Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 1

Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG Sími: 550 5000 FÖSTUDAGUR 4. nóvember 2005 — 298. tölublað — 5. árgangur VINNUVÉLAR INGI BJÖRNSSON: Besti kranamaður Íslands FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 2 3 7 4 Breytum hugmyndum í veruleika Ertu í stellingum fyrir stór verkefni? Við erum sérfræðingar í fjármögnun atvinnutækja, skrifstofubúnaðar og atvinnuhúsnæðis. Hafðu samband í síma 440 4400 eða kynntu þér málið á glitnir.is. Yfirbreiðslur BLS. 2 Orðnar lögbundnar Vélfang ehf. BLS. 4 Ætlar sér stóra hluti á markaðnum Tonny Espersen BLS. 4 Gaman að ljúka góðu verki Vinnuvélar fyrri tíma BLS. 6 Gríðarlegar framfarir Sjálfvirkt smurkerfi BLS. 6 Smursprautunni skipt út Þróttur BLS. 8 Mikil endurnýjun á síð- astliðnum árum Drottningin engri lík BLS. 8 Jón Magnús Pálsson á sérstaka ýtu Samgöngusafnið BLS. 10 Fornfrægar vinnuvélar Magnús Sigurðsson BLS. 12 Gaman að vinna á stór- um trukkum Vinnuvélanámskeið BLS. 12 80 stunda nám Metanbílar BLS. 14 Menga minna Liebherr-kranar BLS. 18 Algengastir á Íslandi Rafmagnslyftari BLS. 19 Með vetnisrafal EFNISYFIRLIT vinnuvélar [ SÉRBLAÐ UM VINNUVÉLAR OG ATVINNUTÆKI – FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 ] BESTI KRANAMAÐURINN spreytir sig í Evrópu SJÁ BLS. 2 VENIERI ítalskar vélar á Íslandi SJÁ BLS. 16 01 vinnuvélar FORS lesið 3.11.2005 15:48 Page 3 Í þjóðlegum kjól Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona tekur lítið mark á sjálfskipuðum tískulöggum og ætlar að klæðast á íslenskan máta á Emmy-verð- launahátíðinni. FÓLK 54 Sigmar í Gettu betur Kastljóssmaðurinn Sigmar Guðmundsson hefur verið ráð- inn sem spyrill í Gettu betur. FÓLK 54 k ó n g a f ó l k t í s k a t í ð a r a n d i h e i l s a m a t u r s t j ö r n u s p á t ó n l i s t SJÓ NV AR PS DA GS KR ÁI N 4. – 1 0. nó ve mb er á björtu nótunum LOÐSKINN OG LEÐURFLÍKUR » hlý föt fyrir veturinn UMHIRÐA HÚÐAR » blaðauki um útlit og snyrtivörur » Ingibjörg Þorbergs Hugsar um það sem er gott 01 birta-forsíða 1.11.2005 16.46 Page 1 NOREGUR Lögregla í Mosjøen í Norður-Noregi gerði í gær upp- tæk 190 kíló af kókaíni í suður- ameríska skipinu Crusader. 25 skipverjar voru handteknir en ekki er vitað hverjir þeirra komu fíkniefnunum fyrir. Auk kókaínsins flutti Crusader súrál til álbræðslu Elkem í firðinum. Aldrei hefur fundist slíkt magn af kókaíni í landinu áður en að sögn norska ríkisútvarpsins er verðmæti þess tveir milljarðar íslenskra króna. Talið er ólíklegt að efnin hafi átt að selja í Noregi heldur á öðrum áfangastöðum skipsins. ■ Fíkniefnafundur í Noregi: Kókaín fyrir tvo milljarða Siðbót eða miskabót? Birgi Guðmundssyni finnst eðlilegt að Bubbi Morthens sé ósáttur við umfjöll- un Hér og nú en undrunarefni hvernig lögmaður Bubba rökstyður kröfuna um miskabætur honum til handa. Í DAG 20 INGIBJÖRG ÞORBERGS: Hugsar um það sem er gott • snyrtivörur • loðflíkur • eftirréttir VÍÐA BJART Í MORGUNSÁRIÐ Þykkn- ar smám saman upp um sunnan- og vestanvert landið þegar líður á daginn og kvöldið með vaxandi vindi og hlýnandi veðri. Fer að rigna vestan til í nótt. Bjart og svalt lengst af eystra. STJÓRNMÁL Mikið ber í milli í viðræðum fulltrúa ríkisins og Reykjavíkurborgar um sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun, en farið var yfir stöðu málsins á fundi borgarráðs í gær. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telja fulltrúar borgarinnar heildarmatsverð Landsvirkjunar of lágt, enda miðist það meðal annars við gamla orkusölusamninga við álframleiðendur. Bent er á að Orkuveita Reykjavíkur hafi á síðari árum náð betri orkusölu- samningum en Landsvirkjun og horfa verði til framtíðarvirðis Landsvirkjunar. Heildarmatsverð Landsvirkj- unar er 56,4 milljarðar króna en Reykjavíkurborg á 45 prósenta hlut í fyrirtækinu. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst vill Reykjavíkurborg hækka heildar- matsverð upp fyrir 60 milljarða króna sem gæfi borginni marga milljarða aukreitis fyrir hlutinn. „Ef rétt verð fæst fyrir hlut borgarinnar í Landsvirkjun erum við ugglaust til í að standa að sölunni,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hann telur nánast fullvíst að R-listinn hygg- ist nú ýta málinu til hliðar, meðal annars vegna andstöðu vinstri grænna sem vilja ekki með nein- um hætti stuðla að einkavæðingu Landsvirkjunar. - jh Líkur á því að Reykjavíkurborg selji ríkinu hlut sinn í Landsvirkjun minnka: Borgin krefst hærra verðs Spennandi dagskrá 3.