Tíminn - 09.11.1975, Qupperneq 37
Sunnudagur 9. nóvember 1975.
TÍMINN
37
GENGIÐ Á
GENGIÐ A VATNI heitir ný-
útkomin Ijóðabók eftir AOalstein
Ingólfsson, listfræðing og mun
þetta vera önnur bók höfundar.
1 tileinkun segir á þessa leið:
Til allra þeirra
sem hafa hjálpað mér
til að ganga á vatni
einkum Janet, Juiian
o.fl. o.fl.
Höfundur er kunnur fyrir
djörf skrif sín og opin um mynd-
listir, og er einn virtasti gagn-
rýnandinn, sem skrifar i dag-
blöðin. Menn áttu þvi ekki bein-
linis von á ljóðabók, kannski
frekar að hann sýndi málverk.
Aðalsteinn Ingólfsson er tvö-
faldur i roðinu. Hann er ekki
einasta lærður listfræðingur,
heldur hefur hann einnig
háskólapróf i enskum bók-
menntum, og hefur m.a. kennt
enskar bókmenntir við heim-
spekideild háskólans. Þótt
minna hafi farið fyrir honum é
bókmenntasviðinu en i mynd-
listinni til þessa.
II
Aðalsteinn er fæddur á Akur-
eyri árið 1948 og eru foreldrar
hans þau Ingibjörg ólafsdóttir,
sem er af Burstafellsætt og
Ingólfur Aðalsteinsson, veður-
fræðingur, sem ættaður er úr
Dölum. Ingólfur er kunnur mað-
ur fyrir veðurfræði sin, og þeir,
sem myndlistum eru kunnir,
vita að hann lætur að minnsta
kosti ekki veðrið aftra sér frá
þvi að fara á góða málverka-
sýningu.
Aðalsteinn Ingólfsson lauk
stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni árið
1967 og hélt til Skotlands til
náms i enskum bókmenntum,
og lauk þaðan meistaraprófi frá
St. Andrews háskólanum fjór-
um árum siðar. Þá lá leið Aðal-
steins til Italiu, þar sem hann
dvaldi eitt ár við að læra málið
og skoða listaverk Italiu. Siðan
hélt hann til London og stundaði
listfræðinám á árunum
1972-1974og lauk meistaraprófi I
listfræði. Aðalsteinn er kvæntur
enskri stúlku, Janet, sem er frá
London.
Þau komu heim árið 1974 og
siðan hafa þau Aðalsteinn dval-
ið á íslandi, þar sem hann
stundar kennslu i bókmenntum
við háskólann, eins og áður
sagði, en auk þess kennir hann
listasögu við Myndlista- og
handiðaskólann i Reykjavik.
Hann ritar myndlistargagn-
rýni i Dagblaðið og stjórnar
Vöku fyrir sjónvarpið.
III.
Bók sinni Gengið á vatni
skiptir Aðalsteinn i tvo kafla,
Ljóð og ljóðaþýðingar. Bókin
var fjögur ár i smiðum og hefst
á þessu ljóði:
Sumir
ganga ávallt
hratt, á
flótta undan
myrkri
Ég
geng hægt
til að
styggja ekki
ljósið.
Yrkisefni Aðalsteinseru mörg
og hann fer myndlistarleiðir.a i
skáidskapnum ef svo má segja.
Hrjúft vfirborð er ekki sama og
það sé fráhrindandi. Meira máli
skiptir að nota hin réttu orð, en
hina sætu og sölulegu áferð.
Gott dæmi um þetta er kvæðið
BILSLYS:
Askur var enginn drumbur,
hann stökk
sem unglamb, neytti lifs
einsog
vinberja og sá allt i hendi
sinni
Málverkið Bæn
eftir IIöllu Har-
aldsdóttur.
VATNI...
Aðalsteinn Ingólfsson
Nú liggur hann i morgunsár-
inu
einsog sveðja, gapir ráðalaus
aðfölmána,
hugur hans hjúfrar sig að
Pólstjörnu,
limir hans eru mold i
annaðsinn
og augu hans innanum
lækjarsili.
Svona kvæði er i rauninni
málverk. Hrjúft yfirborðið
verður að mynd, ef þú gefur þér
tóm til ihugunar og skoðunar.
Bók Aðalsteins er mikið
ferðalag og langt fyrir
lesandann. Hugurinn er ýmizt
„rennilega þjáll einsog
Lamborghini bifreið” eða þú
deyrð ,,af offorsi vetrar, fifl-
dirfsku og ullarbrókarleysi”
1 seinasta kvæði bókarinnar
stendur þetta m.a.:
„loks fýk ég af
jörð sem þurralauf,
og eftir eru aðeins
óp min einsog vofur
þcss harms sem
blóð mitt leysti.
