Fréttablaðið - 28.08.2005, Qupperneq 61
PATRICK VIEIRA Patrick Vieira er hér í harðri baráttu við Dejan Stankovic, leikmann Inter. Vieira á eflaust eftir að láta finna vel fyrir sér á
Ítalíu líkt og hann gerði svo oft með Arsenal.
SUNNUDAGUR 28. ágúst 2005 29
Framherjinn Luca
Toni, sem leikur
með Fiorentina,
hefur verið einn
hættulegasti fram-
herji ítölsku deild-
arinnar undanfarin
ár. Hann er stór,
193 sentímetrar, og
sterkur og því illvið-
ráðanlegur í teign-
um. Hann er 28 ára gamall og hefur
verið í leikmannahópi ítalska lands-
liðsins síðan á heimsmeistaramótinu
2002 í Japan og Suður-Kóreu.
LUCA TONI (FIORENTINA)
VALERI BOJINOV(FIORENTINA)
Portúgalski miðjumaðurinn Luis Figo er
öllum knattspyrnuáhugamönnum að
góðu kunnur. Figo er kannski frægastur
fyrir að hafa yfirgefið Barcelona og
gengið til liðs Real Madrid, og ollu þau
félagsskipti miklu fjaðrafoki á Spáni.
Figo er staðráðinn í því að sýna sitt rétta
andlit á Ítalíu en hann náði sér ekki al-
mennilega á strik á síðustu leiktíð hjá
Real Madrid og var seinnihluta tímabils-
ins á varamannabekknum.
LUIS FIGO (INTER MILAN)
Einn af athyglis-
verðustu leikmönn-
um síðustu leiktíð-
ar á Ítalíu var sókn-
armaðurinn skæði
hjá Sampdoria,
Francesco Flachi.
Flachi sem bæði
getur leikið sem
miðjumaður og
sóknarmaður, er
skapandi leikmað-
ur sem glæðir leik Sampdorialiðsins
miklu lífi. Flachi er orðinn þrítugur og
því verður spennandi að sjá hvernig
hann bregst við aukinni ábyrgð og álagi
á komandi tímabili, eftir síðustu leiktíð
sem var frábær.
FRANCESCO FLACHI (SAMPDORIA)
Corradi kom til Parma í
sumar frá Valencia, en
hann náði sér ekki á
strik með Valencia á
síðustu leiktíð. Corradi
er sóknarmiðjumaður
sem einnig getur leikið
framarlega á miðjunni.
Mikið mun mæða á
honum í sumar í sókn-
inni hjá Parma og er
honum ætlað að fylla skarðið sem Al-
berto Gilardino skildi eftir sig, en hann
fór til AC Milan í sumar.
BERNANDO CORRADI (PARMA)
FÓTBOLTI Það má búast við því að
Juventus, AC Milan og Inter Milan
verði aftur í fremstu röð, en öll
þessi félög hafa styrkt leikmanna-
hópa sína mikið. Fyrirliði Arsenal
Patrick Vieira verður í eldlínunni
með Juventus en hann gekk í raðir
liðsins í sumar. Hann mun styrkja
miðjuspilið mikið enda frábær
leikmaður þar á ferð.
Að sama skapi verður for-
vitnilegt að fylgjast með því
hvernig framlínumenn AC Milan
munu ná saman. Andriy
Shevchenko, Christian Vieri,
Fillipo Inzaghi og ungstirnið Al-
berto Gillardino munu berjast
um sæti í liðinu, og eru fá lið í
deildinni sem hafa jafn marga
heimsklassa framherja í leik-
mannahópi sínum.
Erkióvinur AC Milan Inter
hefur sjaldan verið með sterkari
leikmannahóp, en Santiago Sol-
ari, Luis Figo og Walter Samuel
gengu allir til liðs við félagið í
sumar. Þá hefur Juan Sebastian
Verón, fyrrverandi leikmaður
Manchester United og Chelsea,
verið í sínu besta formi í sumar
og er staðráðinn í því að sýna sitt
rétta andlit á tímabilinu sem
fram undan er. „Ég hef endur-
heimt sjálfstraustið aftur hjá Int-
er og ég ætla mér að sýna stuðn-
ingsmönnum félagsins hvers ég
er megnugur.“
Ekki bara sterkar varnir á Ítalíu
Það hefur löngum verið sagt að
það sé spilaður alltof stífur varnar-
leikur á Ítalíu. En bestu sóknar-
menn heims hafa þó oftar en ekki
leikið í ítölsku deildinni og er því
ætíð um mikla baráttu að ræða á
milli sterkra varnar- og sóknar-
manna. Carlo Ancelotti, knatt-
spyrnustjóri AC Milan, vonast til
þess að geta sýnt áhorfendum góða
knattspyrnu á komandi leiktíð.