-7. nóvember Frábær krakkatilbo› Heyrðu, Paris Hilton er víst byrjuð með Radisson Sas. w w w . r o k l a n d . b l o g s p o t . c o m KJARAMÁL Samtök atvinnulífsins hafa hafnað tillögum Alþýðusam- bands Íslands um tveggja pró- senta launahækkun sem lögð var fram í viðræðum forsendunefnd- ar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Í henni eiga sæti tveir fulltrúar ASÍ og SA sem eru sammála um að forsendur samn- inganna séu brostnar. Fulltrúar ASÍ hafa sagt að búast megi við að þeim verði sagt upp 10. desember nái forsend- unefndin ekki samkomulagi á næstunni. Tillögur ASÍ miðast við þær verðbólguforsendur sem síð- ustu kjarasamningar voru gerðar út frá. „Við höfum talið að þar sem markmið Seðlabankans og for- sendur kjarasamninga gera ráð fyrir 2,5 prósenta verðbólgu en verðbólgan er í raun 4,5 prósent sé það nokkuð klárt hver munur- inn er,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. „Að öðru leyti er þetta mál til úrlausnar,“ segir hann. „Það er þó ljóst að ekki hefur verið vilji af hálfu atvinnu- rekenda til að semja og stefnir í að ekki náist saman að óbreyttu,“ segir Gylfi. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir varhugavert að horfa dómgreindarlaust og vélrænt á verðbólgutölur. „Við semjum ekki um verðbólgu eða kaupmátt. Við semjum um tilteknar launahækk- anir,“ segir Ari. „Kaupmáttur er í sögulegu hámarki á Íslandi. Við teljum því ekki forsendur til þess að vera með einhver ýktari viðbrögð nú en var þá af svipuðu tilefni. Það er alls ekki sann- gjarnt, þegar horft er til eðlis verðbólgunnar, að afgreiða verð- bólguna sem frádrátt frá kaup- mætti almennings. Þrír fjórðu hennar eru vegna fasteignaverðs, en einnig vegna aukinnar neyslu og betri lífsgæða,“ segir Ari. Hann segir ekki útilokað að samið verði um hækkun launa þótt það verði ekkert í líkingu við tillögur ASÍ. „Þetta snýst um kostnaðinn fyrir atvinnulífið. Það er alveg ljóst að svigrúmið til breytinga er ekki af þeirri stærð- argráðu sem þarna er slegið fram. Slík nálgun fæli að auki í sér aft- urhvarf til víxlhækkunar launa og verðlags,“ segir Ari. „Það væri hins vegar mjög slæmt fyrir almenning í landinu ef samningar næðust ekki og yrði með því brugðið frá þeirri sátt sem hefur verið í landinu um ára- bil og ekki víst að næðist saman um langan tíma aftur,“ segir Ari. - sda / sjá síðu 8 Atvinnurekendur sögðu nei við ASÍ Alþýðusamband Íslands telur að með aukinni verðbólgu hafi hallað á launþega. Samtök atvinnulífsins segja þá aldrei hafa haft það betra. SA hafnaði tillögum ASÍ um tveggja prósenta launahækkanir. STJÓRNMÁL Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík hefst í dag og er búist við mikilli þátttöku. Öllum félagsbundnum sjálf- stæðismönnum í Reykjavík, sem náð hafa 16 ára aldri, er heimilt að greiða atkvæði. Sömuleiðis eiga stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins, sem undirritað hafa inntöku- beiðni í sjálfstæðisfélag í Reykja- vík fyrir lok kjörfundar, rétt til þátttöku í prófkjörinu. Í dag er einungis kosið í Valhöll en á morgun verður kosið á sjö stöðum í borginni. Fréttablaðið birtir í dag viðtöl við þá sem takast á um efsta sæti listans, þá Vilhjálm Þ. Vilhjálms- son og Gísla Martein Baldursson. - jh / sjá síðu 16 og 18 Sjálfstæðisflokkurinn: Prófkjör hefst í dag í borginni ÁKALLAR ÞJÓÐIR HEIMS Á heimsráðstefnu um heilbrigðismál í New York fjallaði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, um hættuna á heimsfaraldri vegna fuglaflensu. Sagði hann að þjóðir heims þyrftu nú að taka höndum saman. Sérstaklega þyrfti að aðstoða fugla- bændur sem ættu á hættu að smitsjúkdómurinn bærist í fiðurfénað þeirra eða hefðu þegar orðið fyrir skaða vegna flensunnar.AP SÆKJAST EFTIR FYRSTA SÆTINU Augu flestra munu beinast að baráttu Gísla Marteins og Vilhjálms. Slæmur dagur í körfunni Íslensku liðin í Evrópukeppninni í körfubolta riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum í gærkvöldi. Kvennalið Hauka tapaði stórt fyrir ítalska liðinu Ribeira og Keflavík olli miklum vonbrigðum gegn Laapperanta frá Finnlandi. ÍÞRÓTTIR 90 VEÐUR 4

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.