Fréttablaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 74
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
MobileOffice
FRÁ OG VODAFONE
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
96
37
09
/2
00
5
Og Vodafone kynnir
Mobile Office
Mobile Office er heildstætt þjónustuframboð Og Vodafone fyrir viðskiptalífið sem
gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund. Hraði, öryggi og
einfaldleiki eru einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
Alltaf í netsambandi
með Mobile Connect
Vodafone Mobile Connect
kortið gerir hvaða stað sem er
að vinnusvæðinu þínu. Með
Mobile Connect kortið í far-
tölvunni þinni ertu alltaf í
þráðlausu netsambandi hvar
sem þú ert og hefur ávallt
aðgang að þeim gögnum og
hugbúnaði sem þú þarft á að
halda.
SEPTEMBER
BlackBerry® er fremsta
þráðlausa samskiptatækið í dag
og gerir notendum mögulegt að
vera í stöðugum samskiptum við
viðskiptavini og samstarfsmenn.
Auk þess að vera GSM sími veitir
BlackBerry®notendum aðgang
að tölvupósti, dagbók, tengiliða-
lista og Vefnum – allt í rauntíma.
Með BlackBerry
®
er hægt að
gera flest það sem þú gerir á
skrifstofunni, óháð stað og stund.
BlackBerry
®
frá Vodafone
OKTÓBER
Global
Hotspots
Global Hotspots veitir
viðskiptavinum Og Vodafone
aðgang að þúsundum heitra
reita í helstu viðskiptalöndum
Íslendinga. Þjónustan er að-
gengileg bæði fyrir notendur
Vodafone Mobile Connect og
aðra farsímanotendur
Og Vodafone. Viðskiptavinir
tengjast með einföldum hætti
og notkunin er gjaldfærð á
reikning þeirra.
NÓVEMBER
Vodafone
World
Vodafone World tryggir
einfalda og skýra GSM
verðskrá í útlöndum í krafti
öflugs samstarfs Vodafone
fyrirtækja um allan heim.
Þjónustan hentar þeim sem
nota GSM í útlöndum.
DESEMBER
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Nýr konunglegur!
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Eitthvað það skringilegasta sem komið hefur fyrir mig var að
fæðast, verða til og vakna til með-
vitundar. Ég man ekki mikið eftir
því en mér hefur verið sagt frá því
og ég hef séð sama ferli hjá öðr-
um, til dæmis börnunum mínum.
HVAÐAN komum við? Til hve-
rs er þetta líf? Og hvað tekur við
að þessu lífi loknu? Við fæðumst
inn í þennan heim án þess að hafa
óskað eftir því. Við pöntuðum ekki
neitt, báðum ekki um neitt. Maður
bara „erann“. Manni er hreinlega
hent út í djúpu laugina án nokkurs
undirbúnings. Og lífið er harður
skóli.
VIÐ höfum ekkert val. Við fáum
ekki að velja okkur fæðingarstað.
Flestir fæðast í Kína en fæstir
fæðast á Íslandi. Við fáum ekki að
velja okkur útlit. Við bara lítum út
eins og við lítum út. Við fáum ekki
einu sinni að velja okkur foreldra.
Oftar en ekki eru foreldrar okkar
fólk sem við hefðum aldrei valið
hefðum við haft eitthvað val.
ÞEGAR ég kaupi mér eitthvað
tæki þá nenni ég ekki alltaf að lesa
leiðarvísinn fyrst. Ég er of stoltur
til að þiggja ráð og svo liggur mér
á. Ég byrja á að fikta í tækinu. En
svo þegar ég er kominn í strand
þá leita ég í leiðarvísinn. Og þegar
ég les leiðarvísinn þá uppgötva ég
oftast margt nýtt sem mig hafði
ekki grunað að tækið gæti gert.
Mér er alveg sama hvernig aðrir
skilja sinn leiðarvísi. En ég veit að
ef þeir lesa hann þá læra þeir bet-
ur á tækið sitt og uppgötva jafnvel
eitthvað nýtt sem þeir vissu ekki
áður. Ég vil ekkert vera að messa
yfir mönnum en ég veit að mað-
ur setur ekki ristabrauð í mynd-
bandstæki.
ÞAÐ eru margir sem gefa sig út
fyrir að vera með leiðarvísi fyrir
lífið. Ég hef gluggað í þá flesta
og þeir eru því miður nokkuð tak-
markaðir og gefa villandi upplýs-
ingar og litla ráðgjöf. Biblían er
langbesti leiðarvísirinn fyrir lífið
sem ég hef fundið. Það er flest
rétt sem stendur þar, sérstaklega
í endurnýjuðu útgáfunni sem í
daglegu tali er kölluð Nýja testa-
mentið. Og það var eins og með
tækin, ég fór ekki að lesa Biblíuna
af alvöru fyrr en ég var kominn út
í horn. Ef maður tileinkar sér það
sem Biblían boðar og fer eftir ráð-
leggingum hennar þá mun manni
farnast vel í lífinu.
Leiðarvísir