Fréttablaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 6
6 28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
Einn skemmtistaður í miðbæ Reykjavíkur sker sig úr hvað ofbeldisbrot varðar:
Lögregla gefur engar uppl‡singar
LÖGREGLUMÁL „Þessar upplýsingar
eru trúnaðarmál enda eigum við
sjálfir eftir að fara á stúfana og
ræða við viðkomandi veitinga-
mann vegna þessa,“ segir Geir
Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni í Reykjavík.
Í nýlegri úttekt sem unnin var
fyrir embættið um ofbeldisbrot í
miðbæ Reykjavíkur kemur fram
að einn skemmtistaður sker sig
allnokkuð úr þegar kemur að
fjölda mála sem þaðan berast
vegna ofbeldis við eða inni á við-
komandi stað. Voru 20 skráð til-
felli ofbeldisverka þar árið 2004
eða tæplega helmingi fleiri en á
næstu stöðum á eftir en lögregla
vill þó ekki upplýsa nafn viðkom-
andi staðar.
Geir Jón segir lögreglu hafa
veitt þessu eftirtekt og hluti af
ástæðu þess að umrædd úttekt
var gerð var til að embættið fengi
betri yfirsýn yfir slíkt. „Við höf-
um hugsað okkur að nota þessar
upplýsingar til að ná betri sam-
vinnu við dyraverði og veitinga-
menn á þeim stöðum þar sem of-
beldi virðist vera algengara en
annars staðar. Við værum líka að
gera viðkomandi mikinn grikk
með því að birta nafn staðarins og
gerum það ekki að svo stöddu.“
-aöe
Svona eiga forystu-
menn ekki a› tala
Össur Skarphé›insson gagnr‡nir ummæli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur sem
sag›i a› Stefán Jón hafi gengi› me› borgarstjórann í maganum og flví komi frambo›
hans ekki á óvart. Stefán Jón Hafstein segir ummælin sig engu skipta.
SAMFYLKINGIN „Það er óskrifuð
regla að stjórmálamenn fá að
kynna framboð sín til embætta í
fullkomnum friði,“ segir Össur
Skarphéðinsson, fyrrum formað-
ur Samfylkingarinnar, um um-
mæli Steinunnar Valdísar Óskars-
dóttur borgarstjóra varðandi
ákvörðun Stefáns Jóns Hafstein
um að bjóða sig fram sem borgar-
stjóraefni Samfylkingarinnar.
Hún sagði í fréttum RÚV að
ákvörðun Stefáns Jóns kæmi
henni ekki á óvart enda hafi hann
gengið með borgarstjórann í mag-
anum um nokkra hríð.
Össuri finnst það ákaflega
óviðeigandi að manneskja sem er
í forystuhlutverki fyrir flokk
skuli tala frekar neikvætt um fé-
laga sinn sem er að bjóða sig
fram, jafnvel þótt það sé til þess
embættis sem viðkomandi gegn-
ir. „Stefán Jón hefur fullkomlega
eðlilegar ástæður til að bjóða sig
fram sem borgarstjóraefni Sam-
fylkingarinnar og það er engin
ástæða til að tala niður til hans
vegna þeirrar ákvörðunar eins og
mér finnst gert þegar talað er um
að hann sé að bjóða sig fram af
því hann hafi borgarstjórann í
maganum,“ segir Össur. „Svona
eiga forystumenn ekki að tala.
Þeir eiga að virða aðra og rétt
þeirra til að sækjast með lýðræð-
islegum hætti eftir trúnaðarstöð-
um,“ segir hann. „Mér finnst ekki
að borgarstjórar eigi að tala
svona um keppinauta sína og
minni á að þegar við Ingibjörg
Sólrún tókumst á um formennsku
þá var það algjörlega á forsend-
um gagnkvæmrar virðingar,“
segir Össur.
Stefán Jón Hafstein tilkynnti í
fyrradag að hann gæfi kost á sér í
fyrsta sæti á lista Samfylkingar-
innar í næstu borgarstjórnarkosn-
ingum. Steinunn Valdís sagði í
samtali við fréttastofu RÚV þegar
leitað var eftir viðbrögðum henn-
ar: „Miðað við þessar fréttir er
ljóst að allavega tveir hafa gefið
kost á sér. Í sjálfu sér kemur það
mér ekkert á óvart að Stefán Jón
skuli gefa kost á sér enda maður-
inn búinn að ganga með borgar-
stjórann í maganum um nokkra
hríð og það er bara ágætt og fínt
að fá góða samkeppni,“ sagði
Steinunn Valdís.
