Fréttablaðið - 28.08.2005, Page 53
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna
starfsemi á árinu 2006. Meðal markmiða styrkveitinga er að
styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og
einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í
samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun
borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði
eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• menntamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• jafnréttismála
• menningarmála
• umferðaröryggismála
Vakin er athygli á því að reglur um styrkveitingar er að finna
á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/styrkir. Þar er
einnig að finna nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar
í einstökum málaflokkum.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem nálgast
má á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/styrkir.
Eyðublöðum þessum skal skilað rafrænt ásamt fylgigögn-
um, eða, ef þess er ekki kostur, í Ráðhús Reykjavíkur,
merktum Reykjavíkurborg – styrkumsókn.
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. október nk. og eru
einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan
tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur
Reykjavíkurborgar kveða á um.
Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir
alla jafna ekki veittir til kaupa á húsnæði, og ekki eru
veittir styrkir til greiðslu fasteignagjalda. Umsóknir verða
metnar með hliðsjón af eftirfarandi:
• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að
þeim verði náð
• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
• hvort unnt sé að meta framvindu verksins
• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa
hlotið uppfylli lágmarkskröfur
• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir
umrædda starfsemi
• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun
sem einnig skal fylgja umsókn
Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast
ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð
fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í árslok 2005.
Styrkir
Reykjavíkurborgar
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar
má senda á netfangið styrkir@reykjavik.is
www.reykjavik.is/styrkir
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
21SUNNUDAGUR 28. ágúst 2005
Silfra›ur leikjasími
Sigurður Sigtryggsson úr akureyrsku
rappsveitinni Skytturnar hefur gefið út
sólóplötuna Activity undir listamannsnafn-
inu Sadjei.
Aðeins er sungið í einu lagi á plötunni,
sem er að mestu leyti byggð á „sömplum“
þar sem bútum úr lögum er skeytt saman. Í
laginu sem er sungið rappa þeir Sadjei og
Clash B úr hljómsveitinni Forgotten Lores
saman. „Mig langaði að gera eitthvað sjálf-
ur, eitthvað sem er bara ég,“ segir Sigurður
um plötuna. „Þetta er efni frá síðasta vetri
sem ég er búinn að vera að dunda mér við.“
Þetta er önnur sólóplata Sigurðar en sú
fyrsta kom út árið 2002 og var einungis gef-
in út í 70 eintökum. Hefur hún mestmegnis
verið í gangi á netinu síðan þá. Sadjei held-
ur útgáfutónleika vegna nýju plötunnar á
Pravda í byrjun september. ■
Medal of Honor-leikirnir hafa far-
ið yfir nánast alla seinni heims-
styrjöldina í leikjaseríunni. Sumir
hafa verið fínir en aðrir síðri.
European Assault kemur ferskur
inn í seríuna með sterkum tón.
Leikurinn byggir á upplifun raun-
verulegrar persónu sem hjálpaði
til, eftir fremsta megni, við gerð
leiksins. Þetta er sennilega næsta
skrefið í þessum geira; að blanda
raunverulegu hetjunum saman við
bardagana sem breyttu heims-
myndinni. Það gerir leikina per-
sónulegri og raunverulegri fyrir
vikið.
Umgjörð
Leikurinn gerist að sjálfsögðu í
seinni heimsstyrjöldinni í Evrópu
en einnig í Afríku og Rússlandi.
Borðin eru stór og umhverfin eru
vel hönnuð með raunverulegum
staðháttum fyrir hvert landsvæði
sem auka gæði leikjarins til muna.
Leikurinn gerist bæði innan og
utan dyra sem eykur enn á fjöl-
breytnina. Stærð borðanna gera
það að verkum að spilarinn hefur
frelsi til að klára borðin á sinn
hátt.
Spilun
Sem fyrstu persónu skotleikur á
leikjatölvu er hann vel gerður.
Auðveld stjórnun skilar meiri leik-
gleði án vandkvæða. Það þarf að
passa upp á persónuna þar sem
ekki er hægt að vista leikinn í
miðju borði. Það er pirrandi í byrj-
un en venst svo vel við spilun
leiksins þar sem markmiðið er
raunveruleikinn í að halda lífinu í
þínum manni. Þegar líður á leikinn
fær spilarinn hermenn undir sína
stjórn. Þótt svo skipanir séu ekki
ýkja margar fyrir liðsmennina þá
hjálpa þeir mikið við framgang
leiksins svo lengi sem þeir lifa af
bardagana. Mikilvægt er að passa
upp á líftóruna í þeim vegna þess
að bónusar fást fyrir að koma liðs-
mönnum í gegnum borðin á lífi.
Það eru ýmis markmið í hverju
verkefni fyrir sig og er spilarinn
metinn fyrir að klára flest eða öll
þeirra. Vopnin í leiknum eru raun-
veruleg en spilarinn getur borið fá
vopn og því mikilvægt að velja þau
fyrir mismunandi aðstæður.
