Fréttablaðið - 28.08.2005, Page 70
Eins og flestir vita er leikarinn Rob
Schneider á landinu í þeim tilgangi
að kynna mynd sína Deuce Bigalow:
European Gigolo. Það sem færri
vita er að þó svo að hann hafi ekki
verið lengi á landinu þá hefur hann
nú þegar lagt leið sína í Nonnabúð
og splæst í jakka í merkinu vinsæla
Dead. Eflaust hefur hann splæst í
eitthvað fleira því hann er nú
einu sinni Hollywood-leikari og
hlýtur að hafa eitthvað á milli
handanna. Athygli vakti að vin-
kona hans sem var með honum
á frumsýningunni klæddist
þar einnig Dead-peysu.
Þegar komið var í eft-
irpartýið á skemmtistaðnum
Rex mættu þar fleiri alvöru
Hollywood-stjörnur sem dvelja
hérlendis vegna myndarinnar
Flags of our Fathers og þar á með-
al leikarinn Jesse Bradford sem
meðal annars hefur leikið í mynd-
unum The Swimfan og Bring It On.
Bradford stóð upp úr leikarahópn-
um vegna hettupeysunnar sem
gægðist upp úr jakkanum en á
henni var letrað merki Dead.
Þetta er svosum ekkert nýtt af
nálinni, því áður hafa stór-
stjörnur gert stórkaup í búðinni
og þar á meðal söngkonan Pink. En
það er augljóst að Nonnabúð er far-
in að vera eins og Bláa Lónið fyrir
erlenda ferðamenn, því þegar kom-
ið er til Íslands og ferðamaðurinn
jafnvel búinn að tékka á Lóninu þá
liggur straumurinn greinilega bein-
ustu leið í Nonnabúð. ■
38 28. ágúst 2005 SUNNUDAGUR
Tónlistarkonan Hera mun hita upp fyr-ir sjálfan Joe Cocker á tónleikunum
sem hann heldur í Laugardalshöll
fimmtudaginn 1. september. Hera er að
senda frá sér sína fimmtu breiðskífu í
næsta mánuði en eins og flestir vita er
Hera íslenskur tónlistarmaður sem býr á
Nýja Sjálandi. Hera hefur gefið út fimm
hljómplötur og er virt hér á
landi bæði sem söng-
kona og lagahöfundur.
Hún er alls ekki óvön því
að hita upp fyrir stór-
stjörnur því fyrir
nokkrum árum hit-
aði hún upp hér í
Reykjavík fyrir Nick
Cave og í sumar spilaði hún meðal ann-
ars á Glastonbury tónlistarhátíðinni í
Bretlandi.
Ínæstu viku er áætlað að stórar tökurfari fram í kvikmynd Clints Eastwood
Flags of our Fathers. Má þar nefna
fánatökuna frægu sem nánast öll mynd-
in snýst um. Það bregður hins vegar svo
við að margir staðgenglar eru farnir til
náms og annarra starfa þannig að ein-
hver skortur er á slíkum. Þess vegna
gefst nú enn fleiri íslenskum hreysti-
mönnum tækifæri til að komast í tæri
við Hollywood- stjörnurnar Ryan
Phillippe og Jesse Bradford að
ógleymdum Eastwood sjálfum. Það er
Eskimo Group sem hefur veg og vanda
að því að velja í hlutverkin.
Það hefur farið mikið fyrir bandarískaleikaranum Rob Schneider sem sótti
Ísland heim í vikunni til þess að kynna
nýjustu myndina sína Deuce Bigalow:
European Gigolo. Því hefur verið haldið
nokkuð á lofti í fjölmiðlum, þar á meðal
Fréttablaðinu, að Schneider sé fyrsta
Hollywood-stjarnan sem komi hingað
gagngert til þess að kynna kvikmynd en
það er ekki alls kostar rétt þar sem
Óskarsverðlaunahafinn Jon
Voight, faðir sjálfrar Ang-
elinu Jolie og ágætur
vinur Árna Samúels-
sonar í Sambíóunum,
kom til Íslands
árið1990 til að kynna
kvikmyndina sína, Et-
ernity sem Árni sýndi.
