Fréttablaðið - 04.11.2005, Blaðsíða 84
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Skítamórall: Eitur í beinum
sumra, konfekt í eyrum annarra.
Fáar hljómsveitir eiga sér jafn
eindregna andstæðinga en Skíta-
mórall hefur einnig á bak við sig
styrkan hóp aðdáenda sem bregst
sínum mönnum ekki á ögurstundu.
Skítamórall trekkir alltaf að, sama
hvað hver segir.
Það er vandað vel til verksins
hvað umslag plötunnar varðar,
myndirnar flottar, þó stafirnir
framan á séu hálf mislukkaðir.
Alltaf gaman þegar textarnir eru
prentaðir með greinilegum stöf-
um þó textasmíðin á plötunni sé
ódýr kveðskapur.
Má ég sjá hefst á lagi Ununar,
Ástin. Heldur furðulegt að byrja
plötu á kóverlagi. Skítamórall fer
ágætlega með lagið en það er erf-
itt að bæta miklu við upprunalega
flutninginn á þessum fína slagara
Gunnars Hjálmarssonar. Ball-
aðan Hún hefur þegar fengið að
hljóma á öldum ljósvakans en það
er Þorvaldur Bjarni sem á lagið
en Andrea Gylfadóttir textann.
Lagið er meðhöndlað á réttan hátt,
útsetningin vel heppnuð og rödd
Gunnars Ólasonar hentar róleg-
um lögum mjög vel. Vignir Snær
Vigfússon semur Má ég sjá, sem
er eitt af bestu lögum plötunnar.
Kraftmikill flutningur drengj-
anna. Önnur lög standa í skuggan-
um af áðurnefndum lögum þó
Eldur komist hvað næst þeim.
Önnur eru týpísk Skítamóralslög.
Hljóðfæraleikurinn á plötunni
er til fyrirmyndar en útsetning-
arnar eru á köflum hálf fyrirsjá-
anlegar. Sveitin saknar óneitan-
lega Einars Ágústs þegar kemur
að rokklögunum en Gunnar hefur
ekki alveg sama kraftinn í rödd-
inni.
Platan er ekki þrekvirki á sviði
tónlistar. Hún á ekki eftir að valda
hallarbyltingu í lagasmíðum eða
umróti í þjóðfélaginu. Skítamórall
tekur sig heldur ekki það alvar-
lega að meðlimir sveitarinnar
haldi að þeir séu að finna upp hjól-
ið að nýju. Skítamórall er ekki að
víkka út aðdáendahóp sinn eins
og meðlimir sveitarinnar kannski
vildu en fyrir aðdáendur hennar
er þetta prýðileg viðbót í safnið.
Skítamórall kann að trylla lýðinn
sinn og gerir það eflaust enn með
Má ég sjá. Freyr Gígja Gunnarsson
SKÍTAMÓRALL
Titill: MÁ ÉG SJÁ
Niðurstaða: Fyrir aðdáendur Skítamórals er
Má ég sjá prýðileg viðbót í safnið. Sveitin kann
að trylla lýðinn sinn og gerir það eflaust með
þessari plötu.
Eingöngu fyrir aðdáendur
» FRÁBÆR SJÓNVARPSDAGSKRÁ ALLA DAGA FÖ
ST
U
D
A
G
U
R
LA
U
G
A
R
D
A
G
U
R
SU
N
N
U
D
A
G
U
R
M
Á
N
U
D
A
G
U
R
ÞR
IÐ
JU
D
A
G
U
R
M
IÐ
VI
K
U
D
A
G
U
R
FI
M
M
TU
D
A
G
U
R
5 DÁLKAR
MÁ BIRTAST HVAÐA DAG SEM ER
KUBBAR TIL
UPPFYLLINGAR Í
SMÁAR
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
BIRTUkubbar-AUGL TIL UPPF 6.10.2005 20:43 Page 2
Sjá
ná
na
r í
DV
í d
ag
Ætla að slá í gegn
með nýjum söngleik
Kristján
Ra og
Bjarni H
aukur
DV2x10 3.11.2005 20:32 Page 1