Fréttablaðið - 28.08.2005, Síða 14
Björgólfur Jóhannsson þykist
ekki muna eftir því að hann eigi
afmæli þegar haft er samband við
hann. Síðan hlær forstjóri Síldar-
vinnslunnar og formaður Lands-
sambands Útvegsmanna og segir
að það sé víst rétt að árin verði
fimmtíu í dag. Honum finnst það
þó ekki mikil tímamót og segir líf-
ið ganga áfram sinn vanagang.
„Ég ætla ekki að vera heimavið
í dag heldur ætla ég að fara eitt-
hvert með mínum allra nánustu
vinum og ættingum,“ segir
Björgólfur sem ver afmælisdeg-
inum í Reykjavík. Hann er ekki
mikið fyrir veislur og finnst því
ágætt að flýja að heiman á svona
tímamótum.
Þá man hann heldur ekki sér-
staklega eftir afmælum úr æsku
sinni. „Það var ekki venja að halda
mikið upp á afmæli,“ segir
Björgólfur sem ólst upp í Greni-
vík.
Sumarið hefur verið í rólegri
kantinum hjá Björgólfi en hann
hefur þó farið bæði í laxveiði og
að spila golf. Hann hefur nýlega
ánetjast golfíþróttinni og segist
ekki mjög góður. „En það dugar
fyrir mig. Það er helst að ég verði
að hafa hemil á skapinu,“ segir
Björgólfur hlæjandi en hann telur
mjög jákvætt að golfkylfur séu úr
nær óbrjótandi efni. „Það er verst
þegar kúlan lendir rétt aftan við
þann stað sem hún þegar er á,“
segir forstjórinn og hlær.
Haustið leggst vel í Björgólf.
Horfurnar í síldveiði eru þokka-
lega góðar og nýtt kvótaár hefst 1.
september. „Þá lyftist alltaf brún-
in á útgerðarmönnum,“ segir
Björgólfur sem býst ekki við nein-
um afmælisgjöfum nema ef væri
frá móður sinni sem muni ávallt
eftir sér. ■
14 28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
JOHANN WOLFGANG VON GOETHE
(1748-1832) fæddist þennan dag.
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON FORSTJÓRI SÍLDARVINNSLUNNAR ER FIMMTUGUR
Skeytir skapi á golfkylfum
„Rétt svar er líkt og
kærleiksríkur koss.“
Johann Wolfgang von Goethe var
þýskur rithöfundur og vísindamaður.
Hann er meðal annars höfundur rit-
verksins Faust.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Birgir Sigurðsson rithöfundur er 68 ára.
Hjördís Hákonardóttir héraðsdómstjóri
er 61 árs.
Magnús Þór Sigmundsson tónlistar-
maður er 57 ára.
Örlygur Hnefill Jónsson varaþingmaður
er 52 ára.
Hjálmar Hjálmarsson leikari er 42 ára.
FÆDDUST fiENNAN DAG
1749 Johann Wolfgang von
Goethe rithöfundur
1828 Leo Tolstoj
rithöfundur
1965 Shania Twain
sveitasöngkona
Cetshwayo konungur, síðasti
mikli leiðtogi Zulu-manna, var
handsamaður af Bretum þennan
dag árið 1879. Konungurinn var
sendur í útlegð og þar með lauk
Zulu-stríðinu. Upphaf innrásar
Breta í Zulu-land má rekja til
andstöðu Cetshwayo við breskri
stjórn í suðurhluta Afríku.
Cetshwayo tók við konungstign-
inni að föður sínum látnum árið
1872. Hann var staðráðinn í að
berjast gegn evrópskum yfirráð-
um í konungsríki sínu. Í desem-
ber árið 1878 neitaði Cetshwayo
að leysa upp hersveitir sínar eins
og Bretar kröfðust. Í janúar réð-
ust því Bretar inn á land Zulu
manna. Bretar urðu fyrir miklu
mannfalli í nokkrum bardögum.
En í lok mars snerist gæfan
þeim í hag í bardaganum við
Khambula.
Þar handsömuðu þeir konung-
inn og sendu hann í kjölfarið í
útlegð. Fjórum árum síðar fékk
Cetshwayo að snúa aftur til að
ríkja yfir hluta konungsríkis síns.
Hins vegar höfðu þegnar hans
misst álit á honum vegna ósigra
hans og var hann því fljótlega
gerður útlægur á ný en nú af
þjóð sinni. Cetshwayo dó í út-
legð árið 1884. CETSHWAYO Konungur Zúlúmanna
ÞETTA GERÐIST > 28. ÁGÚST 1879 MERKISATBURÐIR
1818 Landsbókasafn Íslands er stofnað.
Það hét upphaflega Íslands Stiftis-
bókasafn.
1910 Vígslubiskupar eru vígðir í fyrsta
sinn á Íslandi.
