætturekstur. Það er merkilegt hversu vel hefur tekist til eins og til dæmis eftir áfallið 11. september. Flug- leiðir skiluðu góðum árangri meðan önnur flugfélög áttu í miklum vandræðum. Nýir eigendur hafa nýtt sér þá þekkingu og það traust sem félagið hafði áunnið sér. Það sést vel til að mynda í flugvélakaupum að undan- förnu. Boeing hefur átt langt og gott samstarf við Flugleiðir í gegnum tíðina.“ HÆTT Í NOKKRUM SKREFUM Stjórnmálin hafa líka sett mikinn svip á starfsævi Benedikts. „Það hefur verið mikill pólitískur áhugi í fjölskyldunni.“ Ég spyr hann hvort hann sjái eftir tengslum stjórn- mála og viðskiptalífs. Það segist hann ekki gera. „Þau voru ekki eins mikil og af var lát- ið. Það var auðvitað ákveðin barátta á milli fyrirtækja Samvinnuhreyfingarinnar og einkafyrirtækjanna. Ég tók svolítinn þátt í því. Svo hrundi Sambandið og það breyttist allt saman. Auðvitað eimdi eitthvað eftir af þessu, en það er miklu minna en það var.“ Benedikt segist ekki hafa fundið fyrir miklum viðbrigðum við að stíga af sviðinu í íslensku viðskiptalífi. „Ég var búinn að vera að draga mig til baka úr fyrirtækjum í nokkur ár. Hætti í einu fyr- irtækinu af öðru.“ Hann er samt ekki alveg hættur, fjár- festi fyrir skemmstu í Bíla- nausti. „Það er annar kapít- uli. Ég hef tengst því félagi og þegar hlutur var til sölu leist mér ágætlega á það. Þetta er fyrirtæki sem stendur fyrir sínu.“ Það er oft sagt að menn í erilsömum störfum eigi erfitt með að minnka við sig og hafi ekki sinnt því að byggja upp áhugamál. „Ég held að ég hafi ekki verið neitt sérstaklega vinnusam- ur,“ segir hann og brosir. „Þannig að þetta var ekki mikið vandamál. Ég hef alltaf haft eitthvað af áhuga- málum.“ Hann hittir gamla félaga reglulega og spilar bridds og svo er það golfið. „Ég hef verið að spila golf síðustu árin og haft gott af því.“ Konan spilar stundum með honum. „Það mætti samt vera meira.“ Nú þegar meiri tími gefst getur hann lengt tímabilið og spilar á vetrum í Florída. „Synir mínir hafa líka verið með mér í þessu og svo eru barnabörnin að byrja. Það er gaman að fara með þeim,“ segir Benedikt og bætir við að kvöldið áður hafi hann tekið sonarsoninn með sér, þann sama og vill nú ólmur komast með afa sínum í sveitina. Hádegisverður fyrir tvo á Lækjarbrekku Ristaður lax Steiktur steinbítur Drykkir Vatn, Pilsner, Kaffi Alls 4.550 krónur ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með Benedikt Sveinssyni lögmanni og fyrrverandi stjórnarfor- manni Sjóvár og Eimskipafélagsins Stórgróðafyrir- tæki leyst upp Það er ekki á hverjum degi sem þrjú íslensk stórfyrirtæki samein- ast í tvö íslensk stórfyrirtæki en það var þó það sem gerðist nú um helgina þegar Straumur, Burðarás og Landsbankinn sameinuðust í Straum - Burðarás og Landsbank- ann. Fyrir venjulegt fólk kann þetta ekki að vekja mikla forvitni enda vita mjög fáir hvað Straumur og Burðarás gera. Flestir vita hins vegar að Landsbankinn er venju- legur íslenskur banki. Í síðustu viku fjallaði Aurasálin um uppgjör Burðaráss og reyndi að út- skýra fyrir lesendum í hverju starfsemi fyrirtækisins fælist. Svo virðist sem stjórnendur og eigend- ur Burðaráss hafi lesið