Reimt er i dalnum.”
IV.
— Mamma min á alveg eins
svuntu, sagði barnið. Hún er
bara öðruvisi. Mér komu þessi
eðlilegu barnaorð oft i hugann
þegar ég blaðaði i bók Aðal-
steins Ingólfssonar.
Þetta á vel við um kvæðabók-
ina Gengið á vatni. Hann sækir
á sömu mið og önnur skáld,
syngur sömu söngva. Hann sæk-
ir á dökkumið og harpa hans er
grófstrengjuð. Samt er i þessari
bók meiri veruleiki en i mörgum
öðrum, sem ég hefi séð. Aðal-
steinn beitir ekki bröðum. Hann
er sannur, sannur og opinn. Ein-
stöku sinnum rekst maður þó á
orð, sem almenningur á ekki
lengur til þvi þau hafa komizt i
einkaeign.
Á ég t.d. við morgunsárið, að
það sé áverki, sama er að segja
um deyjandi dagog hlátrasköll.
Notkun þessara orða verður að
varast, a.m.k. i jafn myndræn-
um skáldskap og Aðalsteinn
hefur tileinkað sér.
Aðalsteinn þýðir 20 ljóð úr
itölsku. Hann kvartar yfir þvi,
að vont sé að þýða ljóðin bók-
staflega. Italia er annað menn-
ingarsvæði, Suður-Evrópa verð-
ur ekki gómuð svo auðveldlega
með islenzku máli. Með öðrum
orðum eins og maðurinn sem
dvalizt hafði meðal suður-
evrópskra þjóða sagði um leik-
uppfærslu Islendinga á Don
Juan: Alveg sama myndi ske, ef
Spánverjar færu að setja upp
Skuggasvein.
Bók Aðalsteins Ingólfssonar
kemur á óvart. 1 fyrsta lagi að
myndlistargagnrýnandi skuli
yrkja ljóð — og svo hitt að hann
skuli geta það.
Jónas Guðmundsson
mSKAKSAMBAND
flíSLANDS
íJ1925-1975
TAFLFÉLAG r?
REYKJAVÍKUR \b\
1900-1975 L_i
Stórmeistara
sería I
Skáksamband islands og Taflfélag
Reykjavíkur hafa, í tilef ni af 50 og 75 ára
afmælum sínum, látið slá minnispening
tileinkaðan Friðrik Ölafssyni, alþjóðleg-
um stórmeistara í skák.
Er hér um að ræða upphaf að sérstakri
minnispeningaseríu um ísl. stórmeistara
i skák, sem f yrirhugað er að halda áf ram
með eftir því, sem tilefni gefast. Næsti
peningur yrði helgaður Guðmundi Sigur-
jónssyni.
Upplag peningsins er takmarkað við 100
gull-, 500 silfur- og 1000 koparpeninga,
sem allir verða númeraðir. Peningurinn
er stór og mjög upphleyptur. Þvermál 50
mm, þykkt 4,5 mm og þyngd um 70 gr.
Þeir sem kaupa peninginn nú eiga for-
kaupsréttað sömu númerum síðar, eða í
einn mánuð eftir að næsti peningur kem-
ur út.
Peningurinn er teiknaður af Halldóri
Péturssyni listmálara, en sleginn hjá IS-
SPOR hf., Reykjavik, í samvinnu við
SPORRONG í Svíþjóð.
Pöntunum er veitt móttaka hjá Söludeild
Svæðismótsins að Hótel Esju, Samvinnu-
bankanum, Bankastræti 7, Verzl..
Klausturhólum Lækjargötu 2 og hjá fé-
lögunum.
LISTA-
VERK
Á JÓLA-
KORTI
BH—Reykjavik — Listaverk eftir
Höllu Haraldsdóttur er á jóla-
kortinu, sem Soroptimistaklúbb-
ur Keflavikur gefur út að þessu
sinni. Er hér um aB ræða þekkta
mynd eftir listakonuna, og nefnist
hún Bæn.
Jólakortaútgáfa þessi er árleg-
ur viðburður i starfsemi Soropt-
imistaklúbbsins i Keflavik, og
rennur andvirði jólakortasölunn-
ar til styrktar Sjúkrahúss Kefla-
vikur. Jólakortin eru til sölu i
bókabúðum i Reykjavik og Kefla-
vik.
CHAMPIOH
- éaína
as<*u
LEYNIVOPNIÐ UNDIR VÉLARHLÍFINNI
er nýtt sett af Championkertum. Fáið úr vélinni
þá orku sem henni er ætlað að gefa.
, Laugavegi 118 - Sími 22240
EGILL VILHJALMSSON HE