1963 „Ég á mér draum,“ segir blökku-
mannaleiðtoginn Martin Luther
King Jr. í sögufrægri ræðu sinni
við Lincoln-minnisvarðann í Was-
hington.
1967 Tólf manna áhöfn Stíganda frá
Ólafsfirði finnst heil á húfi eftir að
hafa verið í björgunarbátum á
fimmta sólarhring.
1986 Bylgjan hefur útsendingar. Hún
var fyrsta útvarpsstöðin í einka-
eign eftir að einkaréttur Ríkisút-
varpsins var afnuminn.
1996 Skilnaður Karls prins og Díönu
prinsessu gengur í gegn.
Konungur Zulu-manna handsama›ur
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
má senda á netfangi›
timamot@frettabladid.is.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dagbjört Sigurðardóttir
frá Stígshúsi, Stokkseyri,
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt föstudagsins
26. ágúst.
Ágúst Guðbrandsson
Hólmfríður Hlíf Steinþórsdóttir Einar Páll Bjarnason
Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir Logi Hjartarson
Kristín Steinþórsdóttir
Jason Steinþórsson Hrönn Sturlaugsdóttir
Guðbrandur Stígur Ágústsson Brynhildur Arthúrsdóttir
Guðríður Bjarney Ágústsdóttir
Sigríður Inga Ágústsdóttir
Dagrún Mjöll Ágústsdóttir Aron Hauksson
barnabörn og barnabarnabörn www.steinsmidjan.is
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma,
Alda Sigurvinsdóttir
Barðastöðum 11, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. ágúst
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahlynningu
Krabbameinsfélagsins.
Kristín S. Vilhelmsdóttir Atli Edgarsson
Guðmundur J. Vilhelmsson Jóndís Einarsdóttir
Ragna G. Vilhelmsdóttir Rudolf K. Rúnarsson
Linda B. Vilhelmsdóttir Óskar G. Óskarsson
Halldór G. Vilhelmsson Íris Ólafsdóttir
Alda Guðlaug, Bryndís Ósk, Ragnar Björn,
Hanna Liv, Guðný Ása og Vilhelm Frank.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Héðinn Jónsson
skipstjóri, Mýrum 14, Patreksfirði,
andaðist mánudaginn 22. ágúst.
Útförin fer fram frá Patreksfjarðarkirkju þriðjudaginn 30. ágúst
kl. 14:00.
Guðrún Jónsdóttir
Elín Magnea Héðinsdóttir Bolli Ólafsson
Jón Már Héðinsson Rósa Líney Sigursveinsdóttir
Inga Mirjam Héðinsdóttir Kristján Hermannsson
Jóhannes Héðinsson Styrgerður Fjeldsted
Freyr Héðinsson Steinunn Finnbogadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Mjólkursamlagi› fær a› standa
MJÓLKURSAMLAGIÐ Mjólkursamlagið er gráa húsið við sjóinn. Það verður ekki rifið
eins og bæjaryfirvöld höfðu áður ákveðið
Hús gamla Mjólkursamlagsins í
Borgarnesi sem teiknað var af
Guðjóni Samúelssyni fyrrum
húsameistara ríkisins verður ekki
rifið eins og áður hafði verið
ákveðið. Bæjarstjórn Borgar-
byggðar hafði ákveðið að fjar-
lægja húsið, sem er frekar illa
farið, til að rýma fyrir nýrri
íbúðabyggð við Brákasund. En því
var víða mótmælt hástöfum og
stofnuð voru hollvinasamtök
Gamla Mjólkursamlagsins, enda
þykir húsið hafa menningarsögu-
legt gildi.
„Það var ákveðið á síðasta
fundi bæjarráðs að ganga til
samninga um sölu á húsinu,“ seg-
ir Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri
Borgarbyggðar. Páll Björgvins-
son arkitekt hefur gert kauptilboð
í húsið en bæjarstjóri telur að
hann muni nýta það fyrir íbúðir
og menningartengda þjónustu.
„Við settum þau skilyrði að þetta
yrði í takt við það skipulag sem
þarna er fyrir,“ segir Páll
Brynjarsson sem telur hugmynd-
ir Páls Björgvinssonar í samræmi
við það.
„Menn eru mjög sáttir við þá
niðurstöðu að þarna væri aðili
sem væri tilbúinn að gera húsið
upp en Borgarbyggð treysti sér
ekki í þær framkvæmdir,“ segir
Páll.
ANDLÁT
Sævar Tryggvason lést á Landspítalan-
um við Hringbraut, föstudaginn 26.
ágúst.
Elín Guðmundsdóttir lést á Sjúkrahúsi
Akraness, föstudaginn 26. ágúst.
Kristján FR. Hagalínsson lést á Landspítal-
anum Fossvogi, miðvikudaginn 24. ágúst.
Sigurður Guðmundsson lést á Landspít-
alanum Fossvogi, fimmtudaginn 25. ágúst.