Fréttablaðið - 28.08.2005, Blaðsíða 28
8
ATVINNA
Fjárvakur - fjármálaþjónusta ehf. er dótturfélag FL Group hf. Félagið
býður fyrirtækjum heildarlausn á fjármálasviði, m.a. umsjón bókhalds,
uppgjöra, innheimtu og greiðslu reikninga, fjármálastjórn, starfmanna-
þjónustu, upplýsingakerfi og hýsingu þeirra. Félagið er þekkingarfyrirtæki
sem skipað er úrvals starfsfólki. Hjá félaginu starfa um 70 starfsmenn sem
þjóna félögum með samanlagða veltu yfir 55 milljarða króna og hafa á að
skipa yfir 3 þús. starfsmönnum að jafnaði. Meðal helstu viðskiptavina er
FL Group hf. og dótturfélög. Aðsetur félagsins er í höfuðstöðvum FL Group
hf., í Icelandairhúsinu, Reykjavíkurflugvelli.
F J Á R V A K U R
F J Á R m á l a þ j ó n u s t a
Vegna aukinna verkefna eru eftirfarandi störf laus til umsóknar:
Starfsmaður í bókhald
Starfssvi›
• Vinna við bókhald
• Vinna við afstemmingar og fjárhagslegt eftirlit
• Aðstoð við uppgjör og frágang á bókhaldi til
endurskoðunar
Skriflegar umsóknir er tilgreini það starf sem sótt er um, menntun og reynslu, óskast sendar á netfangið
starf@fjarvakur.is fyrir 10. september
Félagið leitar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og duglegum einstaklingum í spennandi og krefjandi störf. Boðið er upp
á gott starfsumhverfi og þægilega starfsaðstöðu, auk tækifæris til þróunar í starfi. Lögð er mikil áhersla á að viðkomandi hafi
góða samskiptahæfileika, metnað og geti unnið sjálfstætt.
Starfssvi›
• Innheimta viðskiptakrafna fyrir viðskiptavini
• Bréfaskriftir vegna innlendra og erlendra
viðskiptakrafna
• Skráning gagna og utanumhald í innheimtukerfi
• Samskipti við viðskiptavini og lögfræðinga vegna
aðgerða við einstök mál
• Almenn skrifstofustörf í tengslum við innheimtu-
starfsemi deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhersla á reynslu af innheimtustörfum. Reynsla af almennum
skrifstofustörfum og góð bókhaldsmenntun er kostur. Skipulögð
og sjálfstæð vinnubrögð. Góð Word- og Excel- tölvukunnátta
er skilyrði.
Starfsmaður í innheimtudeild
Þjónustustjóri
Starfssvi›
• Yfirumsjón með bókhaldi ákveðinna
viðskiptavina
• Vinna við afstemmingar í fjárhagsbókhaldi
• Gerð mánaðarlegra uppgjöra
• Skil á bókhaldi til endurskoðunar
• Úrvinnsla ýmislegra tölulegra upplýsinga fyrir
stjórnendur
Menntunar- og hæfniskröfur
Viðskiptafræðingur af endurskoðunar/fjármálasviði. Góð reynsla
á sviði bókhalds, af afstemmingum og uppgjörum er skilyrði.
Reynsla af endurskoðunarskrifstofu er æskileg. Þjónustulund
og skipulögð vinnubrögð. Starfsmaður ber ábyrgð á bókhaldi
nokkurra viðskiptavina með aðra starfsmenn sér til aðstoðar.
Unnið er náið með stjórnendum viðskiptavina við þjónustu
og upplýsingagjöf.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð bókhaldsmenntun nauðsynleg. Áhersla á reynslu af vinnslu
og frágangi bókhalds. Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. Góð
Excel- tölvukunnátta er skilyrði.
Fjöltækni ehf. óskar eftir
afgreiðslu- og starfsmanni á lager.
Ör vöxtur fyrirtækisins gefur möguleika á að vaxa
í starfi. Góð laun í boði fyrir duglega einstaklinga.
Líflegur og skemmtilegur vinnustaður.
Hæfniskröfur
Þekking á pípulagningarvörum ( ekki nauðsynleg )
Iðnmenntun er kostur, en ekki skilyrði.