Grafík og hljóð
Allt gott að frétta í grafík og hljóð-
geiranum þar sem framleiðandinn
skilar verkinu vel. Þróun á serí-
unni þar sem framleiðandinn
kreistir djúsinn úr PS2 eins mikið
og hægt er miðað við umfang leikj-
arins. Grafíkin er góð og tónlistin
er epísk eins og gengur og gerist í
svona leikjum. Franz Gunnarsson
MEDAL OF HONOR: EUROPEAN ASSAULT
VÉLBÚNAÐUR: PLAYSTATION 2
FRAMLEIÐANDI: EA LOS ANGELES
ÚTGEFANDI: ELECTRONIC ARTS
HEIMASÍÐA:
HTTP://WWW.EAGAMES.COM/OFFICI-
AL/MOH/EUROPEANASSAULT/US/
Niðurstaða: Besti MOH-leikur sem ég hef spil-
að á leikjatölvu með fullt af nýjungum sem
blása nýju lífi í seríuna sem var komin í óefni.
Sögulegur leikur þar sem kraftar William Holt
eru nýttir við gerð leiksins. Þessi leikur sómir
sig vel í Playstation 2-tölvunni fyrir hernaðar-
sinnaða spilara.
[ TÖLVULEIKIR ]
UMFJÖLLUN
Sadjei gefur út plötu
SADJEI Sigurður Sigtryggsson, eða Sadjei, hefur gefið út plötuna Activity.
Frá því að Neon Golden með The
Notwist kom út, hef ég verið að
bíða eftir því að heyra eitthvað
nýtt frá þeirri frábæru sveit. Þar
var svo sannarlega plata á ferð
sem breytti því hvernig ég upp-
lifði tónlist það árið. Sú plata kom
út síðla árs 2002 og við verðum
víst að bíða eitthvað áfram. Þessi
plata hér er róar mann þó heilmik-
ið í biðinni, því 13 & God er nefni-
lega samstarfsverkefni þýsku
snillinganna og kaliforníu
hipphoppdúettsins Themselves.
Þetta hljómar því eins og The
Notwist, með sérstaklega fersk-
um og góðum röppurum og takt-
smiðum. Auðvitað hljómar þetta
eins og fallegasta brúðkaup sem
þú hefur farið í. Fallegt, gegnheilt
og eitthvað ekta sem á eftir að lifa
lengur en batteríin í spilaranum
þínum. Er það ekki ást?
Þessi plata var víst spunnin á
staðnum, á tveimur vikum þegar
plön beggja sveita brugðust.
Þannig eru oftast bestu hugmynd-
irnar gripnar úr tómu lofti. Þessi
tónlist hefur allan sjarma í rafbít-
um og tónsmíðum og fyrri verk
The Notwist. Einhvers staðar sá
ég hinum sérstæða tón sveitarinn-
ar lýst sem „elektrónískt viðar-
vinds popprokk“ og finnst það
smellpassa. Þetta er ótrúlega vin-
gjarnlegt, en þó alltaf svalara en
andskotinn. Hér blanda þeir
áfram blásturshljóðfærum við
beitt bít og órafmagnað gítarspil.
Rappsveitina Themselves hef ég
nú bara ekki heyrt um áður. Rödd
rapparans Doseone er alveg
mögnuð, og fer sérstaklega vel
við dreymandi tóna Notwist.
Hann hefur mjög sérstæðan rapp-
stíl, og heldur sig algjörlega á lín-
unni á milli söngs og rapps. Og
ekki skemmir að hann er ljóð-
rænn og rappar um eitthvað
áþreifanlegra en byssur, brjóst og
bling bling.
Plata sem allir grúskrarar ættu
að tékka á, og enn einn gullmoll-
inn í annars ágætis tónlistarári.
Birgir Örn Steinarsson
Gu›i sé lof!
13 & GOD:
13 & GOD
NIÐURSTAÐA: Þetta samstarfsverkefni The
Notwist og hipphoppdúettsins Themselves
gæti varla verið betur heppnað. 13 & God er í
senn dáleiðandi og sjarmerandi, eins og gott
axlarnudd á sálina.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Ferskir strí›svindar
Nokia-risinn hefur tilkynnt um
silfurútgáfu á N-Gage leikjasím-
anum sínum fyrir Evrópu, Mið-
Austurlönd og Afríkumarkað.
Nokia mun halda áfram að styðja
við leikjasímann með frekari út-
gáfu á titlum eins og One, System
Rush, Pathway to Glory, Ikusa Is-
lands og High Seize.
Útgáfan sem ber heitið N-Gage
QD Silver Edition kemur á mark-
að fyrsta september og býr yfir
öllum möguleikum sem „Smart-
phones“ hafa eins og dagatali,
tenglasafni, vefpósti, vafrara,
Bluetooth-tengingu og GPRS.
Meðal leikja sem eru fáanlegir
fyrir N-Gage eru: Asphalt: Urban
GT, Bust-A-Move, FIFA Soccer
2005, Pandemonium, Rayman 3:
Hoodlum Havoc, The Sims
Bustin' Out, Tiger Woods PGA
Tour 2004, Tom Clancy's Splinter
Cell, Tomb Raider, Tony Hawk's
Pro Skater, Virtua Tennis, Worms
World Party. ■