Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 73
4. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR32
menning@frettabladid.is
!
Opinn dagur verður í öllum deildum Listaháskóla
Íslands í dag frá klukkan 10 til 14. Skólinn býður
öllum áhugasömum að koma til að kynna sér
starfsemina, sem þar fer fram.
Leiklistardeildin, sem er til húsa að Sölvhóls-
götu 13, býður til dæmis gestum að taka þátt í
sýnishorni af inntökuprófi sem samanstendur af
leiktúlkun, líkamsþjálfun, raddbeitingu og söng.
Auk þess kynnir deildin nýtt nám sem hófst í haust
„Fræði og framkvæmd“ og dansnám.
Í tónlistardeildinni, sem einnig er staðssett á Sölv-
hólsgötunni, verða opnir tónleikar, opnar æfingar
og sýnishorn af hljóðverkum nemenda.
Í myndlistardeildinni í Laugarnesi verður öll
starfsemi og verkstæði opin gestum og gangandi
auk sýningar á fjölbreyttum verkum nemenda.
Hönnunar- og arkítektúrdeild, sem er til húsa að
Skipholti 1, verður einnig með alla starfsemi sína
opna, en þar er að finna fata- og textílhönnun,
þrívíða hönnun, grafíska hönnun og arkítektúr.
Í öllum deildum verða nemendur og kennarar til
viðtals og upplýsingagjafar og nemendur kynna
inntökumöppur. Í tónlistardeildinni verða til dæmis
prófessorarnir Gunnar Kvaran sellóleikari og Kjartan
Ólafsson tónskáld ásamt Árna Heimi Ingólfssyni
dósent í tónlistarfræðum til vitals fyrir þá sem vilja
kynna sér námið.
Listaháskólinn opnar sig
Opnunarviðburður Unglistar
2005 verður í Sundhöllinni í
Reykjavík í dag. Ítalska lista-
konan Firenza Guidi hefur
fengið unga listamenn og
stúlknakór til liðs við sig.
Listahátíð ungs fólks hefur verið
árviss viðburður í meira en áratug
og stendur yfir í rúma viku í hvert
sinn. Hátíðin í ár hefst í dag með
sýningunni Chinaman í Sundhöll
Reykjavíkur.
Chinaman er sýning ítölsku lista-
konunnar Firenza Guidi, sem áður
hefur haldið sýningu hér á landi í
samstarfi við Íslendinga. Að þessu
sinni hefur hún fengið til liðs við sig
unga listamenn, bæði íslenska og
erlenda. Frá Íslandi eru ungmenni
úr Menntaskólanum við Hamrahlíð
og stúlknakór Domus vox.
„Sundhöllin er mjög stemnings-
ríkur staður og hún Firenza Guidi
nýtir sér það óspart,“ segir Stein-
unn Knútsdóttir hjá Lab Loka, sem
hefur verið samstarfsaðili Firenzu
hér á landi.
„Hún vinnur mjög myndrænt og
setur sýninguna saman eins og mós-
aík. Sumir hafa líkt þessu við vinnu
kvikmyndaleikstjóra, en hún vinnur
alltaf sýninguna inn í ákveðið rými,
sem í þetta skiptið er Sundhöllin í
Reykjavík.“
Þessi sýning er partur af röð
sýninga í fimm löndum og er Ísland
annar viðkomustaður hennar. Í
mars síðastliðnum héldu tveir ungir
íslenskir listamenn til Ítalíu og tóku
þar þátt í sýningunni „Artemisia“ og
munu fulltrúar Íslands einnig taka
þátt í þremur komandi sýningum
sem verða í Frakklandi, Þýskalandi
og Wales á næstu mánuðum.
Sýningin verður sýnd tvisvar í
Sundhöllinni í kvöld, klukkan 19 og
21.
Fjölmargir aðrir viðburðir eru
á dagskrár Unglistar, sem stendur
fram til laugardagsins 12. nóvem-
ber. Í dag verður til dæmis hleypt
af stokkunum Myndlistarmaraþoni
Unglistar.
ÆFING FYRIR CHINA-
MAN-SÝNINGUNA
Sundlaugargestir í
Sundhöllinni létu það
lítt á sig fá þótt ungir
listamenn væru að
æfa sig fyrir opnun-
arviðburð Unglistar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kínamaður í Sundhöllinni
Fyrir hálfum mánuði frum-
sýndi Íslenski dansflokkur-
inn þrjú verk í Danmörku.
Þessi sömu verk verða
frumsýnd á Íslandi í kvöld,
á stóra sviði Borgarleik-
hússins.
„Við fengum mjög hlýjar móttökur
í Danmörku, þetta gekk mjög vel,“
segir Peter Anderson, sem bæði
dansar með Íslenska dansflokkn-
um og er höfundur eins verkanna
þriggja.
