Fréttablaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 69
kemur út í dag!
STJÖRNUFRÉTTIR LÍFSSTÍLL ALVÖRU FÓLK
Pharrell Williams hefur lýst því
yfir að honum finnist hann alls
ekki geta sungið. Pharrell, sem
hefur unnið með Snoop Dogg, Just-
in Timberlake og Kelis, segist held-
ur ekki geta rappað. „Mér finnst ég
alls ekki geta sungið né rappað. Ég
er bara að tjá mig,“ sagði Pharrell.
„Ég er bara að segja það sem mér
dettur í hug og það sem kemur út
úr munninum á mér. Þetta er meira
eins og dagbók,“ segir Pharrell.
Næsta smáskífa frá honum kemur
úr 31. október en þar syngur Gwen
Stefani með honum.
Pharrell hefur einnig neitað því
að hann sé kyntákn. „Það er ekki
minn karakter. Kannski er ég að
þykjast vera sexý en þetta er allt
í hausnum á mér. Þess vegna va-
ldi ég þennan titil á plötuna, „In
My Mind“, af því að þetta er allt í
hausnum á mér.“
Laus við alla sönghæfileika
Rokksveitin U2 mun taka yfir
kvöldþátt Conan O’Brien sem
verður sýndur í Bandaríkjunum í
kvöld. U2 er stödd í New York um
þessar mundir þar sem þátturinn
er tekinn upp. Þar spilar sveitin
á sjö tónleikum í Madison Square
Garden. Að sjálfsögðu er uppselt
á þá alla.
Jim Pitt, sem hefur séð um
að bóka listamenn í þátt Conan,
hafði alltaf dreymt um að fá U2
og Johnny Cash í þáttinn á þeim
tólf árum sem hann hefur verið
sýndur á NBC. Ekkert verður af
því að Cash heitinn mæti í þáttinn
en honum hefur orðið að ósk sin-
ni með U2. „Tilboð okkar hljóm-
aði nógu spennandi til að þeir
vildu mæta í þáttinn,“ sagði Pitt.
„Þátturinn verður Late Night með
Conan O’Brien þar sem U2 verður
aðalatriðið.“
Enginn listamaður hefur áður
fengið heilan þátt út af fyrir sig
hjá Conan. Næst því komst Bruce
Springsteen fyrir nokkrum árum,
en Max Weinberg, hljómsveitar-
stjóri þáttarins, hefur einnig spil-
að fyrir Springsteen.
U2 tekur völdin
af Conan O’Brien
U2 Rokksveitin U2 ætlar að taka yfir þátt
Conan O’Brien á NBC-stöðinni í kvöld.
Regnboginn kl. 18:00
Fimmtudaginn 6. október
Beint á vegginn
www.filmfest.is
Háskólabíó
17:40 Moolaadé
20:00 Strengir
22:00 Heilaga stúlkan
22:00 Enginn veit
Regnboginn
18:00 Beint á vegginn
18:00 06/05, sjötti maí
20:15 Dagrenning
22:00 Rekkjusögur
Tjarnarbíó
17:00 Enginn aðskilnaður
19:00 Bölvun
21:00 Heimavinna
NÝR BÚNAÐUR
Í TJARNARBÍÓI
Þýsk-tyrkneska kvikmyndin Beint á
vegginn (Gegen Die Wand) fjallar um
innflytjendur í Þýskalandi og erfiðleikana
við að fóta sig í nýju samfélagi.
Kvikmyndin vann gullbjörninn í Berlín
árið 2004.
PHARRELL WILLIAMS Neitar
því að hann sé kyntákn.