Aurasálina í síðustu viku og fengið samvisku- bit yfir gróðanum og ákveðið í kjölfarið að leysa fyrirtækið upp. Þetta er jákvæð niðurstaða í aug- um Aurasálarinnar. Hin óhóflegi hagnaður sem Burðarás sýndi á fyrri helmingi ársins var ekki sið- ferðislega verjandi. Nú verður fróðlegt að sjá hvort aðr- ir stjórnendur stórgróðafyrirtækja á Íslandi fylgi fordæmi Björgólfs Thors og leysi upp fyrirtæki sín í kjölfar ofsagróða á fyrri helmingi þessa árs. Að mati Aurasálarinnar er líklegt að stjórnendur viðskipta- bankanna, KB banka, Landsbanka og Íslandsbanka skoði alvarlega þann möguleika að leggja niður starfsemina og láta staðar numið. Ólíklegt er að þjóð og þing hafi áhuga á því að horfa upp á áfram- haldandi gróðabrask bankanna og svokallaða útrás. Einhvern tímann hlýtur að vera komið nóg og í til- felli Burðaráss var bersýnilega komið að þeim tímamótum. Aurasálin hefur nokkru sinni vikið að áhrifum sínum í íslensku við- skiptalífi og hafa sumir lesendur ályktað sem svo að um einhvers konar grín hafi verið að ræða. Upplausn Burðaráss, eftir ábend- ingu Aurasálarinnar í síðustu viku, ætti hins vegar að taka af öll tví- mæli um það að viðskiptalífið hlustar eftir því sem Aurasálin hefur að segja. Líklegt er að Straumur verði næsta fyrirtæki sem leyst verður upp sökum ofsagróða. Aurasálin þekkir ágætlega til bæði forstjórans og stjórnarformannsins. Þeir eru báð- ir hógværir landsbyggðarmenn að upplagi og þekkja því sín takmörk og þolmörk íslensku þjóðarinnar mun betur en flestir aðrir í ís- lensku viðskiptalífi. Þeir Þórður Már og Magnús Krist- insson leita nú vafalaust leiða til þess að leysa fyrirtækið upp og vill Aurasálin leyfa sér að koma með uppástungu sem ætti að vera þeim tveimur að skapi. Fyrir verð- mæti Straums ætti að fást nægur peningur til að hefja löngu nauð- synlegar framkvæmdir við jarð- göng til Vestmannaeyja. Líklegt er að forysta Straums leggi áherslu á að göngin auðveldi samgöngur sem mest og er líklegt að göngin nái alla leið upp á Skipaskaga. A U R A S Á L I N Benedikt Sveinsson Starf: Að mestu hættur störfum Fæðingardagur: 31. júlí 1938 Maki: Guðríður Jónsdóttir Börn: Sveinn f. 1962, Jón f. 1964 og Bjarni f. 1970 EKKI ALVEG HÆTTUR Benedikt Sveinsson er enn stór eigandi í Íslandsbanka, en skiptir sér lítið af málefnum þar. Hann hefur að mestu dregið sig út úr stjórnum fyrirtækja þar sem hann var áberandi um árabil, en fjárfesti þó í Bílanausti sem hann segir fyrirtæki sem standi fyrir sínu. Viðskiptalífið losnaði úr fjötrum Benedikt Sveinsson er framlínumaður í íslenskri viðskiptasögu og bar um skeið ábyrgð á stærstu fyrirtækjum landsins. Hann dró sig hægt og bítandi í hlé og hefur nú tíma til að stunda áhugamálin og að sinna barnabörnunum sem sækja stíft í félagsskap hans. Hafliði Helgason fékk sér hádegisverð með Benedikt og ræddi meðal annars breytingar í íslensku viðskiptaumhverfi. Fr ét ta bl að ið /S te fá n Andrúmsloftið var líka þannig að það var nánast skammarlegt ef fyrir- tæki skiluðu hagnaði. Það var hreint ekkert einfalt að reka fyrirtæki í því umhverfi. 12-13 Markaður lesið 2.8.2005 15:23 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.