Fréttablaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 8
8 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
STOKKHÓLMUR, AP Yves Chauvin,
Frakklandi, og Bandaríkjamenn-
irnir Robert H. Grubbs og Richard
R. Schrock hljóta Nóbelsverðlaunin
í efnafræði í ár.
Þremenningarnir fengu verð-
launin fyrir að þróa aðferð til gagn-
kvæmra frumefnaskipta, en þá
skiptast frumeindir á sætum innan
sameinda. Aðferðin er nú mikið
notuð í efna-, líftækni- og matvæla-
iðnaði til að búa til sterkari efni og
betri lyf svo dæmi séu tekin.
Í umsögn sinni líkti sænska vís-
indaakademían aðferðinni við dans
þar sem dansararnir skiptu ótt og
títt um dansfélaga.
Þrír menn fá Nóbelsverðlaun í efnafræði:
Dansandi frumefnafans
EINN NÓBELSVERÐLAUNAHAFANNA Robert H. Grubbs hlaut efnafræðiverðlaunin í ár.
DAVID DAVIS Brosti breitt eftir flutning ræðu sinnar í Blackpool í gær. AP
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinn-
ar, var málshefjandi utandagskrár-
umræðu um efnahagsmál á Alþingi
í gær. Hún kvað viðskiptahallan
meiri en nokkru sinni frá árinu
1947. Tvívegis hefði hann verið
mikill í sögunni vegna ytri áfalla.
Nú væri áfallið hins vegar framleitt
heimafyrir og viðskiptahallinn fjór-
tán prósent.
Hún spurði forsætisráðherra
hvort stjórnvöld hygðust veita
Seðlabankanum lið í glímunni við
verðbólguna og hvernig ríkisstjórn-
in ætlaði að bregðast við brostnum
forsendum kjarasamninga.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra sagði of mikið gert úr mun
á verðbólguspám Seðlabankans
og fjármálaráðuneytisins en gert
væri ráð fyrir 2,9 prósenta meðal-
verðbólgu til ársins 2010. Hann
sagði hækkun fasteigna og hækkun
olíuverðs skýra þensluna að miklu
leyti. Hraðað yrði gagngerri endur-
skoðun á stöðu Íbúðalánasjóðs á
vegum félagsmálaráðherra. „Það
þarf að koma til breyting þar á bæ
vegna breyttra aðstæðna sem hafa
komið upp í þjóðfélaginu.“
Halldór taldi að spá um kaup-
máttaraukningu næstu árin sem
og áform stjórnvalda um lækkun
skatta væru kjarabætur sem um
munaði á næstunni. - jh
Verðhækkun fasteigna og olíu er höfðuðorsök verðbólgu segir forsætisráðherra:
Of mikið gert úr mun á verðbólguspám
BRETLAND, AP David Davis, sem
talinn er standa best að vígi í upp-
rennandi leiðtogakjöri í breska
Íhaldsflokknum, reyndi að særa
upp anda Winstons Churchill í
ræðu sinni á flokksþingi flokks-
ins í Blackpool í Englandi í gær, í
því skyni að vinna atkvæði flokks-
systkina sinna.
En mörgum flokksþingsfulltrú-
um þótti ekki mikið til ræðunn-
ar koma í samanburði við ræður
keppinauta hans og þykir því ekk-
ert lengur gefið um niðurstöðu
leiðtogakjörsins.
„Hann rembdist svo mikið við að
reyna að gera áheyrendur snortna.
Mér þótti lítið til koma,“ hefur AP
eftir Esme Clark, óbreyttum þing-
fulltrúa sem ekki hefur enn gert
upp hug sinn í leiðtogakjörinu.
„Það var draumur Churchills
um Bretland þar sem „eru mörk
sem enginn maður má falla niður
fyrir en engin mörk sem maður
getur risið upp í“ sem dró mig
inn í stjórnmál. Og þessi draumur
veitir mér enn innblástur,“ sagði
Davis. Í ræðunni talaði hann ann-
ars fyrir gömlum íhaldsgildum
eins og lágum sköttum, frjálsum
markaði og hörku í löggæslu.
Fimm þingmenn flokks-
ins sækjast eftir að taka við af
Michael Howard, sem boðaði
afsögn eftir að flokkurinn tapaði
þriðju þingkosningunum í röð í
vor sem leið.
Stuðningsmenn Davis sögðu
ræðu hans hafa verið „fagmann-
lega“ og „trausta“. En mörgum
öðrum þingfulltrúum fannst
ræðan tyrfin og flutningur henn-
ar óspennandi.
Keppinautum Davis sem fluttu
ræður sínar á þriðjudag, Kenneth
Clarke og David Cameron, þótti
takast miklu betur upp. Hjá veð-
möngurum lækkuðu líkurnar á
sigri Davis talsvert eftir að hann
flutti ræðu sína í gær.
Alls hafa 66 af 196 þingmönnum
Íhaldsflokksins lýst stuðningi við
Davis, en þar með er næsta víst að
hann verði annar af þeim tveimur
frambjóðendum í leiðtogakjör-
inu sem allir skráðir flokksmenn
munu loks kjósa á milli, eftir að
hinir verða slegnir út í útsláttar-
atkvæðagreiðslum í þingflokkn-
um á næstu vikum. Úrslitin verða
kunngjörð 6. desember.
audunn@frettabladid.is
Davis náði ekki að
hrífa flokksmenn
Keppinautarnir um leiðtogastól breska Íhalds-flokksins bítast nú um stuðning
flokksmanna á flokksþingi í Blackpool. David Davis talaði í gær.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSONFORSÆTISRÁÐHERRA Segir að of mikið hafi verið gert úr þeim mun
sem verið hafi á verðbólguspám.
1 Af hvaða gerð er stærsta flugvél heims?
2 Til hvaða verðlauna er Arnaldur Indriðason tilnefndur?
3 Hver er formaður alþjóðablaða-mannasamtakanna IFJ?
VEISTU SVARIÐ?
SVÖRIN ERU Á BLS. 50