Fréttablaðið - 28.08.2005, Side 1
Gu› er stórkost-
legur húmor
JÓN GNARR
▲
FÓLK 38
GEFUR ÚT BAKÞANKA SÍNA
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SVALT Á NORÐURLANDI áfram og
víða einhver væta.
VEÐUR 4
SUNNUDAGUR
28. ágúst 2005 - 231. tölublað – 5. árgangur
Segir mannréttindi brotin í
Garðasókn
Frá byrjun árs 2004 hafa illindi sett
mark sitt á Garðasókn í Garðabæ.
Séra Hans Markús
Hafsteinsson segir
brotið á
mannréttindum
sínum og hefur
leitað til bæði
Persónuverndar og
dómstóla.
VIÐTAL 24
PETREA FINNSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● atvinna
NÍU LÍF Í KATTHOLTI
▲
DÝRALÍF 22
▲
VEÐRIÐ Í DAG
Stelpurnar mæta Svíum
Íslenska kvennalandsliðið
í knattspyrnu verður í
eldlínunni í Svíþjóð í
dag í undankeppni HM
í Kína 2007 á móti
einum af sterkustu
kvennalandsliðum heims.
Þjálfarinn Jörundur Áki
Sveinsson leggur áherslu á
varnarleikinn í leiknum.
ÍÞRÓTTIR 30
Dönsku blö›in sótt
á fimmtudögum
A› taka a› sér kött er
langtíma skuldbinding
VANRÆKTIR KETTIR EIGA SÉR ATHVARF Í KATTHOLTI
Skeytir skapi á golfkylfum
Björgólfur Jóhannsson þykist ekki
muna eftir því að hann eigi afmæli
þegar haft er samband við hann. Síð-
an hlær forstjóri Síldarvinnslunnar og
formaður Landssam-
bands Útvegsmanna
og segir að það sé
víst rétt að árin verði
fimmtíu í dag.
TÍMAMÓT 14
EFNAHAGSMÁL Söluandvirði Símans
verður meðal annars varið til þess
að byggja nýtt hátæknisjúkrahús
og til að leggja nýja Sundabraut
frá Sæbraut að Vesturlandsvegi
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Talið hefur verið að lagning
Sundabrautar geti kostað um tíu
milljarða og nefnt hefur verið að
nýtt hátæknisjúkrahús geti kostað
á bilinu tuttugu til tuttugu og fimm
milljarða króna.
Andvirðinu af sölu Símans verð-
ur einnig varið til að greiða niður
skuldir ríkisins og byggja upp fjar-
skiptaþjónustu á landsbyggðinni.
Stjórnarflokkarnir ræða nú sín
á milli um hvernig verja eigi þeim
peningum sem fengust fyrir Sím-
ann eða 66,7 milljörðum króna.
Þeir ætla að kynna niðurstöður
sínar áður en þing kemur saman í
haust samkvæmt því sem fram
kemur í viðtali við Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra í
Fréttablaðinu í dag.
Þingflokkar Framsóknarflokks-
ins og Sjálfstæðisflokksins ákváðu
á sínum tíma þegar afráðið var að
selja Símann að hluta andvirðisins
yrði varið til að byggja upp fjar-
skiptaþjónustu á landsbyggðinni.
Meðal þess sem búast má við að
ráðist verði í er stækkun móttöku-
svæðis GSM-kerfisins og fjölgun á
háhraða nettengingum til heimila á
landsbyggðinni.
Ekki er ljóst hversu miklum
fjármunum verður varið til hvers
þeirra verkefna sem ákveðið hef-
ur verið að ráðast í en það ætti að
liggja fyrir á næstu dögum og
vikum. Sjá síðu 18 og 19 / - hb
STJÓRNARSKRÁ Þorsteinn Pálsson,
sendiherra og fulltrúi í stjórnar-
skrárnefnd, segir augljóst að Ís-
lendingar geti ekki sótt um aðild
að Evrópusambandinu að
óbreyttri stjórnarskrá. Fullveld-
isákvæðin standi í vegi fyrir
því.
„Mér finnst eðlilegt að stjórn-
völd á hverjum tíma eigi að geta
metið það hvort við stígum slíkt
skref. Og þá er nauðsynlegt að
setja um það reglur í stjórnar-
skrá hvernig slík mál skuli borin
upp og samþykkt.“
Þorsteinn segir engan ágrein-
ing um að þjóðin yrði sjálf að
taka ákvarðanir í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um mál eins og
aðild að Evrópusabambandinu.
„Ég tel að mál af þessu tagi
þurfi að ákveða með mjög víð-
tækri sátt og ástæða sé til að
gera kröfur um aukinn meiri-
hluta í þinginu eða meðal kjós-
enda þegar slík skref yrðu stig-
in. Ég held að það sé ekki skyn-
samlegt að sitja uppi með
stjórnarskrá sem ekki geymir
heimildir til þess að stíga skref
af þessu tagi. Í dag er stjórnar-
skráin okkar algerlega lokuð að
þessu leyti og það er ekki hyggi-
legt.“
Sjá síðu 16
ÞORSTEINN PÁLSSON SENDIHERRA
Þorsteinn, sem er fulltrúi í stjórnar-
skrárnefnd, segir engan ágreining um að
þjóðin verði sjálf að taka ákvörðun um
aðild að Evrópusambandinu.
Sjúkrahús og Sundabraut
fyrir hagna› af Símasölu
Stjórnarflokkarnir ræ›a flessa dagana hvernig verja eigi hagna›inum af sölu Símans. Söluandvir›inu
ver›ur me›al annars vari› til fless a› byggja hátæknisjúkrahús og leggja Sundabraut.
Þorsteinn Pálsson sendiherra telur fullveldisákvæði stjórnarskrár of ströng:
Stjórnarskrá útilokar a›ild a› ESB
KONSERT Í KERINU Ragnhildur Gísladóttir og Árni Johnsen tóku lagið saman á einstæðum tónleikum í Kerinu í Grímsnesi í gær.
Tónleikarnir, sem voru haldnir til styrktar björgunarsveitinni Björg á Eyrarbakka, voru vel sóttir og þóttu takast vel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
ÁL
L
B
ER
G
M
AN
Reyndu að skrá sig í herinn:
Gramar ömmur
ekki ákær›ar
BANDARÍKIN, AP Ríkissaksóknar-
inn í Tucson í Arizona hefur fall-
ið frá ákærum á hendur fimm
ömmum sem reyndu að skrá sig
í herþjónustu Bandaríkjahers.
Ömmurnar, sem eru frá 65 til
81 árs, eiga allar barnabörn sem
gegna herþjónustu í Írak. Þær
hafa mótmælt fyrir utan skrán-
ingarstöð bandaríska hersins í
Tucson í hverri viku síðastliðin
þrjú ár. Fyrir skömmu ákváðu
þær að reyna að skrá sig sjálfar
í herinn svo barnabörnin fengju
að koma heim. Því var tekið
fremur illa á skráningarstöðinni
og var hringt í lögregluna. Í
kjölfarið voru ömmurnar síðan
ákærðar fyrir að hafa verið í
óleyfi inni á lóð hersins.
Ríkissaksóknari hefur nú fall-
ið frá ákærunum þar sem hann
taldi að erfitt yrði að sanna sekt
kvennanna sem hafa fengið við-
urnefnið „grömu ömmurnar.“
Engan bilbug er að finna á
ömmunum og hyggjast þær
halda mótmælum sínum áfram
þar til herinn verður kallaður
heim. ■