Fréttablaðið - 04.11.2005, Qupperneq 57
18 ■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Liebherr-byggingarkranar eru al-
gengustu kranar á Íslandi og er talið
að þeir séu um 70-75% af öllum
krönum á landinu. Liebherr er þýsk
framleiðsla og er fyrirtækið einn
stærsti framleiðandi í heimi á vinnu-
vélum af hvers kyns tagi. Kranafram-
leiðsla þess er ekki einungis bundin
við staðlaðar útfærslur heldur sér-
smíðar það krana fyrir nær allar að-
stæður.
Merkúr hefur verið með umboðið
fyrir Liebherr síðan 1998 og selur
allar gerðir af krönum fyrirtækisins.
Sala á krönum hjá Merkúr hefur verið
góð undanfarið en talsvert virðist
vera um það að verktakar séu að
endurnýja kranana sína. Hér á Íslandi
var á árum áður mest um það að
verktakar keyptu til sín notaða krana
og því er kranaflotinn orðinn nokkuð
gamall, samkvæmt Sigurjóni Alfreðs-
syni, sölufulltrúa hjá Merkúr. Líftími
krana er mismikill, en algengt er að
krana sé hægt að nýta í fimmtán til
tuttugu ár, sé honum haldið vel við.
Í framleiðslu Liebherr er boðið upp
á ýmist sjálfreisandi krana, turn-
krana, grindarbómukrana og bíl-
krana. Sjálfreisandi krana tekur
skamman tíma að reisa með kapal-
stýringu eða fjarstýringu en þeir eru
til í mörgum útfærslum með mis-
munandi lyftigetu og í bómulengdum
sem ná frá tuttugu til fimmtíu metra.
Turnkranar eru stærri og þarf að not-
ast við bílkrana við uppsetningu á
þeim. Tekur það um það bil tvo til
fjóra daga, allt eftir stærð, gerð, hve
hátt á að reisa kranan og svo
framvegis. Turnkrana er hægt að fá í
bómulengdum sem ná frá þrjátíu til
áttatíu metra og með gífurlegri lyfti-
getu. Liebherr-hafnarkranar hafa
einnig notið mikilla vinsælda hér á
landi og hefur til dæmis nýlega verið
tekinn í notkun slíkur krani vegna ál-
vers á Reyðarfirði.
Vaxandi notkun forsteyptra ein-
inga í byggingaiðnaði hér á landi
hefur það í för með sér að verktakar
hafa verið að leita að frekari lyftigetu
til að hífa einingar af því tagi.
Stærstu kranar sem Merkúr hefur selt
til verktaka hér á landi eru af gerð-
inni 280 EC-H 16 og hafa alls selst
fjórir slíkir kranar hér. Bómulengd
þeirra er heilir 75 metrar og lyftigeta
þeirra er mest sextán tonn. Þó ber að
taka það fram að þetta eru alls ekki
stærstu kranar sem Liebherr framleið-
ir, en hámarkslyftigeta þess stærsta er
heil áttatíu tonn.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Sögurnar, tölurnar, fólki›.
Algengustu kranar á Íslandi
Liebherr-byggingarkranar hafa notið mikilla vinsælda hér á landi í gegnum árin.
Mikið er af byggingarkrönum í hverfum sem er verið að byggja. Þessi mynd er tekin í Vallarhverfi í Hafnarfirði.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
18-19 vinnuvélar lesið 3.11.2005 16:01 Page 2