Fréttablaðið - 28.08.2005, Síða 4
4 28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
S‡rusmygli› a›eins á
færi atvinnumanna
Lithái á flrítugsaldri hefur veri› ákær›ur fyrir a› reyna a› smygla tveimur
flöskum fullum af brennisteinss‡ru til landsins. Brennisteinss‡ra er lykilefni í
amfetamínframlei›slu og er efni› banvænt og mjög eldfimt.
LÖGREGLUMÁL Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli gerði í vik-
unni upptækar tvær flöskur sem
sannast hefur að innihéldu
brennisteinssýru en hún er nauð-
synleg til framleiðslu á am-
fetamíni.
Maðurinn sem reyndi að
smygla flöskunum til landsins er
frá Litháen en kom hingað með
viðkomu í Póllandi og Kaup-
mannahöfn. Ekkert athugavert
fannst við fyrstu leit tollvarða
enda var ekki að sjá að átt hefði
verið við flöskurnar með nein-
um hætti. Þurfti að senda
þær til efnagreiningar hjá
Háskóla Íslands áður en
sannleikurinn kom í ljós.
Litháinn, sem neitar sök,
var handtekinn í kjölfarið
og hefur verið birt ákæra.
Jóhann R. Benedikts-
son, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, telur málið
benda til þess að alþjóðleg
glæpasamtök hafi búið um
hnútana og hafi tengsl
hingað til lands. Það sanni
frágangurinn á flöskum þeim
er teknar voru en ekki sé á færi
annarra en atvinnumanna að
tappa brennisteinssýru á
áfengisflöskur svo ekkert
beri á.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður
Fíkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík, segir fund efnanna á
Keflavíkurflugvelli ekki koma á
óvart. Lögreglan hafi vitneskju
um að hluti þess amfetamíns sem
selt er hér á landi sé framleiddur
hér líka.
„Þetta er ekki alveg nýtt af
nálinni. Það er ekki ýkja langt
síðan við lokuðum slíkri fram-
leiðslu í Kópavogi og dæmi eru
um þetta enn fyrr. Þetta er enn
einn þátturinn í okkar starfi sem
við fylgjumst mjög grannt með.“
Brennisteinssýra er eitt af
lykilefnum við framleiðslu am-
fetamíns en neysla þess efnis
hefur aukist ár frá ári undanfar-
in misseri. Mikil eld- og sprengi-
hætta er af slíkri framleiðslu og
brennisteinssýran sjálf er
ætandi efni sem étur sig gegnum
allt sem fyrir verður.
„Að mínu viti þarf góða kunn-
áttu til að fara með slík efni og
þau eru alveg stórhættuleg í
höndum viðvaninga,“ segir Guð-
mundur G. Haraldsson, prófess-
or í efnafræði við Háskóla Ís-
lands. albert@frettabladid.is
Svínaveiki í Rúmeníu:
Anna› tilfelli›
í mánu›inum
RÚMENÍA, AP Svínaveiki hefur
brotist út í norð-vestur Rúmeníu
og hefur þurft að slátra um 30
svínum og loka kjötmörkuðum.
Þetta er í annað sinn í mánuðin-
um sem svínaveiki hefur komið
upp í héraðinu og þriðja sinn á
árinu.
Sóttkví hefur verið komið á
og lagt hefur verið bann við inn-
og útflutningi svína. Svínaveiki
stafar af vírus sem er banvænn
svínum en leggst ekki á menn.
Ekki er langt síðan upp kom
óþekkt veiki í svínum í Kína
sem varð tugum manns að bana
og hundruð smituðust.
- sda
Mikill erill í sjúkraflutningum:
Sex fluttir í
sjúkraflugi
SLYS Sex beiðnir um sjúkraflug bár-
ust Slökkviliði Akureyrar og Flug-
félagi Íslands á föstudag. Öllum
beiðnunum var sinnt að einni und-
anskilinni sem varð að fresta
vegna veðurs. Fyrsta flugið var
farið á föstudagsmorgun og hið síð-
asta að kvöldi dags.
Mikið hefur verið um sjúkra-
flug frá Akureyri að undanförnu en
sjúkraflug á árinu eru nú orðin 207
talsins.
Gott samstarf er á milli Slökkvi-
liðs Akureyrar, Flugfélags Íslands
og FSA, Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri í sjúkrafluginu. ifv
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÞUNG UMFERÐ Í ÁRNESSÝSLU
Lögreglan á Selfossi veitti því at-
hygli í gær að umferðarþungi
víða um sýsluna var talsvert yfir
meðallagi. Var mikill fjöldi fólks
á öllum helstu ferðamannastöð-
um og fleiri en venjulega sem
tóku helgarbíltúr um svæðið.
BÍLVELTA Á HÁLENDINU Enginn
slasaðist alvarlega þegar fimm
ítalskir ferðamenn veltu bíla-
leigubíl sínum á Kjalvegi snemma í
gær. Bíllinn er ónýtur en orsakir
slyssins sagði lögregla vera
reynsluleysi í akstri á malarvegum.
BJÖRGUNARSVEIT SÓTTI BÁT
Björgunarsveitin í Neskaupstað
sótti bát á haf út í gær og dró
hann til hafnar eftir að netadræs-
ur festust í skrúfu hans. Komst
hann hvorki lönd né strönd en
var aldrei í hættu.
