Fréttablaðið - 04.11.2005, Page 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Föstudagur - frí frá krabba-meininu samkvæmt styrktar-
félagi Ljóssins, endurhæfingar
og stuðningsmiðstöðvar fyrir fólk
sem hefur greinst með krabba-
mein og aðstandendur þeirra.
Það eitt að hægt sé að taka frí
frá krabbameini eru stórtíðindi í
sjálfu sér.
MÉR varð hugsað til dagbókar
vinkonu minnar sem missti mann-
inn sinn úr krabbameini fyrir
stuttu. Ást sína sýndi hún með því
að taka sér frí frá vinnu og annast
hann mánuðum saman - jafnvel
þótt heilbrigðisþjónustan gerði
henni það nánast ómögulegt.
ÞAÐ sem henni þótti þó erfiðast
var að fara með manninn sinn á
göngudeild krabbameinsdeildar
Landspítalans. Biðstofan var allt-
af full af veikasta fólki landsins
sem sat þar og beið og beið, hvort
sem það gat hangið eitt og sjálft
á stól eða ekki. Einu sinni voru
þau mætt klukkan níu að morgni.
Klukkan fimmtán mínútur í ellefu
fór vinkona mín öskureið upp á
deild til þess að leita að lækninum
sem átti að sinna þjáðum göngu-
deildarsjúklingunum en var
hundskömmuð fyrir frekjuna og
sagt að læknirinn hefði bara nóg
að gera. Hún fékk ekki að tala
við hann en var gefinn tími næsta
dag vegna þess að hún þurfti að
fara með manninn heim til þess
að gefa honum lyf. Næsta dag var
staðan óbreytt.
EITT af því sem við getum staðið
frammi fyrir ef við fáum krabba-
mein er að hafa ekki stjórn á
þvagláti og hægðum. Ef það ger-
ist á heilbrigðiskerfið að skaffa
okkur bleiur. Vinkona mín sótti
um þær til Tryggingastofnunar.
Leyfi barst eftir þrjá mánuði.
Ávísun á bleiur í heilt ár. Maður-
inn lést nokkrum vikum seinna.
Ef vinkona mín hefði eitthvert
viðskiptavit myndi hún taka út
ársbirgðirnar af bleium og selja
þær fólki sem bíður eftir slíku
leyfi á meðan sá krabbameins-
sjúki þjáist og grætur yfir því að
missa allt í rúmið sitt.
ÞETTA eru aðeins tvö dæmi úr
dagbók sem minnir helst á hroll-
vekju eftir Stephen King. Ég ætla
ekki einu sinni að byrja á kaflan-
um um samskipti við líknardeild-
ina - en það gæti verið fróðlegt að
gera könnun á því hversu margir
sjúklingar þar hafa verið kven-
kyns og hversu margir karlkyns.
Getur verið að mökum krabba-
meinssjúkra sé mismunað eftir
kyni?
Frí frá
krabbameini?