„Helsti vandi okkar á síðustu leik-
tíð var sá að varnarleikurinn var
ekki nægilega stöðugur. Stundum
var hann góður og svo komu leikir
þar sem hann var alls ekki nægi-
lega góður. Þrátt fyrir að margir
telji öll ítölsk lið vera of varnar-
sinnuð þá er ég alls ekki sammála
því. Hér á Ítalíu hafa alltaf verið
heimsklassa sóknarmenn og oftar
en ekki reyna öll lið að sækja til
sigurs. AC Milan er sóknarlið og
hefur alltaf verið það.“
Miklar kröfur gerðar til Juventus
Mikil pressa er leikmönnum
Juventus að verja deildarmeist-
aratitil sinn frá síðustu leiktíð, en
þá tókst liðinu að komast á toppinn
undir lok leiktíðarinnar. Fabio
Capello, knattspyrnustjóri Juvent-
us, vonast til þess að tilkoma
Frakkans Patrick Vieira til félags-
ins færi liðinu nauðsynlega breidd
til þess að geta verið í baráttunni
um sigur í öllum keppnum sem lið-
ið keppir í. „Ég er viss um að Vieira
á eftir að vinna titla með Juventus
og hann á eftir vera lykilmaður hjá
okkur. Það er markmið okkar að
komast lengra í Meistaradeild Evr-
ópu á komandi leiktíð en á þeirri
síðustu og vonandi tekst okkur að
vinna hana. Leikmannahópurinn er
orðinn virkilega góður og það er
mikið af leikmönnum í honum sem
vita hvað þarf til þess að vinna
titla.“ magnush@frettabladid.is
Sumarið sem nú er að renna sitt skeið verður að teljastþað erfiðasta í sögunni fyrir knattspyrnuyfirvöld á Ítalíu. Íhverri viku júlímánaðar var einu liði vísað úr Serie A þótt
sum þeirra fengju að skríða uppí þá miklu sæng á nýjan leik í
ágúst. Ekki varð endanlega ljóst fyrr en langt var liðið á mán-
uðinn hvaða lið nákvæmlega myndu vera í deildinni og leikja-
skráin var ekki tilbúin fyrr en í síðustu viku. Það er orðið árlegt
brauð að lið séu dæmd niður um eina deild eða tvær. Varpar
þetta miklum og dimmum skugga yfir ítalska knattspyrnu og
mun hún ekki endurheimta fyrri virðingu sína nema að takist
að koma í veg fyrir slíkar uppákomur í framtíðinni.
Mikið áfall fyrir Genúa
Það er mikil eftirsjá af þeim liðum sem dæmd voru niður,
Tórínó og Genúa. Bæði eru í hópi sigursælustu og best
studdu liða landsins í gegnum tíðina, stórveldi sem mega
muna sinn fífil fegurri en sáu bjartari tíð handan við hornið.
Tórínó var dæmd niður fyrir fjármálaóreiðu, rétt eins og Fior-
entina um árið, en þó ekki lengra en í Serie B. Mál Genúa var
sýnu alvarlegra en liðið var dæmt niður í Serie C fyrir að
múta forsvarsmönnum Venezia í lokaleik síðustu leiktíðar.
Er það mál í senn sorglegt og hlægilegt því lögreglan var
að rannsaka allt annað mál sem snerist að Feneyingum
og vafasömum viðskiptum stjórnarmanna liðsins. Voru
símar þeirra hleraðir og heyrðust vægast samt
vafasöm símtöl við stjórnarmenn Genúa um
samkomulag um að tryggja Genúamönn-
um sigur í leiknum mikilvæga.
Ég á marga vini sem eru stuðnings-
menn Genúa og eru þeir með
böggum hildar eftir þetta áfall,
enda liðið búið að dvelja 10 ár í
annarri deild og mikil eftirvænt-
ing ríkjandi fyrir komandi leiktíð.
Þeir eru flestir sammála um sekt sinnna manna en þykir refs-
ingin ansi hörð. Málið er reyndar enn rekið fyrir almennum
dómstólum og ef niðurstaða þar gengur þvert á úrskurð
knattspyrnuyfirvalda mun það setja alla leiktíðina í uppnám.
Fiorentina og Parma gætu komið á óvart
Þessar snautlegu uppákomur hafa varpað skugga á þá stað-
reynd að flest betri lið deildarinnar mæta sterkari til leiks í
haust en í fyrra. Telja margir að deildin verði sterkari í ár en
hún hefur verið um langt skeið. Meistarar Juventus hafa kíttað
í einu götin sem glitti í þar á bæ með komu Patrick Viera og
Robert Kovac. Áherslan hjá „gömlu frúnni“ sögð á Meistara-
deildina þennan veturinn og kann það að opna leiðina fyrir
Mílanóliðin tvö að meistaratigninni heimafyrir.
