Fréttablaðið - 06.10.2005, Blaðsíða 12
12 6. október 2005 FIMMTUDAGUR
Honey Nut Cheerios er fyrir okkur sem viljum meira. Eitthvað öðruvísi.
Eitthvað sem veitir manni orku til að takast á við daginn á bragðgóðan hátt.
…sem viljum meira
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
29
10
9
10
/0
5
FISKVEIÐISTJÓRNUN Vernd við-
kvæmra hafsvæða á úthafinu
verður meðal umræðuefna á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðann
um fiskveiðiályktun. Viðræður
hófust í New York í gær og standa
næstu vikur.
Í Djúpinu, vefriti Sjávar-
útvegsráðuneytisins, sem kom út
í fyrradag, kemur fram að Íslend-
ingar hafi beitt sér fyrir því að
þær fjalli um vernd viðkvæmra
hafsvæða í þeim fiskveiðistjórn-
unarstofnunum sem Ísland á
aðild að.
Fulltrúi Íslands á fundinum er
Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræð-
ingur utanríkisráðuneytisins. - sda
Fiskveiðiáætlun SÞ:
Ræða vernd á
hafsvæðum
PYLSUÁTIÐ Á UNDANHALDI
Norðmenn sporðrenna ókjörum af
pylsum hvern einasta dag. Nú ber
hins vegar svo við að sala á pylsum
hefur dregist saman um tvö prósent á
milli ára eftir sífellt aukna pylsuneyslu
áranna þar á undan. Hollari kostir, svo
sem ávextir, eru sagðir skýringin á
samdrættinum.
MJÓLKURÁ Í HÖFUÐBORGINNI
Óhapp varð í Ósló fyrir helgi þegar
vörubretti sem á voru dósir af hvítri
málningu féll af palli vöruflutningabíls
og hafnaði í ánni Aker. Áin varð drifhvít
á augabragði en þar sem málningin var
vatnsuppleysanleg fékk hún fljótlega
sinn fyrri lit.
NOREGUR
LAXVEIÐI Fyrstu bráðabirgðatölur
úr laxveiðiám benda til þess að
stangveiðin hafi verið um 53.500
laxar. Það er um 7.600 löxum
meiri veiði en var á árinu 2004
sem aftur er 52,4 prósentum
meiri veiði en meðalveiði áranna
1974 til 2004.
Stangveiði á laxi sumarið 2005
er sú mesta sem skráð hefur verið
úr stangveiði í íslenskum ám en
fyrra met var 1978 þegar 52.679
laxar veiddust.
Hluti þeirra laxa sem sleppt
er veiðist aftur og hækkar það
veiðitölur margra áa. Hlutfall
laxa sem sleppt er hefur farið
hækkandi á undanförnum árum
og var um sextán prósentum vei-
ddra fiska sleppt á árinu 2004.
Laxveiði jókst hlutfallslega mest
á Vesturlandi en metveiði var þar
í nokkrum veiðiám. ■
Nýtt laxveiðimet:
Sjö þúsund
fleiri laxar í ár
KABÚL, AP Talningu atkvæða í
þingkosningunum í Afganistan
sem fram fóru í síðasta mánuði er
lokið. Stríðsherrar, kvenréttinda-
konur og talibanskur herforingi
eru á meðal þeirra sem vegnaði
vel.
Þótt rúmar tvær vikur séu liðn-
ar frá afgönsku þingkosningunum
lauk talningunni fyrst í þessari
viku, ef frá eru talin atkvæði úr
nokkrum kjörkössum sem grunur
leikur á að átt hafi verið við.
Bráðabirgðaniðurstöður gefa
hins vegar til kynna að stríðsherr-
ar sem ráða fjölmörgum héruðum
landsins hafi borið sigur úr býtum
í sínum byggðum og koma þau tíð-
indi sjálfsagt fáum á óvart. Hins
vegar hefur velgengni kvenna í
kosningunum vakið athygli og
ánægju enda voru þær afar kúg-
aðar á tímum talibanastjórn-
arninnar. Rétt eins og í Írak var
fjórðungur þingsætanna eyrna-
merktur konum.
Talibanar fengu sjálfir fá
atkvæði, ef frá er talinn Abdul
Saalam Rocketi, frá Zabul-héraði,
en viðurnefni sitt fékk hann vegna
hæfileika sinna með eldflauga-
vörpu.
Endanleg úrslit verða ekki
kynnt fyrr en eftir tvær vikur, og
þá í smáum skömmtum til að koma
í veg fyrir ólgu í landinu. - shg
Talningu atkvæða í afgönsku þingkosningunum lokið:
Stríðsherrunum vegnaði vel
SAMEINING Til stendur að Kvik-
mynda- og framleiðslufyrirtæk-
in Saga film og Storm sameinist.
Pétur Óli Gíslason, framkvæmda-
stjóri Storm, staðfestir að þessar
viðræður séu á lokastigi og líklegt
sé að skrifað verði undir samning
í dag.
Kristján Grétarsson, fram-
kvæmdastjóri Saga film, tekur
í sama streng og Pétur. „Þetta
er að ganga upp, vonandi í dag,“
segir Kristján. Hann segir að
ekki verði gagngerar breytingar
á framleiðslunni, áfram verði um
blandaða vinnu að ræða. „Fyrir-
tækin hafa hvort um sig talsverða
sérþekkingu fram að færa. Þeir
hjá Storm hafa verið ötulir við
framleiðslu á sjónvarpsefni og
hafa sérþekkingu á svokallaðri
viðburðaskipulagningu.“ Hann
segir að áfram verði lögð áhersla
á framleiðslu auglýsinga.
Ef til kemur munu fyrirtækin
tvö sameinast að fullu og starfa
undir sama þaki. - saj
KVIKMYNDAGERÐ Hluti af viðskiptum íslenskra framleiðslufyrirtækja felst í þjónustu við
erlenda kvikmyndagerð.
Samningaviðræður tveggja kvikmynda- og framleiðslufyrirtækja:
Saga film og Storm sameinast
UPPREISN ÆRU Í gær aflétti Evrópusam-
bandið fjögurra ára löngu sölubanni á
nautasteikum á beini en því var upphaf-
lega komið á árið 2001 þegar ótti manna
við kúariðu var sem mestur. MYND/AP
ATKVÆÐIN TALIN Kjörseðlarnir í þing-
kosningunum voru í stærra lagi enda var
ekki kosið á milli flokka heldur einstakra
frambjóðenda. MYND/AP
Vinstri græn fá nýja stjórn
Ný stjórn var kjörin í Reykjavíkurfélagi
Vinstri - grænna á aðalfundi félagsins í
fyrrakvöld. Þorleifur Gunnlaugsson er for-
maður félagsins og með honum í stjórn
eru þau Auður Lilja Erlingsdóttir, Gérard
Lemarquis, Guðlaug Teitsdóttir, Guðný
Hildur Magnúsdóttir, Hrafnkell Tumi
Kolbeinsson og Sigríður Kristinsdóttir.
STJÓRNMÁL