Fréttablaðið - 28.08.2005, Side 19

Fréttablaðið - 28.08.2005, Side 19
SUNNUDAGUR 28. ágúst 2005 með að fá starf.“ Framundan eru mörg verkefni og Halldór hlakkar til að takast á við verkefni næstu ára sem for- sætisráðherra og bjart er framundan í íslensku þjóðfélagi. Af því sem hæst er framundan nefnir Halldór andvirði Símans. „Það er margt framundan og af mörgu að taka. Við verðum til dæmis að ákveða hvernig á að ráðstafa söluhagnaðinum af Sím- anum. Við höfum sagt að það verði gert með hagsmuni samfé- lagsins í huga. Stórum hluta verði varið til þess að greiða niður skuldir og það er alveg einstakt hvað okkur hefur tekist að laga stöðu ríkisins. Það er ekki nema áratugur síðan að vaxtagjöld rík- isins voru jöfn því sem við vorum að eyða til allra menntamála í landinu. Þetta er auðvitað allt öðruvísi í dag. Við getum því leyft okkur á næstu árum að nota þenn- an ágóða af Símanum til verkefna sem við hefðum annars ekki farið í. Þetta á almenningur eftir að sjá. Við erum ekki tilbúin með það mál en við verðum tilbúin með það þegar þing kemur saman.“ Formaður Samfylkingar skapaði los milli R-listaflokkanna Halldór syrgir ekki Reykjavíkurlistann en segir Framsóknarflokkinn hafa reynt að bjarga samstarfinu. Hverjar telur hann ástæðurnar fyrir endalokum framboðslistans? „Þær eru margar. Það er ljóst að Vinstri grænir voru mjög ákveðnir í því að róa á eigin mið. Það voru mikil vatnaskil í sögu Reykjavíkurlistans þegar sá aðili sem hafði leitt hann alla tíð gekk opinberlega til samstarfs við Samfylkinguna og er nú formaður hennar. Það hlaut að hafa einhver áhrif og það skapaði los á milli flokkanna. Síðan er það nú þannig að í öllum flokkum er vilji til þess að bjóða fram í eigin nafni og mér sýnist að hann sé að verða ofan á. Ég er bjartsýnn á framboð Framsóknarflokksins í Reykjavík. Við eigum góða möguleika því okkar fólk hefur unnið mjög gott starf innan Reykjavíkurlistans og ég spái því að Framsókn- arflokkurinn eigi eftir að koma betur út úr skoðanakönnunum á næstunni þannig að ég kvíði engu um kosningarnar. Það hefur oft verið spáð illa fyrir okkur og ég man sérstaklega eftir því í aðdraganda síðustu kosninga. Þá voru raddir uppi um það að Framsóknarflokkurinn væri næstum búinn að vera. Það varð svo auðvitað langt frá því og er.“ Baugur dæmdur fyrir dómstólum en ekki í fjölmiðlum Baugsmálið var þingfest í síðustu viku, hvernig blasir það við Halldóri? „Mér finnst alltaf slæmt þegar stór fyrirtæki og athafnamenn í íslensku viðskiptalífi eru ákærðir fyrir lögbrot. Það er alvarlegt mál. Það er hins vegar þannig að niðurstaða í slíku máli verður að fást fyrir dómstólum. Hún fæst ekki í fjölmiðlum eða almennri umræðu og það hefur allt of oft komið fyrir að menn hafa nánast verið dæmdir sekir eða saklausir í fjölmiðlum landsins. Það geri ég ekki og tek ekki þátt í því. Ég tel að allir aðilar verði að hafa þolinmæði til þess að málið fái eðlilega umfjöllun og mér hefur fundist menn fara allt of geyst í fjölmiðlum í þessu máli. Ég vænti þess að það fáist niðurstaða sem fyrst í málinu því það er mikilvægt fyrir alla aðila.“ Málinu hefur af sumum verið stillt upp sem baráttu milli pólitískra afla í landinu en Halldór gefur lítið fyrir slíkar kenningar. „Ég tel það fráleitt að stilla þessu máli svona upp. Ríkisstjórn hefur ekki afskipti af lögreglunni og hvað þá dómstólum. Dómstólar hafa oft fellt úrskurði sem hafa verið mjög óþægilegir fyrir ríkisstjórnina og niðurstöður Hæstaréttar í nokkrum málum hafa kallað á viðbrögð af okkar hálfu sem við höfum aldrei reiknað með. Þannig að ég tel að þau mál sýni vel sjálfstæði dómstólanna gagnvart framkvæmdavaldinu.“ Halldór ætlar að vera áfram í stjórnmálum og segir að sér líki þau vel. „Ég er ekki á förum úr íslenskum stjórnmálum. Ég hef haft gaman af því að vera í stjórnmálum í gegnum árin og sérstaklega að taka þátt í þeim breytingum sem hafa orðið á íslensku þjóðfélagi. Ég hef upplifað miklu meiri breytingar en ég hefði nokkurn tímann geta trúað. Mér finnst ég hafa tekið þátt í að ná árangri fyrir Íslands hönd sem ég hélt að væri ekki hægt. En eftir því sem við höfum náð meiri árangri þeim mun meiri trú hef ég fengið á að við getum gert enn betur og mér hefur fundist sérstaklega ánægjulegt að taka á móti erlendum gestum sem að hrífast af íslensku samfélagi og sjá hvað allt gengur hér vel.“ Sumarið hefur liðið hratt en Halldór hefur notið þess. „Sumarið hefur verið gott. Ánægjulegustu tíðindi sumarsins eru að heima hjá okkur er lítil stúlka sem er hálfs mánaðar gömul. Það er yngsta barnabarnið okkar og það hefur verið yndislegt að fylgjast með henni frá því hún kom heim eins dags gömul. Annars hefur sumarið liðið hratt en ég hef notið þess, geri mér alltaf eitthvað til skemmtunar, gekk til dæmis á Esjuna í vikunni og hef almennt haft af nægu að taka. Það tekur líka sinn tíma að vera forsætisráðherra.“ ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.