Tíminn - 09.11.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur í). nóvember 1!)75.
TÍMINN
31
Orðrómur-
inn ótti við
rök að
styðjast
— Pelican hafa
misst Herbert og
eru söngvaralausir
á ný
HLJÓMSVEITIN Pelican er
aftur orðin söngvaralaus, þvi
Herbert Guðmundsson hefur
sagt sig úr hljómsveitinni.
Þrálátur orðrómur hefur verið
um það, i alliangan tima, að
mikil óánægja hafi verið innan
hljómsveitarinnar og þess yrði
ekki langt að biða, að Herbert
söngvari yfirgæfi hljómsveit-
ina.
Pelican hefur hins vegar
reynt eftir mætti að bera þetta
tii baka, og svo rammt kvað að
þeirra „yfirklóri” að fyrir rúm-
lega viku birti hljómsveitin yfir-
lýsingu i einu dagbiaðanna þess
efnis, aðgetgátur manna um téð
söngvaraskipti væru ekki á
neinum rökum byggðar. örfá-
um dögum siðar tilkynnti Her-
bert að hann væri hættur i Peli-
can.
Ekki er búið að ákveða liver
taki við söngnum hjá Pelican,
en Herbert ætlrj hins vegar að
taka sér leyfi frá störfum.
Bjarki Tryggvason: Wild Night
(Van Morrison)/Hver ert þú? (D.
Henley—B. Guðmundsson) —■
D2—004 — Demanl hf.
Bjarki Tryggvason, söngvarinn
góðkunni frá Akureyri, nú með-
limur hljómsveitarinnar Mexico,
hlýtur að geta gert betur en þetta.
Lögin eru að visu bæði ágæt — en
þau eru af erlendum toga spunnin
— en hins vegar eru þau litt
áhugaverð i flutningi Bjarka og
Júdasar, þó sér i lagi Eagles lagið
(Hver ert þú?) sem Bjarki syngur
vægast sagt illa, og hljóðfæraleik-
ur Júdasar er heldur ekkert til að
státa sig af. Wild Night — Van
Morrisov-lagið er mun betra en
söngur Bjarka er þó tæpur á
stundum. Júdas eru ágæt i
þessu lagi og Rúnar Georgsson
leikur listavel á saxafóninn.
Semsé: heldur lélegt.
EIK: Hotel Garbage Can (Þ.
Magnússon—II. Þorsteins-
son)/Mr. Sadness (Þ. Magnús-
son—H. Þorsteinsson) — D2-005 —
Demant hf.
Hljómsveitin Eik hefur um all-
langt skeið verið ein alefnilegasta
hljómsveitin hér og þvi var
sannarlega timi til kominn að
þeir gæfu út plötu. Öruggt má
telja, að ekki minnki hróður
hljómsveitarinnar með þessari
2ja laga plötu, þvi hún er mjög
góð. Lögin hans Þorsteins eru
ágæt og útsetningar hljómsveit-
arinnar bæði nokkuð frumlegar
og vel unnar. Siguröur söngvari
kemur á óvart með mjög góðum
söng, hljóðfæraleikurinn er góður
og athygli vekur saxafónleikur
Sigurðar Long. Hljómplötuút-
gefendum hlýtur að vera akkur i
þvi að gefa út LP-plötu með Eik,
miðað við þetta sýnishorn af efni
hljómsveitarinnar. Semsé: mjög
góð plata.
MEGAS: Spáðu I mig
(Mcgas)/Komdu og skoðaðu i
kistuna mina (Megas) — D2-003
— Demant hf.
Megas sendir hér frá sér létta
og áheyrilega plötu, og er „Spáðu
i mig” mjög melódiskt og grip-
andi lag, — og þvi tilvalið á 2ja
laga plötu. „Komdu og skoðaðu i
kistuna mina” er velþekkt lag frá
Megasi, sem hann hefur oft sung-
ið. Texti þess lags fer misjafnlega
i menn, eins og gerist og gengur,
enda harla óvenjulegur, og jafn-
vel myndu einhverjir segja
„ósmekklegur”. Megas er hér i
essinu sinu, en hljóðfæraleikar-
arnir ekki,sérstaklega eru áber-
andi hnökrar i hljóðfæraleik i
,,kistu”-laginu.Semsé: góð plata.
