Fréttablaðið - 04.11.2005, Qupperneq 31
[ ]
Nú gefst fólki um allt land
kostur á að kaupa lambakjötið
beint frá bóndanum. Fram-
kvæmdin er einföld, rétt eins
og að panta pítsu. Pantanir
fara fram á www.austurlamb.
is og vonast aðstandendur
Austurlambs að netvæðingin
verði viðskiptahvati fyrir ís-
lenskar landbúnaðarafurðir.
Vefstarfsemi Austurlambs er
búin að vera opin síðan haustið
2003 og hefur fengið góð viðbrögð
síðan þá. Sigurjón Bjarnason,
framkvæmdastjóri Sláturfélags
Austurlands, segir um helming
veltunnar fara á höfuðborgar-
svæðið um fjórðung á Austurland
og um 25 prósent í aðra lands-
hluta. Ýtrustu kröfur eru gerðar
til þeirra bænda sem framleiða
lambakjöt undir merkjum Aust-
urlambs og tryggt er að kjötið
fái fyrsta flokks meðhöndlun í
afurðastöð. Neytendur geta feng-
ið upplýsingar hjá bóndanum um
að ekki sé beitt neinum aðferðum,
sem neytandinn fellir sig ekki við,
svo sem ofnýtingu lands, kálbeit,
lyfjagjöf og fleira.
Sigurjón segir helstu kostina
fyrir neytendur vera meiri bragð-
gæði í kjötinu, „Við erum með
bestu gæðaflokkana í þessu kjöti,
mestu holdfyllinguna og minnstu
fituna. Þetta er líka eina íslenska
leiðin til að vita uppruna vörunn-
ar, það er af hvaða bónda þú ert að
kaupa,“ segir Sigurjón en Austur-
lamb styðst við EUROP-kjötmats-
kerfið. Austurlenskt lambakjöt
er með því betra á landinu. Hag-
stæðar náttúrulegar aðstæður og
áratugareynsla bænda skipta þar
miklu máli. Austfirskir bænd-
ur hafa náð árangri við að
draga úr fitu á lömbum, en
bjóða þó tiltölulega þunga
skrokka. Rannsóknir hafa
líka sýnt að hlutfall ómett-
aðra Omega-3 fitusýra í
lambakjöti er einna hæst af Aust-
urlandi, en þessar sýrur þykja
heilsusamlegri en önnur fita.
„Langflestir panta í gegnum
netið en einstaka hringja beint
í bóndann,“ segir Sigurjón.
„Við erum með samning
við Landflutninga og þeir
senda þetta hvert á land
sem er. Afgreiðslufrest-
urinn hefur verið svona
vika til tíu dagar, Við vild-
um hafa það skemmri tíma
en það er langt að senda
þetta og vinnsluhraðinn er
ekki meiri.“ segir Sigurjón.
Á heimasíðu Austurlambs
er að finna allt um flokkun
dilkakjöts, matreiðsluað-
ferðir og uppskriftir, upplýs-
ingar um framleiðsluhætti
einstakra Austurlambsbænda.
Heimasíðan er aðgengileg og vöru-
flokkar vel skilgreindir ásamt því
að vera fjölbreyttir. Bæirnir sem
selja landbúnaðarvörur sínar í
gegnum vefinn eru Brekkubær,
Unaós, Bakkagerði, Klaustursel,
Hákonarstaðir, Melar, Hjartar-
staðir, Útstekkur, Dalir og Foss-
árdalur.
Nýjar pitsur eru komnar á markaðinn
sem þjóna sérþörfum fjölskyldufólks.
Pitsunni er skipt niður í fjórar litlar
pitsur og því getur hver fjölskyldu-
meðlimur valið sitt álegg óháð
öðrum. Þetta kemur í veg fyrir öll
rifrildi þegar panta skal pitsu, foreldr-
arnir geta valið sér ólívur og sveppi
án þess að
krakkarnir
fari að
kvarta.
Pizza Hut
býður upp
á þessa
nýjung
sem kallast
Fjarkinn og
hefur verið
vinsæl í
Evrópu
síðustu
mánuði.
Nýjung í pitsugerð
SÉRSTAKAR FJÖLSKYLDUPITSUR
HAFA VERIÐ VINSÆLAR Í EVRÓPU
UPP Á SÍÐKASTIÐ.
Pastaréttir þurfa ekki að vera flóknir til að vera góðir.
Það getur til dæmis verið mjög gott að hella bara pestói
yfir soðið pasta og strá svo slatta af parmesanosti yfir.
Einfalt, fljótlegt og gott.
���������
�����������������
����������� ��
���������
���� �������������������
F
A
B
R
IK
A
N
������������������������������������������
������������������������������������������������
Jói
Fel
Fá›u koss
frá afmælisbarninu
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
24
84
1
0
9/
20
04
.
Netvætt lambakjöt
Santa Rita var stofnað á 19. öld en vín-
kjallari hússins er sá elsti í landinu, frá
18. öld. Höfuðstöðvarnar eru í Maipo-
dalnum, einu gjöfulasta víngerðarsvæði
heims. Óvíða eru aðstæður til vínræktar
betri og meira að segja Frakkar, sem ann-
ars vilja ekkert gott um önnur vínræktar-
lönd segja, tala af lotningu um aðstæður
í Maipo. Framfarir í víngerð hafa verið
gríðarlegar í Chile og með hverju árinu
koma sífellt betri vín á markað. Santa Rita
er í fylkingarbrjósti í útflutningi gæðavína
til Evrópu og Ameríku. Þykja vín fyrirtækis-
ins afar hagstæð miðað við gæði og var Santa
Rita meðal annars útnefnt „hagstæðasti vín-
framleiðandinn“ í tímaritinu Wine & Spirits árið
2002.
Santa Rita 120 Merlot er bragðmikið, mjúkt
með bökuðum sólberjakeim. Grösugur og góður
ilmur, hundrað prósent hreint merlot sem er gott
með óformlegum mat, pasta, ostum eða eitt og sér.
Verð í Vínbúðum 1.090 kr.
SANTA RITA:
Gratineraður fiskur
Plokkfiskur
&
- Matur er mannsins megin
Fjórskipt pítsa sem hentar
fjölskyldufólki.
Dyrfjöll við Borgarfjörð
eystri á Austurlandi.
Eyjan Skrúður við
Neskaupstað.
Bragðmikið og góður ilmur