Verkið hans heitir Critic‘s
Choice og fjallar um danshöf-
undinn, dansarann og gagnrýn-
andann á gamansaman hátt. Þar
koma fram andstæðar hugmyndir
um hvað listin stendur fyrir.
„Ég er að velta þarna fyrir mér
sambandinu á milli danshöfundsins
og gagnrýnandans, hvernig þeir
nærast hvor á öðrum og hafa
báðir áhrif á sköpunarferlið, hvor
með sínum hætti.“
Peter hefur dansað með
Íslenska dansflokknum í fjögur ár
og segist alls ekkert ætla að leita á
önnur mið á næstunni.
„Ég ætlaði bara að vera hérna í
eitt ár, en hér hafa manni gefist svo
mörg tækifæri. Á hverju ári eru
ný verkefni að fást við og nýr lista-
maður að starfa með. Þetta hefur
verið mjög lærdómsríkt svo ég sé
enga ástæðu til þess að fara.“
Á efnisskrá kvöldsins er einnig
verkið Wonderland eftir Jóhann
Björgvinsson, sem Jóhann segir
vera „hysterískt melódrama sem
rúmar bæði himnaríki og helvíti“.
Jóhann er eins og Peter dansari
hjá Íslenska dansflokknum, en
þetta er í fyrsta sinn sem þeir
báðir fá tækifæri til að semja verk
fyrir flokkinn.
Þriðja verkið sem dansflokk-
urinn sýnir í kvöld er svo Pocket
Ocean eftir portúgalska danshöf-
undinn Rui Horta, sem áður var
sýnt árið 2001. Rui samdi verkið
sérstaklega fyrir Íslenska dans-
flokkinn og gefst áhorfendum nú
tækifæri til þess að sjá þetta verk
á ný.
Íslenski dansflokkurinn
frumsýndi þessa haustsýningu
sína í Baltoppen-leikhúsinu í
Kaupmannahöfn hinn 20. október.
Þaðan fór sýningin til Árósa
þar sem hún var sýnd í GRAN
teater for dans, sem er eitt besta
dansleikhús í Danmörku.
Jafnframt sýndi flokkurinn
sitt víðförla verk „Við erum öll
Marlene Dietrich FOR“ eftir Ernu
Ómarsdóttur og Emil Hravatin í
Árósum. Þaðan hélt svo Marlene-
hópurinn til Modena á Ítalíu og
að því búnu til Helsinki þar sem
Marlene var sýnd 1. nóvember.
ÚR SÝNINGU ÍSLENSKA DANSFLOKKSINS
Frumsýning verður í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Hlýjar móttökur
í Danmörku
Kl. 20.00
Fjórða sýning óperunnar Tökin
hert eftir Benjamin Britten verður í
Íslensku óperunni í kvöld. Einungis
sex sýningar verða í allt, þannig að
hver fer að verða síðastur að upplifa
þessa mögnuðu sýningu.
> Ekki missa af ...
... sýningunni Essens á
Kjarvalsstöðum, þar sem gefið
er yfirlit yfir helstu viðfangsefni
Kjarvals í myndlistinni.
... sýningunni Föðurmorð og
Nornatími, sem nú stendur
yfir í Norræna húsinu. Sýningin
hefur verið framlengd til 13.
nóvember.
... sýningunni Tími
Romanovættarinnar í
Rússlandi, sem nú stendur yfir
í Gerðarsafni í Kópavogi. Þar eru
sýndir yfir 200 gripir.
Snorri Ásmundsson listamaður
hefur undanfarin ár reynt að
trufla tilveru fólks með umfangs-
miklum gjörningum sínum sem
hafa oftar en ekki beinst að hel-
stu feimnismálum almennings
eins og pólitík, kynlífi og trúmál-
um. Heiðursborgaratitlar, borg-
arstjórnarframboð, forsetafram-
boð og sala á aflátsbréfum eru
nokkur dæmi um afrekin.
Hvernig svo sem fólk bregst
við þessum uppátækjum lista-
mannsins þá segist hann fyrst og
fremst vera að ögra samfélags-
legum og trúarlegum gildum.
Hann segist hafa fengist við
að skoða viðbrögð umhverfis-
ins við því þegar viðurkenndum
gildum er snúið á hvolf og þegar
annars valdalaus einstaklingur
tekur sér vald sem alla jafna er
úthlutað eftir fyrirfram gefnum
reglum.
Nú boðar hann stefnu-
breytingu og uppgjör undan-
farinna ára í sýningu sem hann
opnar 19. nóvember næstkom-
andi á Nýlistasafninu og þar ber
ýmislegt á góma.
SNORRI ÁSMUNDSSON Boðar stefnubreyt-
ingu og uppgjör liðinna ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Uppgjör í vændum