Aðdáendur Inter eru með hraðastan
hjartsláttinn enda langþjakaðir af
eins og hálfs áratugar eyðimerkur-
göngu. Þjálfarinn Roberto
Mancini þykir hafa unnið afar
gott starf og nýju leikmennirnir
ekkert slor; Figo, Samuel og
Solari auk Pizarro sem kom frá
Udinese. AC Milan hafði alla
burði til að gera betur í fyrra og
mætir með svaðalega sóknarlínu til
leiks. En aumingjaskapurinn gegn
Liverpool kann að sitja í mannskapn-
um og það virðist vanta drápseðli í liðið
til að klára verkefnin. Af öðrum liðum
verður mest spennandi að fylgjast með
Fiorentina sem gæti orðið spútniklið
vetrarins og Parma en þar verður engin
lognmolla í kringum nýja eigandann, Lor-
enzo Sanz fyrrum forseta Real Madrid.
Sumar skandala a› baki
EINAR LOGI VIGNISSON: SERIA A
SPÁ FRÉTTABLAÐSINS FYRIR
SERIE A:
TOPPBARÁTTAN
Juventus
AC Milan
Inter
BARÁTTAN UM MEISTARADEILDARSÆTI
Fiorentina
Sampdoria
Udinese
Roma
MIÐJUMOÐIÐ
Parma
Palermo
Livorno
Lazio
Lecce
Chievo
Messina
Cagliari
BOTNBARÁTTAN
Reggina
Empoli
Ascoli
Siena
Treviso
FÓTBOLTI Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko segist ekki
leggja áherslu á að skora mörkin fyrir AC Milan, heldur frekar að
vinna leikinn. „Það skiptir mig ekki öllu máli hver skorar mörkin.
Aðalmarkmið liðs á að vera að vinna leikinn og það er ekkert aðalat-
riði hver skorar mörkin. Ég er alltaf ánægður ef liðið
vinnur og ég sætti mig alveg við að skora ekki.“
Shevchenko hefur skorað meira en tuttugu mörk á leik-
tíð á öllum fimm leiktíðunum sem hann hefur leikið fyr-
ir AC Milan. Sú staðreynd gerir hann að einum mesta
markaskorara Evrópu. Shevchenko er fyrirliði
landsliðs Úkraínu og er án efa besti leikmaður liðs-
ins. „Þetta tímabil sem nú er að hefjast er mikil-
vægt fyrir mig. Ég verð að standa mig vel með
AC Milan svo ég geti verið í toppformi með
Úkraínu í heimsmeistarakeppninni, því
þangað ætla ég mér að komast.“ - mh
Andriy Shevchenko segir ekki mikilvægast að skora mörkin:
Skiptir mestu a› vinna leikina
Í SPILIN FYRIR
BOLTANN Í VETUR
eins og trúabrög›
góðir fótboltamenn og segir Pét-
ur marga þeirra sem aldrei eru í
sviðljósinu vera frábæra leik-
menn. „Þegar ég var að leika á
Spáni þá voru margir virkilega
góðir knattspyrnumenn að spila
sem voru ekkert sérstaklega
frægir. Þess vegna finnst mér
svo athyglisvert að fylgjast með
spænska boltanum, þar sem þeir
sem stundum eru kallaðir miðl-
ungsleikmenn eru það bara alls
ekki. Nánast allir knattspyrnu-
mennirnir í efstu deild á Spáni
eru góðir og þess vegna er gaman
að fylgjast með flestum leikjun-
um í deildinni.“
Knattspyrnan á Ítalía er
stundum sögð of varnarsinnuð,
en þrátt fyrir það leika margir af
bestu sóknarmönnum heims á
Ítalíu. „Ég er auðvitað alltaf
hrifnari af sóknarbolta en oft á
tíðum getur verið skemmtilegt
að fylgjast með liðum eins og AC
Milan og Juventus. En ef maður
ber þau saman við stærstu félög-
in á Spáni, Barcelona og Real Ma-
drid, þá er ég hrifnari af þessum
frjálsa og skemmtilega sóknar-
AC Milan, Inter og Juventus eru líklegust til fless a› berjast um sigurinn í efstu deild á Ítalíu á komandi
leiktí› en öll flessi félög hafa bætt vi› sig sterkum leikmönnum sem munu eflaust eiga eftir a› setja
mark sitt á keppnistímabili›.
Barátta á milli risanna þriggja
FYLGSTU MEÐ ÞESSUM
Á ÍTALÍU Í VETUR:
Búlgarska ungstirnið Valeri Bojinov,
sem er aðeins nítján ára gamall, sló í
gegn á síðustu leiktíð og fór hann í
kjölfarið frá Lecce til Fiorentina. Hjá
Lecce blómstraði hann og var um Boj-
inov rætt sem einn allra efnilegasta
leikmanninn á Ítalíu. Bojinov náði sér
ekki nógu vel á strik hjá Fiorentina
seinnipart tímabilsins en reikna má
með því að hann verði hættulegur í
framlínu liðsins á komandi leiktíð.