Straumurinn liggur í Nonnabú›
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Takk
Tuttugu
1.065 milljónir króna.
Jón Gnarr, skemmtikraftur með
meiru, ætlar að leggja sitt af
mörkum í jólabókaflóðinu. Hann
rær á trúarleg mið því Skálholts-
útgáfan, útgáfufélag þjóðkirkj-
unnar, sér um útgáfuna á riti sem
mun innihalda pistla sem Jón hef-
ur skrifað í Fréttablaðið auk nokk-
urra sem ekki hafa birst áður.
Síðasta haust renndi Jón Gnarr
hýru auga til guðfræðinnar í Há-
skóla Íslands og því ljóst að í hon-
um eru trúarlegar taugar. „Ég
skoðaði möguleika mína á að kom-
ast þar inn og þeir voru engir
vegna þess að ég er ekki með
stúdentspróf,” segir hann. „En ég
hef alltaf verið talsmaður þess að
maður geri það sem mann langar
til og láti ekkert stöðva sig. Ég hef
til dæmis aldrei farið í leiklistar-
skóla en er samt leikari, ég hef
ekki lært myndlist en er samt
myndlistarmaður,” segir Jón
Gnarr.
Hann segir að hann hafi alltaf
verið trúaður og að verk hans mót-
ist af því. „Ég var einu sinni nörd
og allt annað sem ég hef gert tel
ég hafa verið að mestu leyti guðs
vilja. Ég held að allar hugmyndir
komi frá guði, hann setur hug-
myndirnar í kollinn á manni. Til
dæmis í gríninu, mikið af því hef-
ur verið fyrir mér ákveðið trúboð.
Í Tvíhöfða var ég að velta skurð-
goðum og afhjúpa lygina í samfé-
laginu með Sigurjóni, en hann er
líka mjög trúaður maður, “ segir
Jón Gnarr.
Jón Gnarr segir að hann sé oft
spurður að því hvort að hann sé
frelsaður. „Það er ein skilgreining
sem ég á erfitt með að átta mig á.
Flestir halda að þeir sem séu
frelsaðir séu hálfklikkaðir, fari á
trúarsamkomur og hrópi halelúja
með hendur á lofti. Það er í raun-
inni hægt að spyrja ertu fáviti ef
maður hefur þá hugmynd um það
að vera frelsaður,” segir hann.
Hann segir að fólk eigi erfitt
með að ímynda sér grínistann Jón
Gnarr sem mjög trúaðan mann
vegna þess að við búum í svo
miklu sérhæfingar- og skilgrein-
ingarsamfélagi þar sem allt verð-
ur að vera fastskorðað. „Það vilja
allir skilgreina hlutina út í æsar.
Við kaupum ekki lengur lifandi
kind og skerum hana á háls og
sneiðum, heldur fáum við hana til-
búna, skilgreinda. Við förum út í
búð og biðjum um kótelettur,”
segir Jón.
Guðs menn koma í öllum
stærðum og gerðum og Jón Gnarr
hefur gaman af því að brjóta upp
skilgreiningarnar. Eða er hann
kannski bara að grínast með
þessu öllu saman? „Margir hafa
spurt mig hvort að ég sé að grín-
ast, til dæmis með myndlistarsýn-
ingunni minni þar sem ég lét „ak-
sjón-karla“ tákna persónur í Bibl-
íunni. En hefur engum dottið í hug
að guð sé kannski að grínast? Skil-
greining okkar á guði er sú að guð
grínist ekki, að guð sé alvarlegt og
þunglynt afl, sem er alrangt. Ég
veit að guð grínast. Guð er alveg
stórkostlegur húmor,“ segir Jón
Gnarr.
Edda Möller, framkvæmda-
stjóri Skálholtsútgáfunnar, segir
að bók Jóns komi út með haustinu
og eigi erindi við alla. „Þetta á
ekki að vera einhver viðhafnarút-
gáfa heldur nánast eitthvað sem
fólk getur stungið í vasann og haft
út í lífið. Jón á svo auðvelt með að
greina kjarnann frá hisminu.
