Fréttablaðið - 04.11.2005, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 4. nóvember 2005
Brynjólfur Bjarnason
forstjóri
Hulda Þórisdóttir
doktorsnemi
prófkjör sjálfstæðismanna í reykjavík fer fram í dag og á morgun www.gislimarteinn.is
Þórunn Pálsdóttir
fjármálastjóri
Bjarni Benediktsson
alþingismaður
Gísla Martein í 1. sæti!
Birgir Ármannsson
alþingismaður
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Fíasól í hosiló
Fíasól er sjö ára gömul gleðisprengja
sem nýtur lífsins fram í fingurgóma.
Samt býr hún í hræðilega herberginu
í Grænalundi þar sem draugahópur
hangir undir rúminu hennar. Hún
móðgar jólasveina og strætóbílstjóra
og þarf að fara í hættulega fjallgöngu
og veiðiferð að næturlagi. Fíasól í
hosiló eru gleðisögur af duglegri
stelpuskottu með líflegum myndum
eftir Halldór Baldursson.
Fleiri sögur um Fíusól sem
heilluðu lesendur á öllum aldri
í fyrra!
Ef ég ætla að fara á óþekktan
veg, spyr ég gjarnan þann sem
farið hefur þann veg ráða, og trúi
honum, ekki síst ef ekki er hægt
að snúa til baka. Ég vil líkja sam-
einingu sveitarfélaga við þennan
veg. Þeir sem helst tala með sam-
einingu hafa ekki farið þennan
veg, hafa ekki reynslu og virðast
ekki hlusta á viðvarinar þeirra
sem reynsluna hafa. Þar sem sam-
eining hefur orðið virðast allir
minni hrepparnir sem sameinast
hafa stórum byggðakjörnum vera
óánægðir, ekki hafi verið staðið
við fögur fyrirheit. Sameining lít-
illa hreppa við stóra byggðakjarna
þýðir valdaafsal litlu hreppanna,
engin mál þeirra komast í gegn án
samþykkis þeirra stóru.
Engum þykir gott að missa
sjálfstæði sitt, en við sameiningu
glatast sjálf-
stæði litlu
hreppanna og
þeir verða sem
va ld a l au s a r
nýlendur. Ég
vil minnast
á flutning
g r u n n s k ó l -
anna til sveit-
arfélaganna,
gott mál eða
hvað? Á síðasta vetri var langt
verkfall grunnskólakennara, sagt
var að sveitarfélögin hefðu ekki
bolmagn til að greiða hærri laun
og ástæðan var að ríkið hefði ekki
greitt nóg með skólunum. Það
væri meira lánið fyrir alla aðila ef
ríkið gæti losað sig við fleiri verk-
efni til sveitarfélaganna á sömu
kjörum? Eða hvað?
Undarlegt að svo hagkvæmt
sé að sameina að borga þurfi 2,4
miljarða með hagkvæmninni,
hinir þurfi ekkert! Og svo að
kjósa um sama málið tvisar á sex
vikum, það er ósvífni! Það á ekk-
ert skilt við frjálsar kosningar,
þetta flokkast sem kúgun!
Greinarhöfundur er rútubíl-
stjóri í Mývatnssveit.
Sameining
sveitarfélaga
JÓN ÁRNI
SIGFÚSSON
�����������
�� �����������������
�������� ���
�����