Samviskusemi, jákvæðni og þjónustulund.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist á bjorng@fjoltaekni.is eða
Súðavog 14 104 Reykjavík merkt „Atvinna“
Nánari upplýsingar eru veittar hjá framkvæmdastjóra
í síma 660-7580.
Ævar Pálmason er lögreglu-
maður númer 332 í Reykja-
vík. Hann segir að ekkert sé
til sem heitir venjulegur
vinnudagur í lögreglunni.
Verkefnin séu í senn fjöl-
breytt og krefjandi.
Ævar hefur starfað hjá Lögregl-
unni í Reykjavík í rúm þrjú ár og
honum líkar vel við síbreytileik-
ann sem felst í starfinu. „Þetta
stendur mér dálítið nálægt því
pabbi er búinn að vera í lögregl-
unni núna í þrjátíu og níu ár. Ég er
lærður húsasmiður og var að
vinna við það. Mér fannst starfið
ekki vera nógu fjölbreytt og eitt-
hvað tilbreytingalítið þannig ég
ákvað að slá til og sækja um í
skólann.“
Til að geta orðið lögreglumað-
ur þarf sem sagt að fara í Lög-
regluskólann en hann hefur verið
mjög umsetinn síðustu ár og færri
komist að en vilja. „Það er mjög
góð aðsókn núna og sem betur fer,
því þá er hægt að velja þá bestu
og hæfustu úr sem stærstum
hóp,“ segir Ægir. Kröfurnar eru
bæði í tungumálum og almennri
þekkingu, auk þess sem reynt er á
líkamlega hreysti þeirra sem
sækja um. „Ég held að það sé bara
verið að reyna að fá þverskurðinn
af þjóðfélaginu inn í lögregluna
með þessum prófum,“ bætir hann
við.
Ægir sinnir almennum lög-
gæslustörfum og segir að ekkert
sé til sem heitir venjulegur vinnu-
dagur hjá lögreglumönnum. „Jú,
oft eftir helgar er mikið um inn-
brot og í heimahús þegar fólk er
að koma heim. Verkefnin eru líka
mismunandi milli vakta, það eru
allt öðruvísi verkefni á dagvakt
en á næturvakt meðan borgin sef-
ur.
Þú kynnist ýmsu í þessu starfi
sem aðrir sjá ekki og vilja kannski
ekki sjá. Oft á tíðum finnst manni
maður líka vera að gera þjóðfé-
laginu gagn með því að aðstoða
borgarana. Það er líka athyglis-
vert að vinna með fólk og kynnast
mörgum hliðum á því,“ segir Ægir
aðspurður um kostina við að vera
lögreglumaður. Starfið er þó ekki
gallalaust. „Maður verður náttúr-
lega alltaf að hafa varann á sér.
Enginn passar mann í þessu starfi
nema maður sjálfur og maður
þarf að þekkja inn á sjálfan sig og
sín takmörk.“
Almenn löggæslustörf skiptast
í að sinna útköllum og svokallaða
frumkvæðisvinnu sem er að sögn
Ægis til dæmis að hafa eftirlit
með þekktum brotamönnum,
fíkniefnaeftirlit og umferðareftir-
lit. „Hjá embættinu er rekin skýr
starfsmannastefna sem er bundin
árstímum. Fyrr í sumar voru sett
fram markmið sem voru til dæm-
is að fækka innbrotum og hafa
aukið eftirlit með útivistarsvæð-
um. Þetta er mjög þægilegt því
þetta veitir lögreglumönnum að-
hald og lögregluembættið hér er
mjög framarlega í þessum efnum
að mínu mati,“ segir Ægir og bæt-
ir við að það sé mjög gott að vera
lögreglumaður í Reykjavík.
Ævar kann vel við sig í lögreglunni.
Þverskurður af þjóðfélaginu í lögreglunni
Lagerstarf
Óskum eftir vönum og duglegum lagermanni í
heildverslun í Reykjavík. Stundvísi, reglusemi og
jákvæðni eru skilyrði. Vinnutími er frá kl. 8-18.
Mikil yfirvinna í boði. Reyklaus vinnustaður.
Vinsamlegast sendið umsóknir á
box@frett.is merkt: ,,Jákvæður“
Okkur vantar menn
í vinnu inn á verkstæði.
Mikil vinna
framundan. Hafið
samband í síma
659 5999.
Dalvegur 24, Kóavogur