Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 29

Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 29
 4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR28 timamot@frettabladid.is Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þóra Birna Brynjólfsdóttir lést að Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 30. októ- ber. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 4. nóvember kl. 13.00. Magnús Gústafsson Edda Birna Gústafsson Birna Magnúsdóttir Björn Magnússon Dagbjört Ósk Steindórsdóttir Einar Magnússon Áslaug Jónsdóttir Jórunn María Magnúsdóttir Haukur Bragason Baldur Dan Alfreðsson Þórir Dan Viðarsson Jóhanna Stella Baldvinsdóttir og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson www.steinsmidjan.is ANDLÁT Ólöf Baldvins, fyrrum bóndi á Brún, Akureyri, lést á dvalarheimil- inu Hlíð laugardaginn 29. október. Þorkell Steinsson, Hafnarstræti 16, Akureyri, lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri sunnu- daginn 30. október. Ásgerður Theodóra Jónsdóttir, Hrísholti 12, Selfossi, lést mánu- daginn 31. október. Kári Páll Friðriksson, pípulagn- ingameistari, Blásölum 20, Kópa- vogi, áður Dalseli 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 31. október. Ólafur H. Jóhannesson, Suðurtúni, Álftanesi, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 1. nóvember. Margrét G. Margeirsdóttir, áður til heimilis í Stífluseli 9, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðviku- daginn 2. nóvember. JARÐARFARIR 10.30 Jónína Sjöfn Jóhannsdótt- ir, Blikabraut 6, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju. 13.00 Gunnar Sigurgeirsson, Austurvegi 5, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju. 13.00 Kjartan Ólafsson, frá Strandseli, Ögurhreppi við Ísafjarðardjúp, Birkihvammi 8, Kópavogi, verður jarð- sunginn frá Digraneskirkju. 13.00 Þóra Birna Brynjólfsdóttir verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík. 13.00 Þórður Guðjónsson, útgerðarmaður, Skólabraut 29, Akranesi, verður jarð- sunginn frá Akraneskirkju. 13.00 Þórður Óskarsson, fyrr- verandi útgerðarmaður á Akranesi, Urðarási 8, Garða- bæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.30 Guðríður Ólafsdóttir, Hlíð- argötu 4, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju. 14.00 Páll Þorvarðsson, frá Dalshöfða, Fljótshverfi, Holtsgötu 29, Njarðvík, verður jarðsunginn frá Ytri- Njarðvíkurkirkju. „Ég seldi Daily Post á stríðs- árunum,“ segir Magnús Theódór Magnússon mynd- höggvari, eða Teddi eins og hann er ávallt kallaður, um sitt fyrsta starf um níu ára aldur. Samtímis bar hann út Alþýðublaðið. „Ég bjargaði mér rosalega og hef alltaf átt peninga,“ segir Teddi sem þannig þénaði vasapen- ing til að eyða í bíóferðir og nammi. „Síðan átti maður við- skipti við Ameríkanann, keypti af þeim tyggjó og seldi,“ segir Teddi en mikið af skipum komu til Reykja- víkur rétt fyrir stríð og segir Teddi það hafa tíðkast hjá peyjum að kaupa tyggi- gúmmí, bindi og fleira og hafa milligöngu um sölu á þeim. „Svolítið seinna var ég einn af þeim mörgum sem keyptu bíómiða og seldu. Ég keypti miðann á 3,50 krónur og seldi á tíkall,“ segir Teddi en mikil eftir- spurn var eftir bíómiðum enda bíóhúsin aðeins þrjú, Tjarnarbíó, Gamla bíó og Nýja bíó. „Þetta kallast að bjarga sér en við sem vorum vakandi keyptum marga miða,“ segir Teddi sem meira að segja gerði út aðra stráka til að kaupa miða. „Þetta gerðu margir sem ólust upp á stríðsárun- um en það er aldrei talað um neitt svona,“ segir Teddi og minnist þess að hann var kallaður hrekkjusvín enda hafi alltaf farið mikið fyrir honum. Teddi verður með sýn- ingar í vinnustofu sinni á Arnarholti á Kjalarnesi allar helgar fram að jólum og eru allir velkomnir. FYRSTA STARFIÐ: MAGNÚS THEÓDÓR MAGNÚSSON, TEDDI. Braskaði með bíómiða og tyggjó 1922 Inngangurinn að grafhýsi Tutankahmen konungs í Egyptalandi finnst. 1939 Fyrsti bíllinn með loft- kælingu er til sýnis í Bandaríkjunum. 1942 Áhöfn Brúarfoss bjargar 44 skipbrotsmönnum af enska skipinu Daleby. 