Öfgamaður lokar vefsíðu:
Úthú›ar Blair
KAÍRÓ, AP Útlægur múslími, frá
Sádí- Arabíu, sem á á hættu að
vera rekinn frá Bretlandi fyrir að
halda úti her-
skárri ís-
lamskri vef-
síðu hefur nú
lokað vefsíð-
unni. Mo-
hammed al-
Massari heldur
því fram að
hann hafi gert
það af sjálfs-
dáðum og
bresk yfirvöld hafi ekki haft sam-
band við hann.
Á vefsíðunni eru myndbands-
upptökur af sjálfsmorðsárásum í
Ísrael og Írak, áróður gegn Vest-
urlöndum og hvatningarorð til al-
Kaída.
Al-Massari birti dánartilkynn-
ingu á vefsíðunni og sagði ástæðu
lokunarinnar vera þá heftingu á
tjáningarfrelsi sem hin kúgandi
ríkisstjórn Tony Blair hefði staðið
fyrir. Hann kallaði Blair jafn-
framt lygara og vel þekktan
stríðsglæpamann. ■
Ofurhugi lést við metstilraun:
Komst ekki
yfir 22 rútur
TEHERAN, AP Íranskur ofurhugi lést
þegar hann reyndi að setja heims-
met í því að stökkva á mótorhjóli
yfir rútur.
Ætlunin var að stökkva yfir 22
rútur sem lagt hafði verið þvers-
um, hlið við hlið, en mótorhjól
hans lenti á þrettándu rútunni.
Javad Palizbanian, sem var 44
ára, lést samstundis.
Írönsk sjónvarpstöð var með
beina útsendingu frá atburðinum
en rauf hana um leið og slysið
varð. Aðeins nokkrum mínútum
áður hafði Palizbanian sagt við
hundruð áhorfenda: „Ég ætla að
slá heimsmetið og gera nokkuð
sem landar mínir geta verið stolt-
ir af.“ ■
Vinsælt og hagnýtt námskeið um öll helstu
grundavallaratriði stafrænna myndavéla
og meðferð stafrænna mynda í tölvu.
• Stillingar stafrænna myndavéla
• Stærðir og upplausn mynda
• Myndir færðar yfir í tölvu
• Skipulag myndasafns í tölvu
• Heimaprentun / framköllun
• Myndir skrifaðar á CD/DVD
• Frágangur mynda í tölvupósti
• Grundvallarlagfæringar
• Vinsælt, ókeypis myndvinnslu-
forrit á Netinu tekið fyrir
Lengd námskeiðs: 14 stundir. Verð: kr. 15.000,
(Innifalin er ný kennslubók á íslensku).
S T A F R Æ N A R M Y N D A V É L A R
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
VEÐRIÐ
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,13 63,43
114,02 114,58
77,71 78,15
10,416 10,476
9,793 9,851
8,329 8,377
0,5754 0,5788
92,8 93,36
GENGI GJALDMIÐLA 26.08.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
108,63 -0,34%
MOHAMMED AL-
MASSARI Kallar Tony
Blair stríðsglæpa-
mann á vefsíðu sinni.
SJÚKRAFLUG Það sem af er ári hafa 207
verið fluttir á sjúkrahús með sjúkraflugi.
AMFETAMÍN Brennisteinssýra er meðal annars notuð til að búa til amfetamín.
Búið var að tappa sýrunni, sem reynt var að smygla hingað til lands, á tvær
áfengisflöskur. Önnur þeirra var Ballantines vískíflaska.
HVAÐ ER AMFETAMÍN?
Örvandi ljóst efni sem gjarnan er sogað
upp í nefið í fyrstu og hefur áhrif á
miðtaugakerfið. Öll hugsun og líkams-
starfsemi verða fyrir örvunaráhrifum og
öfgar koma fram í hegðun og fram-
komu. Neytandinn verður ör, skapbráð-
ur, missir matarlyst og sefur lítið sem
ekkert undir áhrifum. Amfetamín er
dýrt efni á markaðnum og er algengt
að afbrot til að kosta mikla neyslu fylgi
í kjölfarið.
BANDARÍKIN „Viðleitni okkar í
Írak og í Miðausturlöndum
þarfnast meiri tíma, frekari
fórna og áframhaldandi ein-
beitni,“ sagði George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, í viku-
legu útvarpserindi sínu.
Nærri 1.900 bandarískir her-
menn hafa fallið í Írak og eykst
þrýstingurinn á Bush að binda
enda á veru bandaríska herliðs-
ins í Írak svo hermennirnir geti
snúið aftur til Bandaríkjanna.
Írakar hafa átt í erfiðum og
tímafrekum umræðum um eðli
og innihald stjórnarskrár fyrir
landið en Bandaríkjamenn álíta
stjórnarskrána vera mikilvægt
skref í áttina að því að tryggja
frið og jafnvægi í landinu. Bush
sagði að Bandaríkin myndu
halda áfram að styðja við bakið
á Írökum meðan á þessu erfiða
ferli stæði.
Ummæli Bush koma í kjölfar-
ið á niðurstöðum nýlegra skoð-
anakannana þar sem kemur
fram að meira en 50 prósent
Bandaríkjamanna telja stríðið í
Írak ganga illa og að meirihluti
þeirra vill að bandarískir her-
menn í landinu verði kallaðir
heim. ■
GEORGE W. BUSH Forseti Bandaríkjanna
hélt ræðu í Idaho á miðvikudag þar sem
hann sagði meðal annars að svo lengi
sem hann væri forseti myndi bandaríska
herliðið vera áfram í Írak.
Meirihluti Bandaríkjamanna vill bandaríska herliðið heim frá Írak:
Bandaríkjamenn færi frekari fórnir