AAest seldu plöturnar
vikuna 27. okt. - 3. nóv.
Stórar plötur:
1. The Last Farewell — Roger Whitt-
aker
2. O'Lucky Man — Alan Price
3. Wish You Were Here— Pink Floyd
4. Sumar á Sýrlandi — Stuðmenn
5. Minstrel in The Gallery — Jethro
Tull
6. Dream — N.Q. Dirt Band
7. Rhinestone Cowboy — Glen Camp-
bell
8. One of These Nights — Eagles
9. Extra Texture— George Harrison
10. American Graffity — Ýmsir
Litlar plötur:
1. Black Superman — Johnny Wakelin
2. Who Loves you — Four Seasons
3. Rhinestone Cowboy — Glen Camp-
bell
4. Bad Blood — Neil Sedaka
5. Swearin to God — Frankié Valli
________________ J
Faco hljómdeild
Laugavegi 89
simi 13008
SENDUM I PÓSTKRÖFU
Faco hljómdeild
Hafnarstræti 17
simi 13303.
Sambandið kaupir
nýtt frystiskip
Sambandið hefir nú keypt
frystiskip i stað Jökulfells, sem
selt var á s.l. ári.
Skipið sem keypt hefir verið
heitir „BYMOS” og var það
byggt 1968 i Þýzkalandi, hjá sömu
skipasmiðastöð og byggði
„Skaftafell” og „Hvassafell” fyr-
ir Sambandið.
Seljendur eiga að afhenda skip-
ið eftir að flokkun hefir farið fram
á þvi fyrir þeirra reikning. Gert
er ráð fyrir afhendingu þess i lok
nóvembermánaðar. Nokkrar
breytingar er áformað að gera á
skipinu vegna islenzkra aðstæðna
meðal annars á að búa það
hlífðarlista, sem reynzt hefir
mjög til bóta og forðað frá tjónum
skv. reynslu Skipadeildarinnar á
liðnum árum. Áætlað er að skipið
muni kosta um D.kr. 10,3 milljón-
ir þegar umræddar breytingar
hafa farið fram.
„BYMOS” hefir verið i eigu
dansks útgerðarfélags og hefir'
skipið komið til fslands á undan-
förnum árum. Það fór meðal ann-
ars með farm af frystri loðnu til
Japan fyrir ári siðan, en mest
hefir það verið i förum með fryst-
an fisk frá Danmörku til Ame-
riku.
Skipið er svipað að stærð og
„Skaftafell”. Það hefir milliþilfar
og má sigla sem opið eða lokað
milliþilfarsskip, sem slikt er
burðargeta þess 1678 smálestir.
Rúmtak lesta er 70.300 teningsfet.
Ganghraði er liðlega 14 sjómilur.
Skipið er byggt samkvæmt
ströngustu Lloyd’s flokkunar-
kröfum og styrkt til siglinga i is.
Utboð
Kröflunefnd óskar eftir tilboði i gólffrágang epoxylögn) i
slöövarhúsi Kröfluvirkjunar i Suður-Þingcyjarsýslu.
Útboðsgögn verða afhent i verkfræðistofu vorri að Ármúla
4, Reykjavik og Glerárgötu 36, Akureyri gegn 5.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð i verkfræðistofu vorri fimmtudaginn
20. nóvember kl. 11 f.h.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN sf
ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499
FRJALSAR HENDUR
meðan hárið er að þorna — loftstraumurinn
heldur þurrkunni uppi,
BRflUd Astronette
Hdrþurkan
a <“)' einhver sú þægilegasta
^ sein völ er á. það er jalnvel
luegl að lala i siinann eða
snyrta sig meðan hárið þorn-
ar.
'ljög f.vrirferöalitil og
henliig til að laka meö sér i
lerðalög t.d. (il sólarlanda.
þar sem olt þarf að þurrka
liarið.
Tilvalin
tækifærisgjöf
Fæst í raftækja-
verzlunum í Rvík, úti
um land og hjá okkur
Braun-umboðiö
Ægisgötu 7.
Sími sölumanns 18785.
Raftækjaverzlun íslands h.f.
Ei>isí»()tu 7 — Simar 1-79-75 & 1-79-76
—____________________________________