1952 Dwight D. Eisenhower er kosinn forseti Banda- ríkjanna. 1969 Sautján farþegar slasast þegar tveir strætisvagnar skella saman á Skúla- götu. 1979 Fylgjendur Ayatollah Khomeini ráðast inn í bandaríska sendiráðið í Teheran og taka 90 í gíslingu. 1995 Orkan hf. opnar þrjár bensínstöðvar. FELIX MENDELSSOHN (1809-1847) LÉST ÞENNAN DAG. „Kjarni fegurðar er eining og fjölbreytni.“ Felix Mendelssohn var þýskt tónskáld sem samdi meðal annars verkið Elías. Á þessum degi árið 1995 var Yitzhak Rabin forsæt- isráðherra Ísraels skotinn til bana. Rabin var skotinn þrisvar í magann af stuttu færi þegar hann yfirgaf friðarsamkomu í Tel Aviv. Árásarmaðurinn, maður að nafni Yigal Amir, var yfirbugaður og handtekinn. Hann var stofnandi ólöglegrar byggðar gyðinga á Vesturbakkanum og tilheyrði hópi róttækra hægri- manna. Um hundrað þúsund Ísraelar voru á friðar- samkomunni til að lýsa yfir stuðningi við fyrirætlanir Rabin um friðarviðræður við Palestínumenn. Yigal Amir hlaut lífstíðarfangelsi og bræður hans tveir þurftu að dúsa í nokkur ár í fangelsi fyrir samsæri. Shimon Peres utanríkisráðherra tók við embætti Rabin og hélt áfram friðarviðræðum við Palest- ínumenn. Hann tapaði í kosningum fyrir Benjamin Netanyahu árið 1996 en sá var andstæðingur friðar- samkomulagsins. ÞETTA GERÐIST> 4. NÓVEMBER 1995 Yitzhak Rabin ráðinn bani YITZHAK RABIN „Þetta var einkennileg tilfinning, svona barnaleg og maður varð hálf feimin,“ segir Ragnhildur Gísladóttir söngkona sem tók við Íslensku bjart- sýnisverðlaununum úr hendi forseta Íslands í vikunni við hátíðlega athöfn í Íslensku óperunni. Alcan á Íslandi er bakhjarl verð- launanna sem fyrst voru kennd við danska athafnamanninn Peter Bröste. Það var því viðeigandi að verðlauna- gripurinn væri áletraður álklumpur úr Straumsvík. Ragga ætlar honum heiðursstað á heimilinu. „Ég ætla að finna einhvern rosa góðan stað, kannski uppi á píanóinu,“ segir hún og hlær en auk þess hlýtur hún peninga að upphæð einni milljón króna. „Fyrst og fremst finn ég fyrir þakk- læti en ég er samt hissa,“ segir Ragga og hlær. Hún minnist fyrstu viðbragða sinna þegar hún fékk að vita af verð- laununum. „Ég spurði fyrir hvað ég væri að fá þau,“ segir hún hógvær. „Þessi verðlaun eru kannski svolítið í stíl við mitt líf,“ segir hún hugsandi en töluverð breyting varð á högum Röggu nýverið þegar hún ákvað að hætta að syngja með Stuðmönnum, sem hún hafði starfað með í rúm tuttugu ár, og setjast á skólabekk á ný til að læra tón- smíðar. „Þetta heiti, bjartsýni, er líka eins og upphaf að einhverju,“ útskýrir hún en hún segir verðlaunin þó ekki breyta neinni ákvörðun sem hún hafi þegar tekið um framtíðina. Námið í Listaháskóla Íslands leggst vel í Röggu. „Þarna kemur í ljós hvað maður veit ofsalega lítið,“ segir hún kímin en á fyrsta árinu er að mestu lagður grunnur að tónsmíðum með tónfræði og sögu en alvöru tónsmíðar koma síðar. „Ég er samt alltaf eitthvað að semja,“ segir Ragga glaðlega og bætir við, „bara fyrir líf mitt,“ og hlær hjartanlega. Ragga segist alltaf verða bjartsýnni með árunum. „Kannski kemur þetta með aldrinum, en það er allavega meiri birta í huga mér nú.“ RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR HLÝTUR ÍSLENSKU BJARTSÝNISVERÐLAUNIN Meiri birta í huga mér Í STÍL VIÐ LÍFIÐ Ragga segir nafnið á verðlaununum, bjartsýni, marka upphaf líkt og nýhafin skólaganga hennar í Listaháskóla Íslands. HARI MERKISATBURÐIR 15.00 María Þorsteinsdóttir, frá Eyri í Skutulsfirði, verður jarðsett frá Hafnarfjarðar- kirkju. 15.00 Óskar Kristjánsson, útgerðarmaður frá Súganda- firði, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju. Elsku mamma okkar, tengdamamma og amma, Margrét G. Margeirsdóttir áður til heimilis að Stífluseli 9, lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 2. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Helga Ingibjörg Sigurðardóttir Magnús E. Baldursson Helena Drífa Þorleifsdóttir Atli H. Sæbjörnsson Þórarinn F. Þorleifsson Hugrún Hrönn Þórisdóttir og barnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.