Stefán Jón sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að þessi
ummæli skiptu sig engu. Ekki
náðist í Steinunni Valdísi
Óskarsdóttur. sda@frettabladid.is
Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.is
Vetur, sumar
vor og haust
Rally. Alvöru fjórhjól á 450.000 kr.
Bombardier fjórhjól
eru fyrir allar aðstæður.
Alltaf.
Outlander 800
er öflugasta fjórhjólið
á markaðnum. Seldist
upp en kemur aftur
í september.
Outlander Max 400
4 x 4 fyrir tvo. Þjarkur sem
fer áfram og áfram og áfram
DS 650 X
Sannkallað tryllitæki
á meðal fjórhjóla.
Útlitið segir allt.
Verð. 980.000 kr.
Á Reykjavíkurborg að leigja
Blind Pavillion til tveggja ára?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga borgaryfirvöld að taka í
notkun bílastæðaklukkur í stað
stöðumæla?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
75%
25%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
LÆTI Alls voru skráð 20 ofbeldismál á
einum og sama staðnum í miðbæn-
um hjá lögreglu á síðasta ári en eng-
ar upplýsingar eru gefnar upp um
nafn viðkomandi staðar.
Uppbygging í Hrísey:
Reisa fjölnota
íflróttahús
FÉLAGSLÍF Bæjaryfirvöld á Akur-
eyri hafa skipað þriggja manna
verkefnastjórn vegna byggingar
fjölnota íþróttahúss í Hrísey.
Gísli Kristinn Lórenzson, sem
sæti á í verkefnastjórninni, segir
Hríseyinga notast við gamalt og
lélegt félagsheimili til íþróttaiðk-
ana og brýnt sé að bæta þar úr.
„Ekki liggur fyrir hversu stórt
nýja húsið verður né hvað það
kemur til með að kosta en bæjar-
yfirvöld ætla að veita fjármunum
til hönnunar hússins í ár og til
byggingar þess á næsta ári,“ seg-
ir Gísli.
- kk
ÖSSUR VIÐ TÖLVUNA „Svona eiga forystumenn ekki að tala,“ segir Össur og á við ummæli
Steinunnar Valdísar um að Stefán Jón gangi með borgarstjórann í maganum.
STEINUNN VALDÍS
Hefur lýst því yfir að
hún sækist eftir því
að vera borgarstjóra-
efni Samfylkingarinn-
ar næsta vor.
STEFÁN JÓN HAF-
STEIN Tilkynnti í
fyrradag að hann
gæfi kost á sér í
fyrsta sæti á lista
Samfylkingarinnar.
Hækkun leikskólagjalda stúdenta þrepaskipt:
Öll hækkunin gengur til baka
LEIKSKÓLAGJÖLD Forsvarsmenn
stúdenta hafa leitað eftir svörum
við því hjá borgaryfirvöldum
hvort samþykkt borgarráðs um að
falla frá fyrirhuguðum hækkun-
um á gjaldskrá leikskólanna þar
sem annað foreldrið er í námi, eigi
einnig við um þá hækkun sem tók
gildi 1. júní síðastliðinn. Hækkun-
in hafði verið ráðgerð í þrepum og
tók fyrsta þrepið gildi 1. júní.
Hrefna Lind Ásgeirsdóttir, sem
situr í hagsmunanefnd stúdenta-
ráðs og stjórn stúdentaráðs, segir
að ekki hafi fengist svör frá borg-
inni um hvort hækkunin 1. júní
muni ganga til baka.
Alfreð Þorsteinsson borgar-
fulltrúi sagðist í samtali við
Fréttablaðið líta svo á að sam-
kvæmt samþykkt borgarráðs
muni hækkunin 1. júní ganga til
baka.
„Gert var ráð fyrir því að þetta
myndi kosta borgarsjóð 20 millj-
ónir á þessu ári, því aðeins er um
að ræða hálft árið, og 40 milljónir
á því næsta þannig að ég lít svo á
að þessi samþykkt eigi við um alla
þessa hækkun, sem ráðgerð var í
þrepum, og að hún gangi þá til
baka,“ segir Alfreð. - sda
ALFREÐ ÞORSTEINSSON Fullvissar stúdenta
um að hækkunin á leikskólagjöldum fyrir
stúdenta þar sem annað foreldri er í námi
og tók gildi 1. júní verði gerð afturkræf.