Tíminn - 04.04.1976, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.04.1976, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Sunnudagur 4. apríl 1976. Stýrimannastlgur 10 ■ ■ ' «J* ■■19 ' SSB III ■■■ III III Stvrimannaskólahúsiö viö öldugbtu (1976) (framhuö) Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga 117 Göngum vestur öldugötu i Reykjavík. Þar fékk Stýri- mannaskólinn (stofnaður 1891, skólastjóri Markús F. Bjarna- son) til afnota nýtt og veglegt timburhús, fyrir enda Stýri- mannastigs, er nafn dregur af skólanum. Þetta var árið 1898, og starfaði skóiinn þarna unz hann fékk rýmra húsnæði i hinu mikla, turnprýdda sjómanna- skólahúsi i Austurbænum. Gagnfræðaskóli Reykjavikur (skólastjóri þá Ágúst H. Bjarna son, en eftir hann Knútur Arn- grimsson, Guðni Jónsson og Óskar Magnússon) flutti árið 1945 i húsið við öldugötu og var þar til 1958. Nú er þar barna- skóli. Hafa þannig tilvonandi skipstjórnarmenn, gagnfræö- ingar og börn notið fræðslu i hinu aldna húsi. Dálitið breytt er það hið ytra, lokað dyrum og tekin burt trappan öldugötu- megin. Gengið er inn úr garðin- um bakvið. A bakhlið uppi eru grænar svalir og svalahurð, en litur hússins grár að öðru leyti. Gólf garðsins er nú steypt að nokkru og reynitrjánum heldur fækkað. Viö framhlið skólans blasir Stýrimannastigur, ein fegursta gata i Reykjavik og oft sýnd ferðamönnum. Það er svo mikil reisn yfir mörgum gömlu húsunum þar, með tréskurði -sinum og flúri. Hefur verið reynt að halda þeim sumum i sinni upprunalegu mynd, enda fer bezt á þvi. Athugið dyr og gluggabúnað, tröppur og út- byggingar („bislag”). Þeir hafa sannarlega haft gott fegurðar- skyn gömlu byggingameistar- arnir og valið góðar fyrirmynd- ir. Bættur efnahagur, samfara aukinni tækni og þekkingu upp úr aldamótum og fram að fyrri heimsstyririld gerði skipstjórn- endum og fl. framkvæmda- mönnum fært að byggja þessi myndarlegu hús. Atti stýrimannaskólinn þar drjúgan þátt, þvi að mennt er máttur. Litum á nágrennið. Verða, fyrst fyrir tvö höfðingleg hús á mótum öldugötu og Stýri- mannastigs. Gegnt skólanum t.h. á öldugötu 14 blasir við rautt hús með hvitum glugga- búnaði og rákum. Mun Jens Eyjólfsson hafa teiknað það o.fl. hús á þessum slóðum. Hinum megin á horninu, Stýrimanna- stig 14 stendur hús ljóst yfirlit- um, með útbyggingar og sér- kennilegum gluggum. Færum okkur ögn neðar á Stýrimanna- stiginn i áttina að Vesturgötu. Á Stýrimannastig 10 verður þá fyrir sjónum „Ellingsenshús” ljósleitt með miklu og fögru flúri. Þau eru sviplétt þessi gömlu hús. Minnzt verður á fleiri hús á þessum slóðum. Stýrimannastlgur 14 ( 1974) Öldugata 14 (gamla Mullershúsið) atl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.