Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 69
4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR20
... að lengsti trefill sem einstaklingur
hefur prjónað mældist 1.073,8 metra
langur og 17,7 sentimetra breiður?
... að stærstu bómullarnærbuxur heims
mældust 9,54 metra breiðar og 4,9
metra háar?
... að Laura Mitchell fegrunarfræðingur
vaxaði 22 fótapör (16 karla og 6 konur)
á einum klukkutíma og setti þar með
met?
... að karlfyrirsætan Eddie Warke gekk
alls 133,7 kílómetra á sýningarpöllum á
þremur dögum á tískusýningu sem fór
fram árið 1983 á Írlandi?
... að kvikmyndin Matrix Reloaded
halaði inn þremur milljörðum króna á
frumsýningardegi árið 2003?
... að lengsta einræða í leikinni mynd
er 20 mínútna eintal leikarans Edwige
Fuillere í frönsku myndinni Örninn er
tvíhöfða sem sýnd var árið 1948?
... að umfangsmesta ljósmynd sem
tekin hefur verið af nöktu fólki tók
Spencer Tunic þegar sjö þúsund naktir
sjálfboðaliðar sátu fyrir naktir á götu í
Barcelona á Spáni?
... að lengsta heimildarmynd sem
gerð hefur verið um einstakling er 13
klukkutímar og 52 mínútur og fjallar um
Elvis Presley?
... að árið 1995 var fólksfjöldi heims
2,56 milljarðar?
... að árið 2005 var fólksfjöldi heims
6,31 milljarður?
... að stærsti fljótandi hluti jarðarinnar
er ytri kjarni hennar sem er 2.259 kíló-
metra þykkur?
... að Babu Chhiri Sherpi frá Nepal
dvaldist á toppi Everest fjalls í 21 tíma
án þess að nota súrefnisflöskur? Flestir
fjallgöngumenn eyða minna en klukku-
tíma þar.
...að Tamae Watanabe er elsta konan til
að komast á tind Everest þá 63 ára og
177 daga gömul?
... að gleraugnakani er með stærsta
gogg sem um getur? Að meðaltali er
goggurinn 34 til 47 sentimetra langur.
... að höggkraftur roðaspætunnar jafnast
á við árekstur á 20,9 kílómetra hraða?
... að við kjöraðstæður getur förufálki
komið auga á dúfu í átta kílómetra
fjarlægð?
... að á því sjö mánaða tímabili sem
steypireyðskýr hefur kálfinn á spena
getur hún tapað allt að fjórðungi af
líkamsþyngd sinni?
... að stærsti spendýrakjálki sem vitað er
um var fimm metrar á lengd og tilheyrði
búrhval sem var nærri 25,6 metrar á
lengd?
... að búrhvalir eru stórtenntustu
hvalirnir?
... að Periplaneta Americana hita-
beltiskakkalakkinn, var mældur á 5,4
kílómetra hraða á klukkustund? Kakka-
lakkinn fer þá 50 líkamslengdir á hverri
sekúndu.
Haustveðrið hefur sýnt á sér margbreytilegar hliðar á síðustu dögum. Það fékk þetta stóð á Kjalarnesi að reyna. Mynd/Vilhelm
SJÓNARHORN
VISSIR ÞÚ ...