Hann lýsir því vel hvernig kristin
trú hefur haft áhrif á líf hans. Það
skilja það allir og það finnst mér
svo flott,” segir Edda. „Okkur
finnst Jón Gnarr tala mannamál
og hann er líka þekktur svo það er
hlustað á hann,” segir hún. ■
JÓN GNARR „Ég hef oft sagt að ég sé
grínengill,“ segir Jón og viðurkennir að
grínið hafi oft verið trúboð að vissu leyti.
JÓN GNARR: GEFUR ÚT BAKÞANKA SÍNA HJÁ SKÁLHOLTSÚTGÁFUNNI
Guð er stórkostlegur húmor
FRÉTTIR AF FÓLKI
HIN HLIÐIN
Á JÓNI JÓSEPI SNÆBJÖRNSSYNI, SÖNGVARA, LEIKARA OG SJÓNVARPSMANNI.
Hvernig ertu núna?Ég er rosalega góður. Er með handfrjálsan búnað að
sækja strákinn minn í leikskóla.
Augnlitur?: Líklegast grágrænn.
Starf?: Held að ég sé allt muligt-maður innan skemmtanageirans
Stjörnumerki?: Tvíburi.
Hjúskaparstaða?: Vel giftur, það er mín staða
Hvaðan ertu?: Ég var alinn upp á Akureyri en átti stutt stopp á fæðingar-
deildinni í Reykjavík
Helsta afrek?: Eitt og hálft barn og að hafa náð í konuna mína.
Helstu veikleikar?: Fljótfær og hégómagjarn og með eindæmum latur
stundum.
Helstu kostir?: Ég get tekið hverjum degi með brosi á vör.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur?: Íslenski popplistinn á Sirkus.
Uppáhaldsútvarpsþáttur?: Alveg ferlega hrifinn af FM sokkum.
Mestu vonbrigði lífsins?: Að komast ekki í Grease 1998.
Áhugamál?: Tónlist, barnauppeldi, hjúskapur, bílar og græjudella.
Viltu vinna milljón?: Já, já, ef hún er unnin á heiðarlegan máta.
Jeppi eða sportbíll?: Mér er alveg sama svo lengi sem það er Volvo.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?: Flugmaður, leikari,
söngvari og sjónvarpsmaður.
Hver er fyndnastur/fyndnust?: Konan mín á alveg ótrúlega spretti
í bröndurum. Hún hefur meinfyndna sýn á lífið.
Hver er kynþokkafyllst(ur)?: Konan mín er langkynþokka-
fyllst.
Trúir þú á drauga?:Já, já. Ætli maður verði ekki að hafa all-
an varann á.
Áttu gæludýr?: Gibson J200 gítarinn sem ég var að kaupa
mér. Ég gæli við hann af því að hann er svo dýr.
Besta kvikmynd í heimi?: Ég var að horfa á Spanglish. Hún
er rosalega góð.
Besta bók í heimi?: Brekkukotsannáll er alltaf æðislegur.
Næst á dagskrá?: Íslenski popplistinn er á mánudeginum, Strák-
arnir okkar er frumsýnd á fimmtudeginum, útgáfutónleikar með
Eyva á föstudeginum, Ávaxtakarfan á Akureyri á laugardeginum,
styrktartónleikar í Reykjavík stutt á eftir, Nasa um kvöldið, síðan
er baka í ofninum og svo er ég að flytja inn í íbúðina mína.
1.6.1977
Tekur hverjum degi me› brosi á vör
... fær Sigurður Flosason saxófón-
leikari fyrir að skipuleggja hina
afar áhugaverðu jazzhátíð Jazz
undir fjöllum.
HRÓSIÐ
PINK Með Bubba Morthens á
bringunni.
ROB SCHNEIDER Flottur í tauinu. Hann var ekki sá eini af erlendu bergi brotinn
sem skartaði Dead-flík því vinkona hans og leikarinn Jesse Bradford höfðu greini-
lega líka komið við í Nonnabúð.